Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1901, Síða 2

Eimreiðin - 01.05.1901, Síða 2
82 engilhreinu sakleysi í huga þínum. Vakandi og sofandi skal þig um hana dreyma.« Lofaðu mér heldur að sofna aftur,« sagði sálin. »Ástin fyrn- ist. Eg sá það í mannheimum. Eftir nokkur ár yrði hugur minn við alt annað bundinn. Annars væri ég ekki karlmaður.« »Pá geri ég þig að konu.« sagði Drottinn, »og gef þér þann manninn, sem hjarta þitt þráir. Ljúfasta nautn þín skal vera að gera daga hans dýrðlega, vefja um hann ástríkinu, veita kærleik- ans lífsvatni inn í sál hans, láta sólargeislana leika sér alt í kring- um hann, svo að hvergi beri skugga á.« »Lofaðu mér heldur að soína aftur,« sagði sálin. sÞegar hugur hans hverfur frá mér, mæni ég á eftir honum með tár í augunum og sorg í hjartanu. Annars væri ég ekki kona. Eg hefi séð það í mannheimum.« »Vandfýsin ertu,« sagði Drottinn. »Petta býð ég þó ekld öðrum en óskabörnum hamingjunnar. Samt ætla ég að bjóða þér það, sem enn betra er. — Eg gef þér kærleikann til allra manna. Að því einu skal þrá þín lúta, að fá gert alla menn vitra og góða. Hvern volaðan vesaling, hvern heimskan sjálfbirging, hvern misk- unarlausan mannníðing skaltu elska eins oh sjálfa þig. Allar þínar hugsanir skulu vera hugsaðar fyrir aðra menn. Pú skalt gefa þeiin alt, sem þú átt, auðæfin þín, fötin þín, matinn þinn, sálarfriðinn þinn.« »Fæ ég þá líka að njóta ástríkis annarra manna?« spurði sálin. »Nei,« sagði Drottinn. »Nú ertu að verða of heimtufrek. Eg er ekki að senda þig til himnaríkis heldur til mannheima. Par getur ekki einu sinni guð almáttugur vakið ást á þeim mönnum, sem elska aðra. Pví heitar sem þú elskar mennina, því sannfærð- ari verða þeir um, að þú sért annaðhvort fantur eða flón. feir rægja þig þá og svívirða á allar lundir, sjá ofsjónum yfir hverri spjör, sem þú hylur með nekt þína, hverju hlýlegu orði, sem mönn- um verður af vangá að segja um þig, hverju ánægjubrosi, sem um varir þínar kann að leika. Krossfesti þeir þig ekki, þá er það af því, að þeir hafa ekki manndáð í sér til þess. — En alt þetta skaltu geta borið hugrökk og með ljúfu geði, af því að þú elskar mennina.« »Lofaðu mér heldur að sofna aftur,« sagði sálin. »Vandfýsin ertu,« sagði Drottinn. »Petta býð ég annars engum.«

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.