Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1902, Page 69

Eimreiðin - 01.01.1902, Page 69
69 menn sent 3,7°° miljónir punda af mjólk, og úr henni hafa þau búið til 137 miljónir punda af smjöri, sem hefir verið 133 milj. króna virði. Árið 1901 vóru flutt 162,114,000 pund af dönsku smjöri tii Englands, sem vóru 162,012,000 króna virði, eða að meðaltali 998/io au. hvert pund. Með öðrum orðum: af öllu því smjöri, sem það ár var innflutt til Englands, kom 4'2,2°/o frá Danmörku, og að verðinu til var það 46,4°/o af öllu því, sem inn var flutt. Meðalverðið á dönsku smjöri á Englandi var 12,7 au. hærra en á smjöri ann- arra landa, svo að Danmörk fékk 20,588,000 kr. meira fyrir sitt smjör, en hún hefði fengið, ef meðalverðið heföi verið sama ög á smjöri annarra landa. Pá eru félagsslátrunarbúin eða hlutaslátranirnar. Fyrsta hlutaslátrunin var stofnuð í Hrossnesi (Horsens) 1887 og var P. Böjsen aðalfrumkvöðull þess. Nú eru hlutaslátranirnar 26 og nemur stofnfé þeirra og nytjafé 6^/2 miljónum króna. Hlut- hafar þeirra eru 64,900 og var árið 1901 í þeim slátrað 636,000 svínum og 10,000 nautgripum, sem vóru 39 milj. króna virði. Árið 1901 vóru útflutt til Englands 107,682,000 pund af dönsku fleski, sem var 58,544,000 kr. virði, og verður það að meðaltali 54,4 au. fyrir hvert pund. Meðalverðið á dönsku fleski er á Eng- 13 aurum hærra á hverju pundi en á fleski annarra landa. Danir fengu því 16 milj. kr. meira fyrir flesk sitt, heldur en þeir hefðu fengið, ef þeir hefðu orðið að sætta sig við sama meðalverö og önnur lönd. Pá er að minnast á eggin. »Hið danska hluta-eggjaútflutn- ingsfélag« var stofnað [885 og síðan hafa fleiri félög myndast. Alt fram að árinu 1890 vóru dönsk egg álitin léleg vara á Eng- landi, en nú er verð þeirra orðið jafnhátt frönskum eggjum, sem sé 116 aura fyrir hvert tvítygi (20) eggja, þar sem það landið, sem næst kemst (Kanada), fær ekki nema 110 aura. Meðalverð eggja frá öðrum löndum á Englandi er ekki nema 94,2 au., eða 22 au. minna fyrir tvítygið en af dönskum eggjum. Par sem nú Danmörk flytur 18 milj. tvítygja eggja til Englands, þá nemur þetta fyrir árið 1901 4 milj. kr. meira, en ef hún hefði orðið að sætta sig við meðalverð annarra landa. Danir hafa því á árinu 1901 fengið 40^/2 miljón króna meira fyrir smjör, flesk og egg, heldur en þeir hefðu fengið, ef borgunin hefði verið álíka og meðalverð annarra landa.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue: 1. tölublað (01.01.1902)
https://timarit.is/issue/178907

Link to this page:

Link to this article: Á Gammabrekku.
https://timarit.is/gegnir/991005578119706886

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

1. tölublað (01.01.1902)

Actions: