Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Page 122
126
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Það var á nýársdag árið 1823 að embættað var í Gufuneskirkju. Meðal
kirkjugesta voru þeir Vigfús hreppstjóri á Reykjum og Jónatan bóndi á Æsu-
stöðum, sem þá var nær þrítugsaldri. Héldu þessir menn frá kirkjunni heim
að Lágafelli. Bauð Guðmundur bóndi Jónsson fyrrum lögréttumaður þeim
bændum til gestastofu sinnar. Þegar þeir höfðu setið þar nokkra stund kom
Guðrún Hákonardóttir (tengdadóttir Guðmundar) inn í stofuna. Voru þau
Guðrún og Jónatan á svipuðum aldri, tæplega þrítug. Látum við nú Jónatan
sjálfan segja frá því sem fram fór þarna í stofunni á Lágafelli og hann kærði
siðan til sýslumanns: ,,Tók hún (Guðrún) að bera á mig að ég hefði haft
óþægileg orð um hana á bak, eftir því sem hún hefði frétt, með fleiri ýfingar-
orðum sem hún brúkaði. Ég svaraði litlu þar til en fór að minnast á áleitni
hennar fyrr meir við mig án þess þó að brúka illyrði við hana, hvað þeir er við-
staddir voru munu sanna. Samt sem áður varð hún svo bráð, að hún hljóp að
mér, sem átti einskis ótta að mér, og sló mig í andlitið,----Nú er það mín
auðmjúk bón, að herra sýslumanninum vildi þóknast að stefna áðurnefndri
Guðrúnu Hákonardóttur og mér fyrir pólitírétt til þess að gjöra tilraun til
hvort hún ei með góðu vildi bæta ójöfnuð sinn með lítilfjörlegum útlátum til
fátækra í Mosfellssveit, eða sé þess ei kostur að hún verði þar tildœmd, sem
nærstöddum viðskiptum okkar Guðrúnar mætti herra sýslumanninum
þóknast að stefna bóndanum Guðmundi Jónssyni á Lágafelli og hreppst-
jóranum Vigfúsi Halldórssyni á Reykjum. — Æsustöðum 1. febrúar 1823
Jónatan Jónsson“
Þessu kærubréfi.svaraði sýslumaðurinn réttum mánuði eftir móttökuna eða
þann 1. marsmánaðar. Vegna þess að bréf sýslumannsins er ritað í hinu hefð-
bundna kansellístíl, er tíðkaðist af mikilli formfestu fram eftir 19. öld, verður
það birt hér óstytt og er það svohljóðandi:
„Ólafur Finsen, Hans konunglegu hátignar til Danmerkur sýslumaður
í Kjósarsýslu, samt sýslumaður og héraðsdómari í Gullbringusýslu:
Gjörir vitanlegt, að fyrir mér hefur tjáð Jónatan bóndi Jónsson á Æsu-
stöðum i Mosfellssveit, hvörsu hann finni sig orðsakaðan til að innstefna
fyrir pótitírétt bóndakonunni á Lágafelli, Guðrúnu Hákonardóttur, út af
misklíð þeirra í millum risinni að Lágafelli þann 1. janúar þ.á. því
innkallast hér með velnefnd kona, Guðrún Hákonardóttir á Lágafelli, til
þess að mæta að Lágafelli í Mosfellssveit næstkomandi föstudag þann
7unda yfirstandandi mánaðar, einni klukkustundu fyrir hádegi, fyrir
pólitírétti, sem þá af mér seitur verður, til þess að svara klagandans
sakargiftum, heyra á vitni stefndra og óstefndra framburð, taka sættatil-
raun eður eftir kringumstæðum meðtaka réttarins úrskurð um fyrr-
stefndra misklíð. Að bón klagandans innkallast einnig til undir fallsmáls-