Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Qupperneq 27
BJARNAGARÐUR
31
hér sé um eins manns verk að ræða og sönnu nær, að Bjarnagarður og trað-
irnar beri vitni sameiginlegu félagslegu átaki fólks í Landbroti og Skjaldbreið
og sé því að því leyti hliðstæða við Skagagarð. Hugsanlega hafa hólarnir á
hrauninu verið nefndir Birnir og nafn garðsins dregið af því.
í heild er Bjarnagarður með aukagörðum og tröðum vafalítið með meiri-
háttar mannvirkjum frá þjóðveldistímanum, sem menjar hafa varðveist um.
Og gagnstætt því sem vera mun um marga garða frá fyrstu tíð íslandsbyggðar
er þetta mannvirki að öllu leyti verk frjálsborinna manna, framkvæmt löngu
eftir að þrælahald var aflagt, en fullgert að mestu áður en vopnaskak Sturl-
ungaaldarhöfðingja tók að draga bændur og búalið frá nytsamari störfum.
Bollaleggingar um Bjarnagarð og hlutverk hans
Bjarnagarður og traðir þær, sem honum eru tengdar, sem og arfsagnir um
þetta mannvirki, leiða eðlilega til umhugsunar um tilganginn með því og þar
með einnig um ástand á þessum slóðum á síðustu öldum þjóðveldistímans,
aldur Landbrotshrauns og byggðar á því, einnig hugsanlegrar byggðar i
Skjaldbreið, legu vatnsfalla austur þar og ástand þeirra á þeim tíma, o.s.frv.
Hér er því miður á fáu föstu að taka, því heimildir, sem hægt er á að byggja,
eru harla rýrar, nema þá helst gjóskulögin.
Um Skjaldbreið — Um legu Skjaldbreiðar og byggð þar eru litlar sem engar
frásagnir umfram það, sem Jón Steingrímsson hefur frá að segja í sambandi
við Bjarnagarð. Meðallendingurinn Sæmundur Hólm getur þess í staðfræði-
riti sínu um Suðurland, að hlaup úr Skaftárjökli, sem falli í Skaftá, hafi, ásamt
hlaupum úr Súlu — en svo nefnir hann Grímsvötn — og Skeiðarárhlaupum,
„eyðilagt fallegustu sveit, hét Skjaldbreið“, er legið hafi milli Skaftáróss og
Veiðióss og milli þess síðarnefnda og Rauðabergsóss.34 Sveinn Pálsson skrifar
í dagbók sina frá 1793, er hann ferðaðist um Vestur-Skaftafellssýslu: „Austan
við Landbrot og Meðalland hefur heil kirkjusókn eyðst, mestan part af upp-
blæstri, en meðfram einnig af hlaupum Skaftár og Hverfisfljóts. Sú byggð hét
Skjaldbreið, og voru þar að sögn 18 bæir. Talið er, að hún hafi verið í eyði
síðan á 10. öld, enda sér þar ekki urmul eftir nema fáeina melkolla. Skaftá
greindi annars þessa sveit frá Landbrotinu“.35 Jón Steingrímsson nefnir í eld-
riti sínu „Skaptárós fyrir framan Skjaldbreið“.36 Þorvaldur Thoroddsen segir
Skjaldbreið liggja suðvestur af Sléttabóli37 og á öðrum stað talar hann um
„breiða gljá, sem uppi stendur milli Landbrotsvatna og Hvalsíkis og þekur
gljáin að miklu leyti pláss það sem kallað er Skjaldbreið neðst á
Brunasandi11.38 Kemur þetta heim við staðsetningu Skjaldbreiðar á korti her-
foringjaráðsins frá 1904 (kort I), en Skjaldbreiðarnafnið er ekki að finna á