Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Side 55

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Side 55
MINNINGARTAFLA 59 óyggjandi sé í vísitasíu 2. ágúst 1790: „Altarisvængjabrík með máluðum list- um og portraitum Björns Gíslasonar og Guðrúnar Eggertsdóttur“. Hér virðist hún því komin yfir altari.2 Það, að töflunnar er ekki getið fyrr er því einkennilegra, sem Guðrún hefur gefið kirkjunni fjölda gripa, altarisdúk, rykkilín, skírnarfat, klukku (sem steypt var upp úr annarri gamalli), og færir Jón biskup Vídalin henni lof- semdarþakkir fyrir í vísitasíu 22. september 1710.3 Skýringin gæti líklegast helst verið sú, að kirkjan hafi upphaflega alls ekki átt mininngartöfluna, heldur hafi Guðrún talið hana séreign sína, jafnvel þótt hún kynni að hafa verið höfð i kirkjunni.4 Eftir andlát hennar, þegar skipti fara fram og afkomendur þeirra hjóna eru engir, er ekkert líklegra en að erf- ingjar, sem voru þá útarfar, hafi ákveðið að gefa kirkjunni töfluna, enda talið hana best niðurkomna þar í kirkjunni. Þetta er í rauninni ekki stórt atriði viðvíkjandi þessari minningartöflu, hitt er meira um vert að reyna að skyggnast eftir, hver gert hafi hana svo ágætlega sem raun ber vitni. Telja verður víst, að taflan sé íslensk. Það sést best á áletrununum undir myndunum innan á vængjunum, sem eru á íslensku. Að vísu eru til danskar altaristöflur frá fyrri timum með íslenskum áletrunum, en þá eru oftast nær fleiri eða færri ritvillur sem segja til, að málarinn hefur ekki skilið hvað hann var að skrifa heldur haft áletrunina uppskrifaða fyrir sér og auðveldlega orðið á smáskyssur. Þegar litast er um i heimi íslenskra listamanna þessa tíma er sannarlega ekki í marga staði að líta. Verður fyrst fyrir manni nafn séra Hjalta Þorsteinssonar prófasts í Vatnsfirði, sem er líklegast eini listamaður þeirra tíma, sem nam er- lendis fagrar listir, enda skaraði hann langt fram úr fyrri tíðar mönnum, sem fengust við málaralist eða höggmyndalist (útskurð). Virðist enda svo, að aðrir listamenn komi vart til greina til að geta gert töflu sem þessa. Séra Hjalta og list hans hafa verið gerð skil víða, og skal einkum bent á grein Matthíasar Þórðarsonar í íslenskum listamönnum, I,5 og greinar Krist- jáns Eldjárns í Ársriti Sögufélags ísfirðinga 1978.6 Viðbúið er þó, að eitthvað kunni enn að koma í ljós af verkum, sem örugglega megi eigna séra Hjalta, svo afkastamikill listamaður sem hann hefur verið, og er þó margt týnt og tröllum gefið af verkum hans. En séra Hjalti hafði framast i Kaupmannahöfn og lært þar málaralist, höggmyndalist, hljóðfæraslátt og söng, í rauninni allar þær fagrar listir, sem þá stóð til boða að læra. Og slíkur var listaáhugi séra Hjalta, að hann virðist hafa gert myndir án tilefnis, til dæmis mannamyndir án sérstakrar beiðni. En niðurstaða um málarann fæst þó best með því að bera saman þessa
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.