Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1902, Blaðsíða 76

Eimreiðin - 01.01.1902, Blaðsíða 76
76 í kvæðum hans, og kemst höf. þar að þeirri niðurstöðu, að hún hafi verið mjög lík húsaskipun Islendinga á söguöldinni, eins og henni sé lýst í bók dr. Valtýs Guð- mundssonar. Pannig álítur hann að höll Odysseifs eða p.£Yapov Grikkja hafi verið hér um bil alveg eins og íslenzka stofan var í fornöld, og tilfærir hann marga staði úr kvæðum Hómers þessu til sönnunar og eins myndir af fornrústum, er fund- ist hafa frá elztu tímum Grikkja. Hann vitnar og til ýmsra annarra merkra vísinda- manna (grískufræðinga), sem komist hafa að líkri niðurstöðu, og tekur svo upp mynd af íslenzkri stofu úr ritgerð dr. V. G. »Den islandske Bolig i Fristatstiden«, sem hann álítur að eins vel geti sýnt, hvernig gríska höllin hafi litið út. Til sam- anburðar eru og myndir af grískum fornrústum o. fl. UM ÍSLENZKAR KONUR hefir frú Agnes Zimsen (ekkja konsúls N. Zimsens í Rvík) skrifað langa grein í »Kvindernes Blad« (aukablað við »Nationaltidende«). Greinin er í 4 köflum (6., 13., 20. og27.júní 1901) og er fyrsti kaflinn um íslenzkar fornaldar- og miðaldakonur, annar um ís). nútíðarkonur, heimilislíf þeirra og starf- semi andlega og verklega, þriðji um kvennaskóla, kvennablöð og kvennskáld, og hinn fjórði um ísl. kvennfélög og starfsemi þeirra. Greinin er rituð af einkarhlýjum hug og satt og rétt skýrt frá öllu, en því miður hafa mörg af hinum íslenzku nöfnum afbakast mjög í prentuninni, auðsjáanlega af því, að frúin hefir ekki sjálf átt kost á að lesa prófarkir af greininni, því afbakanirnar eru allar þannig lagaðar, að þær bera með sér, að nöfnin hafa verið rétt í frumhandritinu. Það er vel gert af frú Z. að fræða löndur sínar am íslenzka kvennfólkið og starfsemi þeirra. — Sama kona hefir og þýtt þjóðsöng vorn »Eldgamla ísafold« á dönsku, en ekki er sú þýðing gallalaus, þó sumt í henni hafi tekist allvel. BÁBILJUR UM NOREG OG Í3LAND heitir grein, sem prófessor B. KahLe í Heidelberg (sá er ferðaðist á íslandi hérna um árið) hefir ritað í »Beilage zur All- gemeine Zeitung« (Munchen 17. jan. 1902). Greinin er í tveimur köflum og er hinn fyrri aðallega þess efnis, að sýna fram á, hvílíkar fjarstæður og lokleysur oft megi finna í lýsingum manna á fjarlægum og afskektum þjóðum, eins og t. d. íslendingum, og hversu lífseigar þessar vitleysur séu, þegar einu sinni er búið að unga þeim út. Mörg ágæt dæmi þessa frá eldri tímum megi finna í »Landfræðissögu« dr. I3. Thóroddsens, sem nú sé komin út á þýzku. Og sama sé enn uppi á teningnum og sé ekki auð- gert að fá slíkt leiðrétt. Sem dæmi þess nefnir hann bullgrein, sem staðið hafi í >»Volkszeitung« í Berlín 28, nóv. 1890. Hann hafi sent blaðinu leiðrétting, en fengið liana endursenda með þeirri athugasemd, að lýsing höfundarins í »Volkszeitung« komi heim við lýsingu eftir Max Nordau, sem hafi sjálfur dvalið tveggja mánaða tíma á íslandi 1874. Prófessor Kahle kveðst svo hafa gert aðra tilraun og sent öðru blaði í Berlín leiðrétting sína og bætt við leiðrétting á lokleysum Nordau’s. En það hafi farið á sömu leið. Blaðið þóttist ekki hafa rúm fyrir leiðréttingarnar. Líkt ætlaði að ganga með að koma að grein á móti ritgerð um siðalögmál íslendinga og Norðmanna í fornöld eftir Adalbert Svoboda í tímaritinu »Das freie Wort« (5. des. 1901). Próf K. sendi ritstjórninni leiðréttingar á ýmsu í þeirri grein, en fékk þær endursendar. En nú hefir hann loks komið þeim að í »Allgem. Zeitung« og eru þær aðalefnið í síðari kaflanum af grein hans þar. En með því sá kaflinn er nokkuð sérstaklegs efnis, og fremur vísindalegs en alþýðlegs, viiðist ekki ástæða til að skýra frekar frá efni hans. V. G.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.