Eimreiðin - 01.05.1901, Blaðsíða 28
io8
tími konunnar er um 40 vikur. Mestan hluta þessa tíma notar
fóstrið til vaxtar og fullkomnunar hinna einstöku lífiíæra, sem eru
lengi að ná þeim þroska, sem þau hafa við fæðinguna.
Á seinni hluta fósturlífs er maðurinn mjög líkur fóstrum
ýmsra apategunda. Líkaminn er allur loðinn og enn vottar fyrir
stuttri rófu; hún er að vísu horfin við fæðinguna, en þó berum
vér stöðugt menjar hennar í þeim fjórum rófuliðum, sem sjást á
beinagrind vorri. Maðurinn fellir hárin að mestu á undan fæðing-
unni, en aparnir eru loðnir alla sína æfi.
Fiskur.
Salamandra. Skjaldbaka.
Hæns.
♦
Hinar fornu hugmyndir manna um, að dýrið væri þegar í
egginu fullmyndað með öllum limum og líífærum, hefur orðið að
víkja úr sessi fyrir þeirri kenningu, sem er miklu sennilegri, að
dýrið sé í upphafi mjög ófullkomið, aðeins ein frumla, sem hafi
klofnað í fleiri og fleiri, og þannig myndað fóstrið, sem síðan
hefur vaxið og eftir ýmsar myndbreytingar náð því útliti og innri