Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1902, Síða 15

Eimreiðin - 01.01.1902, Síða 15
'5 efnum. Hann hélt áfram kennimannlegu starfi, að því leyti, að hann gaf út prédikanir, hann skýrði nánar og rökstuddi hinar ein- kennilegu skoðanir sínar á veraldarsögunni og gobafræði Norður- landa, hann orti fjöldann allan af kvæðum, ritaði timaritsgreinar um bókmentir o. m. fl. og tók sér loks fyrir hendur að þýða Dana- sögu Saxa, hina latnesku, Heimskringlu Snorra Sturlusonar og Bjóvúlfsdrápu úr engilsaxnesku. En öll þessi ritstörf áttu sam- rnerkt að því leyti, að þau beinlínis eða óbeinlínis voru runnin af rótum hinnar einkennilegu kristilegu-norrænu eba kristilegu-sögu- legu lífsskoðunar, sem var ríkjandi hjá honum. Eins og að líkindum ræður, var klerkastéttin Grúndtvíg mjög andvíg. Klerkarnir gátu ekki eftir aðfarir hans taíið hann af sínu sauðahúsi, og þeir reru að því öllum árum, að hann fengi ekki prestslega stöðu í Kaupmannahöfn. þeir höfðu beyg af þessum unga og óstýriláta stéttarbróður, sem vofði yfir þeim eins og sverð reiðinnar með sínar ströngu og hlífðarlausu kröfur, jafnskjótt og hann sá þá sveigja út af réttri braut. En þrátt fyrir alla mót- spyrnu af þeirra hálfu, komst hann samt að sem aðstoðarprestur við Frelsarakirkjuna. Fyrst framan af gekk alt skaplega og skikk- anlega, en það hélzt ekki lengi. Um líkt leyti hafði skynsemis- trúarflokknum bæzt nýr maður, framgjarn og fjölhæfur. Pað var Henrik Nikolai Clausen, háskólakennari. Hann var þegar frá upp- hafi sjálfkjörinn forvígismaður þessarar stefnu og komst brátt í mikið álit. Peim, sem þektu þá báða, Grúndtvíg og hann, þótti fyrirsjáanlegt, að þeim mundi lenda saman fyr eða síðar, og þess var heldur ekki langt að bíða. Árið 1825 gaf Clausen út rit um samanburð á kirkjustjórn, kenningu og kirkjusiðum kaþólsku og lúthersku kirkjunnar, og varð ritið þeirn að ágreiningsefni. 2 dög- um eftir að ritið kom út, svaraði Grúndtvíg með bækling, sem hann kallaði »Svar kirkjunnar«. Bæklingurinn var mjög sár- og bituryrtur og Grúndtvíg játaði sjálfur síðar, að það hafi verið tilgangurinn, að láta til skarar skríða með þeim og að knýja kirkju- stjórnina til ýtarlegrar rannsóknar á því, hvor flokkurinn hefði rétt- ara fyrir sér. Petta var því í raun og veru ekki persónuleg deila milli tveggja manna, heldur milli tveggja andstæðra trúarskoðana, milli hinnar föstu, ströngu biblíutrúar og hinnar köldu og bragðdaufu skyn- semistrúar. I bæklingnum fer Grúndtvíg mjög óvægilegum orðum um mótstöðumann sinn og ber honum það á brýn, að hann, guð- fræðiskennarinn við háskólann og leiðtogi hinnar ungu mentakyn-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.