Eimreiðin - 01.01.1902, Blaðsíða 34
34
og stingur í stúf við eldri skoðanir. Meðal annars var ráðaneyt-
inu send áskorun frá mótstöðumönnum skólans þess efnis, að svifta
hann opinberum styrk. fegar þetta kvisaðist, tóku sig til ýmsir
af fyrverandi lærisveinum Kolds og sendu skriflegt álit sitt um
skólann til ráðaneytisins, og hljóðar vitnisburðurinn í stuttu máli
á þessa leið:..........»Vér erum sannfærðir um, að hver maður
með meðalhæfileika, sem dvelur við skólann í 5 mánuði og leggur
sig til við námið með kostgæfni, getur á þessum tíma aflað sér
viðunanlegrar þekkingar á veraldarsögunni og komist vel niður í
sögu Danmerkur. í móðurmáli sínu fær hann þá tilsögn og æf-
ingu, að hann getur lesið hverja bók á dönsku máli sem vera
skal sér til verulegs gagns og ritað móðurmálið svo vel sæmi
hverri almennri borgaralegri stöðu í lífinu. I skólanum er farið
yfir úrval af skáldritum Dana, svo lærisveinarnir fá gott yfirlit yfir
bókmentir þjóðar sinnar, að því er skáldskap snertir. Enn fremur
er þeim gefinn kostur á að kynnast helztu löndum og þjóðum og
aðalatriðum eðlis- og efnafræðinnar. Verklegar æfingar í land-
mælingum og búnaði eru einnig haldnar, og þeir, sem óska þess,
fá tilsögn í söng, ensku og þýzku. Petta, sem hér hefur verið
talið skólanum til gildis, er þó í sjálfu sér engan veginn aðalkostur
hans, því hann setur sér það ekki fyrir mark og mið, að troða
svo og svo miklum þurrum og dauðum lærdómsforða inn í læri-
sveinana, heldur hitt: að vekja hjá þeim reglulegt innra líf, að
beina athygli þeirra að þeim kröftum, sem búa inni fyrir hjá þeim
og kenna þeim með eðlilegri og látlausri uppfræðslu að beita þeim
í þarfir lands og þjóðar. Petta hefur skólinn sett sér fyrir mark
og mið og vér þykjumst mega fullyrða, að honum hafi tekist að
ná því.«
Pað fór svo sem Kold hugði, að hann tók sig upp enn þá
einu sinni og flutti nu skólann til Dalum, skamt þaðan, er hann
hafði áður staðið. Skólahúsið var rifið og nágrannabændurnir
önnuðust flutninginn kauplaust. Petta sýnir bezt, hve vel Kold
hafði komið sér við þá, því Fjónbúar eru sagðir manna tregastir
á að leggja fram hesta og aktygi og hreyfa þau ekki nema fyrir
vildustu vini sína. Pegar Kold var búinn að koma sér vel fyrir
í þessum nýja skóla, skrifaði hann einum af kunningjum sínum á
þessa leið:. »Nú er ég búinn að koma mér upp skóla, sem er
eins og konungshöll á að líta. Húsið og jörðin, sem fylgir skól-
anum, hafa kostað 50,000 kr., og bezt af öllu er að skólinn borgar