Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1901, Blaðsíða 32

Eimreiðin - 01.05.1901, Blaðsíða 32
I 12 og heldur ekki séra Matthíasar. En í leiknum eru ýmsar hjápersónur vel sýndar: ágæt kerling, nokkrir stúdentar o. s. frv. Aftur er Jón Arason sannarlegt mikilmenni. Hann hefir einu sinni áður hrifið séra Matthías, þegar hann orti kvæðið, sem hann lætur hinn aldna biskup flytja daginn, sem hann var höggvinn. Kvæðið er ljótnandi. Skáldleikurinn er um æfilok Jóns Arasonar. Hinn hálfsjötugi biskup hefir orðið fyrir rangsleitni af Danakonungi. Hann vill ekki þola »ríkra manna ofstopa« og býst til að verja rétt sinn. Allir höfðingjarnir í biskupsdæmi hans veita honum örugt fylgi og fremst af öllum synir hans, séra Björn og Ari lögmaður. Hann ríður til alþingis með 400 manna. Þar slær í harða sennu, en hinir lúthersku og konunghollu Sunnlendingar verða að lúta í lægra haldi fyrir afli Norlendinga. Jón Arason og synir hans láta samþykkja, að Gamlisáttmáli skuli gilda og á þeim grundvelli skuli allir byggja vörn sína. Frá alþingi ríða þeir í Skálholt, biskupssetur mótmælenda. Biskupinn þar, Martein Einarsson, hafa þeir þegar á valdi sínu og allir aðrir, prestar og höfð- ingjar, verða að lúta boði þeirra og banni. Svo greinilega hreinsar Jón Arason til á staðnum, að hann lætur grafa upp bein »villumanns- ins« Gissurar Einarssonar og jarðsetja þau utan kirkju. En þann, sem hann hefði átt að halda sem fastast, lét hann lausan. Gálaust loforð! — og hans hættulegasti mótstöðumaður, Daði Guðmundsson, gengur úr greipum honum. Jón Arason ríður nú heim til Hóla og ætlar nú líka að tryggja sig gegn þessum mótstöðumanni. En Daði verður fyrri til og ræðst á hann, er honum hefir ekki tekist að halda flokki sínum saman. Bæði biskup sjálfur og synir hans eru teknir höndum. En það er ekki hægt að dæma þá fyrri en næsta alþingi kemur saman, og nú er spurningin, hver eigi að taka að sér að geyma þá þangað til. Enginn vill verða til þess Enginn þorir það. Þá segir séra Jón Bjarnason lágt og dimt: »Öxin og jörðin« — og svo er hinn grá- hærði biskup og hans gjörvulegu synir teknir af lífi án dóms og laga méðan sívaxandi roði rís upp frá Heklutindum, sem verða rauðir sem blóð og virðast boða mikil tíðindi. Þetta er í stuttu máli efni leiksins, sem í öllu verulegu þræðir við- burðasöguna eins og hún gerðist. En skáldleikurinn, sem höf. hefir siníðað úr þessu efni, er engan veginn gallalaus. Fyrsti gallinn er sá, hve lítið nútíðarsnið er á leiknum, að því er snertir allar listareglur. Nánasta fyrirmynd séra Matthíasar að þessu leyti' er augsýnilega Shakespeare, — enda hefir hann þýtt nokkur af leikritum hans. En af mikilmenninu enska geta menn ekki lært smá- muni listareglanna; í þeirri grein yrði Henrik Ibsen betri kennari. Séra Matthías notar oft eintöl. Annar þáttur byrjar hjá honum með sýning, sem óljóst minnir á samtal þjóna andstæðinganna í »Rómeó og Júlía«; þær persónur, sem hér eru sýndar (Atli og Eysteinn), standa annars í engu sambandi við ganginn í leiknum. í leikinn er fléttað inn gaman- sýningum, sem virðast hafa þann einn tilgang, að varpa dálítilli glætu inn í harmsögumyrkrið. Látum nú vera að persónur leiksins við og við fara að kveða ljóð — það er hvort sem er gamall og góður ís- lenzkur siður. En afarskringilegt verður það þó, þegar allur flokkurinn, áður en hann hefur alþingisreið sína, fer að syngja:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.