Eimreiðin - 01.01.1902, Blaðsíða 45
45
káki. Hann var manna andríkastur og ræöu hans brá oft fyrir
fögrum og skáldlegum hugsjónum; en hann kunni þó vel aö
meta þýðingu vinnunnar og blessun hennar, og hann gerði sér
mikið far um að vekja hjá lærisveinum sínum ást og virðingu á
hverju því starfi, sem þeir tóku sér fyrir hendur. Að ytri ásýnd-
um var Tríer breiður og þéttvaxinn, en fremur lágur vexti. En
þegar ég sá hann innan um fjölmenni, þar sem þúsundir manna
hlustuðu hugfangnir á ræöu hans, sýndist mér hann bera höfuð og
herðar yfir alt fólkið. Hann andaðist snögglega um árslok 1893. —
Um sama leyti og skólinn í Vallekilde var settur á stofn, var
hinn forni Rödding-háskóli fluttur til Askov, rétt fyrir norðan
Askov-háskóli.
landamærin nýju. Árið eftir (1866) voru 2 nýjir háskólar stofn-
aðir, Testrup og Vrigsted, og voru þeir Nörregaard og Bágö,
fornvinir Tríers, stofnendur Testrupháskóla. Allir þessir skólar
hafa dafnað vel og standa nú með miklum blóma. Upp frá þessu
fer skólunum sífjölgandi. 1867 eru 7 nýjir settir á stoín, 1868 6
og 1869 2. Nú munu vera í Danmörku eitthvað um 80 háskólar
alls, en nokkrir þeirra eru hvorttveggja í einu, bæði búnaðarskólar
og alþýðuháskólar. I kringum 6000 manns (karlar og konur), að-
allega af bænda- og iðnaðarstéttinni, sækja árlega þessa skóla.
Peir mæta nú ekki lengur mótspyrnu frá hálfu þjóðarinnar og
stjórnarinnar, eins og fyrst framan af. Ríkissjóður ieggur þeim
árlega mjög ríflegan styrk og í staðinn áskilur stjórnin sér aðeins