Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1901, Blaðsíða 54

Eimreiðin - 01.05.1901, Blaðsíða 54
T34 daglega líf, þannig, að markmið hans verður ekki að eins það, að kenna mönnum að deyja, heldur líka hitt, að kenna þeim að lifa. En þessa atriðis hyggjum vér, að ekki hafi verið gætt sem skyldi í eldri prédikunum vorum. Hvað formið snertir á prédikunum þessum, þá er það auðsætt, að höfundur þeirra hefir ekki gjört sér neitt far um að fylgja vissum listar- reglum. þannig verða menn t. d. hvað innganga prédikananna snertir, varir við, að þeir eru stundum styttri, stundum lengri, og slundum kemur það enda fyrir, að byq'að er á sjálfu umtalsefninu, án nokkurs inngangs. En alt slíkt er að eins smámunir. þ>að, sem mest er um vert, er að prédikunin sé vönduð að framsetningu og frágangi, og að einhver viss aðalhugsun gangi sem rauður þráður í gegn um hana. En það á víst fullkomlega heima um prédikanir þessar. Vér viljum því vona, að þær vinni vinsældir landsmanna vorra, og að höfundur þeirra fái upp- fylta þá ósk sína, sem verið hefir hans heitasta, þegar hann sendi þær frá sér, »að þær megi verða kristindómslífi þjóðar vorrar til stuðnings, fái laðað sálir lesendanna að guðs orði, hjálpað mönnum til þess að átta sig svo á hinum kristilegu trúarsannindum, að þeir í trú og til- beiðslu beygi sig fyrir lávarði lífsins, drotni vorum Jesú Kristi«. /■ P- SVAVA. Alþýðlegt mánaðarrit. IV. árg. Ritstjóri: G. M. Thompson. Gimli. Man. 1899—1900. Að því er prentun og pappír snertir, tekur »Svava« smátt og smátt framförum. Samt er henni enn þá ábótavant í því efni, eins og að undanförnu. En það er lofsvert, að hún reynir að taka sér fram, þótt hún eigi á margan hátt við þröngan hag að búa. Efnið í þessum árg. »Svövu« er, eins og venja hennar er til, mestmegnis þýðingar: Skáldsögur og greinar, þýddar, úr enskum tíma- ritum. Fáein lagleg kvæði prýða hana. J>au eru eftir J. Magnús Bjarnason, Jón Kjærnested og skáldkonuna Huldu. í þessum árg. »Svövu« er íslenzk skáldsaga, er nefnist: aVísitazia. Saga eftir Guðmund Friðjónsson«. Um sögu þessa skal farið nokkr- um orðum. 1. Ytri umgjörð sögunnar er mjög góð. Landlýsingar, loftlýsingar og veðurlýsingar eru víða mjög fallegar og skáldlegar. Málið ;er víðast hvar ágætt, þótt það sé stundum nokkuð »tilgerðarlegt«. I þessum lýsingum er íþrótt höfundarins fólgin. Hann hefir mjög mikið vald á íslenzkri tungu og dregur oft ágætlega vel einstaka drætti í lýsingum sínum. En hann virðist stundum skorta þol og »smekkvísi«, til þess að sameina alla drættina í eina heild og mynda lýsingar, sem séu sönn snildarverk. 2. Innri umgjörð sögunnar er miklu lakari. Mannlýsingar hans eru mjög ófullkomnar. Þannig er alls engin lýsing af »biskupnum, sem vísiterar«. f’að er talað í sögunni margt ilt um biskupinn á bak. Sjálfur kemur hann að eins einu sinni fram á sögusviðið, og þá er lýs- ingin á honum þannig: »Biskupinn reið í hlaðið með fylgd sinni« . . . »f>egar biskup var stiginn af baki á hlaðinu, tók hann hattinn af höfð- inu, hélt honum yfir kolli sér og heilsaði fólkinu. Allur lýðurinn hneig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.