Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Side 171
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1980
175
millj.; til Byggðasafns Austur-Skaftfellinga kr. 1. millj.; til Byggðasafns
Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga, kr. 300 þús.; til Byggðasafns Vestmanna-
eyja, kr. 1. millj.; til húss yfir skipið Farsæl á Eyrarbakka, kr. 400 þús.; til
Byggðasafns Suðurnesja, kr. 300 þús.; til Sjóminjafélags i Hafnarfirði, kr.
400 þús., til Þingeyrakirkju kr. 600 þús.; til Vallakirkju í Svarfaðardal, kr.
400 þús.; ti! Mosfellskirkju í Grimsnesi, kr. 500 þús.; til Gömlubúðar á Eski-
firði kr. 600 þús.; til Saurbæjarkirkju á Rauðasandi, kr. 400 þús.; til
Strandgötu 50 í Hafnarfirði, kr. 600 þús.; til Staðarbakkakirkju i Miðfirði,
kr. 500 þús.; til Byggðasafns Dalamanna, kr. 500 þús.; til viðgerðar Faktors-
húss og Turnhúss á ísafirði, kr. 1. millj.; til Heimilisiðnaðarsafns á Blöndu-
ósi, kr. 500 þús. Afgangur fjárins var greiddur sem gæslustyrkir til safnmanna.
Byggðasafn Austur-Skaftfellinga á Höfn var formlega opnað 6. júní, en
það er til húsa í Gömlubúð, sem gerð hefur verið í stand og flutt, svo sem frá
hefur verið skýrt áður. Er þetta hið prýðilegasta safn og vel upp sett, en þar er
einkum mikið af smíðisgripum og hagleiksverkum Skaftfellinga. Safnvörður
er Gísli Arason. Var þjóðminjavörður viðstaddur opnun safnsins, en þar var
mikill fjöldi heimamanna úr sýslunni saman kominn og glöddust menn mjög
yfir þessum áfanga.
Þá má geta þess hér, að dagana 26. og 27. apríl var haldinn fundur for-
stöðumanna byggðasafnanna og starfsfólks Þjóðminjasafns og Árbæjarsafns
í Árbæjarsafni, þar sem rædd voru safnamál og söfnin og starfsemi þeirra
kynnt. Var svo ráð fyrir gert, að fundur þessi yrði upphaf slíkra reglulegra
kynningarfunda safnfólks, sem mjög brýnt er að halda, enda eru safnamál á
landsbyggðinni mjög að eflast og starfsemi safnanna víðast að komast í
fastara form.
Tœknisafn og sjóminjasafn
Fundur var haldinn i Árbæjarsafni 12. maí um málefni tæknisafns og
boðið til hans ýmsum þeim forstöðumönnum stofnana og félaga, sem ætla
mátti að áhuga hefðu á að stuðla að uppbyggingu slíks safns. Var síðan kann-
aður möguleiki á að fá lóð fyrir tæknisafn, helst í nánum tengslum við Ár-
bæjarsafnsvæðið, og rætt við Umhverfismálaráð og Skipulagsnefnd Reykja-
vikurborgar, og þar kom einnig inn í umræður land fyrir hugsanlegt lands-
byggðasafn á sama svæði. Ekki tókst að fá ákveðin svör við þeirri málaleitan
og virðist svo, sem bíða þurfi eftir skipulagsákvörðunum um þetta svæði. En
haldið hefur verið áfram að draga að ýmsa hluti og minjar, sem gætu orðið
uppistaða tæknisafns í framtíðinni.
Menntamálaráðherra skipaði nefnd til að vinna að framgangi sjóminja-
safns og eru í henni Alexander Stefánsson alþm., Bragi Sigurjónsson fv.
alþm., Sverrir Hermannsson alþm., Runólfur Þórarinsson fulltrúi og Gils