Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Qupperneq 168
172
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
af ef ekki yrði bætt úr. Lítið ber á ofnunum og lýsingu er þannig komið fyrir
með veggljósum, að þau má auðveldlega taka ofan ef ástæða þykir til.
Undirbúningur var hafinn að áframhaldi viðgerðar á Glaumbæ, en svo fór,
að Stefán Friðriksson frá Glæsibæ, sem byrjaður var að gera við bæinn, féll
frá skyndilega og varð því ekki meira gert þar að sinni. Stefán hafði verið
safninu haukur í horni með viðgerðir. Hann hlóð upp og gerði við Víðimýrar-
kirkju árið 1935 og aftur fyrir fáeinum árum og Glaumbæ endurbyggði hann
einnig á árunum fyrir stríð. Þá hafði hann endurbyggt baðstofuna í Glaumbæ
öðru sinni, og hann stóð fyrir torfverkinu við byggingu Þjóðveldisbæjarins í
Þjórsárdal. Hann var orðlagður snillingur við torfverk og einn hinna örfáu,
sem fengust við slík störf á síðustu árum. Er nú skarð fyrir skildi þar sem hann
var.
Unnið var talsvert að viðgerð Grundarkirkju í Eyjafirði, að mestu fyrir fé
Þjóðhátíðarsjóðs. Var einkum endurnýjað hið skrautlega sáluhlið og steypt
ný stétt að kirkjunni. Er ljóst, að viðgerð kirkjunnar verður mun meiri en séð
varð í upphafi, einkum er turninn illa farinn. Sverrir Hermannsson trésmiða-
meistari á Akureyri annaðist viðgerðina undir umsjá Hjörleifs Stefánssonar
arkitekts.
Hafist var handa um viðgerð Bjarnarhafnarkirkju í Helgafellssveit sem er
ein hinna litlu dæmigerðu timburkirkna 19. aldar. Hins vegar var lítið unnið í
Norska húsinu í Stykkishólmi.
Lítils háttar fjárveiting var veitt til viðgerðar hússins Strandgötu 50 í Hafnar-
firði, sem er eitt af gömlu húsunum á Mölinni innan við lækinn. Lögð var
hitaveita í húsið, en ekki fleira gert þar.
Gamli bærinn að Guðlaugsstöðum í Blöndudal, sem nú er hætt að nota, var
mældur upp um sumarið, og gerðu það Hjörleifur Stefánsson arkitekt og
Nanna Hermannsson safnstjóri í Árbæjarsafni ásamt fleira fólki þar af safn-
inu. Síðan var frambærinn tekinn ofan, sem er merkasti hluti bæjarins, og er
áformað að geyma viðina svo að setja megi upp síðar þar sem aðstæður kunna
að skapast.
Ýmsar skoðunarferðir voru farnar viðvíkjandi gömlum byggingum og forn-
leifum, og skulu hinar helstu nefndar.
í júnímánuði fóru þjóðminjavörður og Hörður Ágústsson vestur í Dala-
sýslu til viðræðna um viðgerð kirkjunnar í Hjarðarholti, sem er orðin allilla
farin og gera þarf vandlega við, enda er áhugi á því heima fyrir. Þetta er ein af
krosskirkjum Rögnvalds Ólafssonar arkitekts en hefur verið breytt allmikið.
Vildu sóknarmenn jafnframt kanna möguleika á að koma fyrir skrúðhúsi við
kirkjuna, sem er þó ekki auðvelt vegna hins sérstæða byggingarstíls kirkjunn-
ar.
í ferðinni skoðuðu þeir einnig gamalt skólahús í Hlöðutúni í Stafholts-