Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Síða 32
36
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Gæti þetta bent til þess, að áin hafi þá enn verið að mestu samsafn byggða-
vatna og enn ekki verið talin aðalframhald þeirrar Skaftár, er rann suður með
Skaftártungu.
Jón Steingrímsson hefur haft sagnir af breytingum á rennsli Skaftár, því
hann skrifar í Eldritinu, að hún hafi runnið í þrengslum fyrir ofan Stapafoss
— sem er nærri Ytri-Dalbæ — ,,í nokkur hundruð ár síðan eitt jökulhlaup
keyrði hana þangað“,69 og einnig, að gott veiðivatn vestsuðvestur af Efri-
Steinsmýri hafi aftekið i Skaftárhlaupi eftir að klaustur var stofnað i Kirkju-
bæ.70 Menjar um forna farvegi vatns úr Skaftá eru víðar í Landbrotshrauni.
Stórir farvegir liggja að Tröllshyl, en vatnið horfið úr þeim fyrir Öræfajökuls-
gosið 1362, því gjóskulagið úr þvi gosi er að finna í þeim.71 Ekki virðast þessir
farvegir bera vott um mjög langvarandi rennsli.
Lokaorð
Könnunin á Bjarnagarði og á jarðfræðilegum og skráðum heimildum varð-
andi náttúrufar þar um slóðir þegar hann var hlaðinn, benda til þess, að
arfsögn sú, er Jón Steingrímsson skráði um þennan garð og traðir í Landbroti,
sé ekki ýkja fjarri sanni. Garðurinn er auðsæilega byggður til varnar ágangi
búfjár frá vestri. Erfitt er að sjá, að þær fornu traðir, sem liggja milli byggðar
í Landbroti og tengja sléttlendið austan Landbrotshrauns landinu vestan
Bjarnagarðs, hafi getað þjónað öðrum tilgangi en rekstri búsmala. Vart er
ástæða að efa, að einhver býli hafi snemma á öldum risið á sléttlendinu austur
af Landbrotshrauninu, þar sem hét Skjaldbreið, og nokkuð öruggt er, að
minna vatn hefur í þann tíma runnið milli Skjaldbreiðar og Landbrotshrauns
en síðar varð.
Býlin í Skjaldbreið, ef verið hafa, eru löngu horfin í sand og sér þeirra engin
merki. En Bjarnagarður hlykkjast enn um grösugar lægðir og drög Land-
brotsbyggðar, þögult vitni um ástand sem einu sinni var.
SUMMARY
In his classical, contemporary account of the Lakagígar eruption of 1783 the Reverend Jón
Steingrímsson relates the following tradition, nowhere mentioned in older written sources:
East of the rural settlement Landbrot, which is situated on the lava flow Landbrotshraun, were
in olden times eight farms on a sandur plain called Skjaldbreið (cf. map I). This settlement
formed a separate parish, now long ago destroyed by floods in adjoining glacier rivers. The graz-
ing ground for the livestock of the Skjaldbreið farmers was situated on the Landbrot lava west
of a long wall, Bjarnagarður, which ran from north to south through the entire Landbrot settle-
ment. The Skjaldbreið farmers are said to have driven their livestock across the Landbrot settle-
ment along a fenced lane still visible when the Reverend Jón put the tradition into writing.
Long stretches of the sod wall called Bjarnagarður are still visible. Other portions of the wall