Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1902, Síða 26

Eimreiðin - 01.01.1902, Síða 26
2Ö seinna varð mér það ljóst, að áður en ég fór sjálfur að fást við alþýðufræðslu, þurfti ég fyrst á sjálfum mér að komaSt að raun um mátt hins lifandi orðs til að hræra hjartað og til að gera menn glaða, frjálsa og góða, til að innræta mönnum tilfinningu um, að þeir eru ekki í heiminn bornir til að rífa niður og gera ógagn, heldur til að byggja upp í kærleika og sameiningu. Pað var þetta, sem ég þurfti að komast að raun um, áður en ég tókst á hendur að fræða alþýðuna, og svo var hitt annað, hvort ég væri fær um að vekja aðra til lífs með orðum frá mínum eigin vörum.« Á barns- aldri var honum komið í alþýðuskóla, eins og lög gerðu ráð fyrir, en eftir því sem hann sjálfur segir, græddi hann lítið á skólaver- unni. »Alt sem við lærðum,« segir hann, »voru annarlegar skoð- anir, sem var klínt utan á okkur, án þess að þær hefðu nokkur tilsvarandi áhrif á hugsanir okkar og því síður líf okkar. ♦ Hann varð því fljótt leiður á skólanum og varð þeirri stundu fegnastur, er hann slapp úr honum á daginn. I þorpinu voru nokkrar kerl- ingar, sem sögðu honum draugasögur og æfintýri, og föðursystir hans sagði honum stundum helgra manna sögur. »Mér fanst eins sólskinið væri hlýrra og bjartara á þessum heimilum en annars- staðar,« segir hann. Pegar hann var 13 ára gamall tókst hann sjálfur á hendur að halda barnaskóla, en honum brá heldur en ekki í brún, þegar hann sá, að flest börnin voru stærri og sterk- legri en hann, því hann var lítill og væskilslegur. Hann tók þá það ráð, að hann stóð fram og hélt svo látandi tölu: »fið eruð miklu stærri og sterkari en ég, og ef við færum að fljúgast á, þá þá hefðuð þið sjálfsagt við mér. En mér dettur ekki í hug aö fara að berja ykkur, og þess vegna vona ég líka að þið berjið mig ekki. Aftur er ég miklu fróðari en þið, og ef þið viljið vera skynsöm, þá ættuð þið að reyna að læra eitthvað af mér.« Eetta er líklega sú einkennilegasta ræða, sem nokkur kennari hefur haldið fyrir skólabörnum, en hún hreif. 18 ára gamall komst hann á kennaraskóla. Honum gekk námið heldur stirt fyrst framan af, en nokkru síðar vaknaði hann til umhugsunar á trúarefnum og við það var eins og skifti um fyrir honum. »Eg fann það á sjálfum mér,« segir hann, »að hið lifandi orð innifelur í sér mátt til að gera hjörtun glöð, og ég komst einnig að raun um, að guð hafði gefið mínum eigin orðum þennan mátt, eða lagt mér þau orð í munn, sem höfðu mátt í sér til þess. Upp frá þeirri stundu einsetti ég mér að komast

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.