Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1902, Blaðsíða 66

Eimreiðin - 01.01.1902, Blaðsíða 66
66 störf áður en hann fór að hátta. Pegar klukkan var nýbúin að slá 12 og alt lá í fasta svefni í húsinu, heyrði hann alt í einu eitthvert þrusk, og virtist honum hljóðið koma frá hliðarherberg- inu. Honum datt þá í hug, að menn kynnu í gáleysi að hafa lokað köttinn þar inni, og hann gæti nú ef til vill eyðilagt líkin fyrir honum. Hann fór því á stjá með ljós í hendinni, til þess að vita, hvaðan þetta þruskhljóð kæmi. Pað er hægra að hugsa sér en að lýsa því með orðum. hve forviða eða öllu heldur skelkaður hann varð, þegar hann sá, að pokinn, sem líkin vóru í, var rifinn í sundur í miðju. Junker gekk nær og sá þá, að annaö líkið var horhð. Bæði gluggarnir og dyrnar vóru harðlæstar, svo ómögu- legt virtist, að neinn hefði getað rænt líkinu. Junker varð felmt við, skimaði alt í kringum sig í herberginu og kom loks auga á líkið, sem lá í kuðung í einu horninu. Junker stóð eitt augnablik grafkyr, því líkið virtist að stara á^hann. Pá gekk Junker fyrst nokkur skref til hægri og svo nokkur skref til vinstri, en altaf fylgdi augnaráð líksins honum eftir. Nú fór heldur en ekki að fara um prófessorinn og hann tók því að hafa sig á brott, en gekk þó aftur á bak, svo að hann gæti séð, hvað líkinu liði. Hann hélt á ljósinu í antiarri hendinni. en með hinni fálmaði hann eftir dyrunum og fann þær bráðlega. En þá reis afturgangan á fætur og veitti honum eftirför. Hann sá andlitið nábleikt og skrokkinn allsnakinn þokast áfram. Lágnættis- stundin, er þessi atburður varð, og dauðakyrðin í kringum hann ásamt öðru fleiru lögðust á eitt með að vinna bug a hugrekki hans. Honum varð svo aflfátt, að hann gat ekki haldið á ljósinu, en misti það og það slöknaði. Hann tók þá til fótanna, hljóp inn í herbergi sitt og fleygði sér upp í rúmið. En afturgangan kom jafnharðan á hæla honum og óðar en varði lá hún við rúmstokk- inn og faðmaði fætur hans. »Sleptu mér, hver sem þú ert!« æpti Junker. Afturgangan slepti takinu og hneigði sig djúpt. Svo fór hún að reyna að tala, en kom lengi vel engu orði upp. Loksins tókst henni að stama út úr sér með veikri röddu: »Kæri böðull, bezti böðull! miskunnaðu þig yfir mig!« Nú fór Junker að skilja hvernig í öllu lá, og náði sér skjótt attur. Hann sagði nú glæpamanninum, hver hann væri og lét eins og hann ætlaði að fara að kalla á einhvern af fólkinu í húsinu. »Ætlið þér að steypa mér í glötun?« spurði afturgangan. »Ef
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.