Eimreiðin - 01.01.1902, Síða 46
46
lauslegt eftirlit, án þess að láta sér koma til hugar að blanda sér
í kensluna eða fyrirkomulag þeirra yfir höfuð. Hver sá háskóli,
sem getur sannað að hann hafi io fasta lærisveina, má búast við
að fá styrk. Úr amtssjóðunum er þar á ofan veittur ríflegur
styrkur til fátækra lærisveina.
Eftir að alþýðuháskólarnir voru búnir að ryðja sér svo til
rúms, að framtíð þeirra var trygð og nytsemi þeirra viðurkend
um alt land, var (1878) stefnt til allsherjar
háskólafundar í Kaupmannahöfn til að ræða
um uppástungu Grúndtvígs um allsherjarhá-
skóla, er væri eins og aðalból alþýðufræðsl-
unnar í Danmörku. Árangurinn af þessum
fundi var sá, að í Askov var efnt til nokk-
urs konar æðri alþýðuháskóla eða framhalds-
háskóla, þar sem háskólalærisveinunum var
gefinn kostur á að afla sér meiri og víðtæk-
ari menningar, en hinir skólarnir létu í té.
Forstöðumaðurinn fyrir þessum skóla er Lúð-
víg Schröder, einn af hinum fremstu og
merkustu forgangsmönnum alþýðuháskólastefnunnar. Til Askov-
háskóla er alt vandað sem mest má verða og kennararnir úrvals-
menn. Einn af þeim er Povl la Cour, sjálfsagt einhver sá bezti
og áhrifamesti alþýðukennari, sem Danir eiga.
Hann er djúpskygn vísindamaður og hug-
vitsmaður og nafnkunnur urn víða veröld
fyrir uppgötvanir sínar; en í Danmörku er
honum engu síður við brugðið fyrir mann-
kosti sína. Af þessum ástæðum er Askov-
háskóli mjög fjölsóttur og er nú venjulega
talinn fremstur allra alþýðuháskóla í Dan-
mörku. Námsgreinarnar eru þessar: Ver-
aldarsaga, Norðurlandasaga, biblíu-
saga og biblíuskýring, landfræði, eðl-
isfræði, efnafræði með verklegum æf-
ingum, náttúrufræði, stærðfræði, teikning, grundvallar-
lög Danmerkur og réttarfar, móðurmálið, bókmenta-
saga, bókfærsla, söngur og líkamsæfingar. Peir, sem
æskja þess, geta einnig fengið tilsögn í norrænu, þýzku og
ensku. Lærisveinar þeir, sem njóta þessarar framhaldskenslu í
Nörregaard.