Eimreiðin - 01.05.1916, Blaðsíða 12
88
steypiböð herða og styrkja líkamann og afstýra mörgum sjúk-
dómum og kvillum. Við mörgum sjúkdómum koma vatnsbakstr-
ar að liði, bæði heitir og kaldir, oft frekar en nokkuð annað. í
mörgum minniháttar veikindum og kvillum geta menn sjálfir orð-
ið sér eða öðrum af heimilisfólkinu að liði með litlum efnum og
aðbúnaði og þurfa ekki á læknishjálp að halda, sem auk þess
mjög oft kemur að litlu haldi, ef aðhjúkrun sjúklingsins er mjög
ábótavant. Góð hjúkrun og aðhlynning sjúklinga er oftast langt-
um þýðingarmeiri fyrir líf og heilsu þeirra, en smixtúrur« og »pill-
ur« lyfsalans.
Vil ég ljúka þessum línum með nokkrum ráðleggingum til
þeirra, er grein þessa kynnu að lesa:
Á hverju heimili ættu að vera einhver böðunaráhöld,
svo að hver maður á heimilinu geti fengið sér bað eða þvegið
sér um kroppinn að minsta kosti einu sinni á viku, en helzt á
hverjum degi. Á hverju heimili ættu menn og að eiga dálítið
lyfjasafn, fyrst og fremst hægðalyf, nokkur styrkjandi meðul,
t. d. Hoffmannsdropa eða kamfórudropa, helzt eina eða tvær
flöskur af góðu portvíni eða konjakki, joðáburð og nokkur um-
búðabindi. Með þessum fáu læknislyfjum og hæfilegri notkun
bakstra og baða má komast af án læknishjálpar í ótalmörgum
sjúkdómstilfellum.
Á hverju heimili, þar sem sjúkdóm ber að höndum, ber að
fylgja þessum meginreglum:
Sjúklingurinn á að hátta sem skjótast niður í rúm,
er hann finnur til krankleika, og ekki rísa úr rekkju, fyr en hann
er aftur orðinn albata, að kalla má. Pað verður að sjá um, að
gott loft sé í herberginu, sem hann hvílir í, gluggi helzt opinn
bæði dag og nótt, en þó enginn súgur í herberginu, dyrnar
lokaðar og rúmfötin hlý og skjólgóð. Sjúklingurinn á oft að hafa
nærfataskifti, helzt í hvert sinn, er nærföt hans verða vot
af svita, og því stundum oft á hverjum degi. Það verður að sjá
um, að hann fái hægðir, helzt daglega; og verði það ekki af
náttúrunnar völdum sjálfkrafa, verður að gefa honum inn hægða-
lyf, og af þeim er amerísk olía (rícínus-olía) bezt og óskaðlegust.
Afar-áríðandi er, að sjúklingurinn hafi fult n æ ð i o g r ó, bæði á
sál og líkama, og á hjúkrunarkonan að sjá um það, og banna
allar óþarfa heimsóknir. Ef sjúklingurinn fellur í dá eða ó-
megin, er reynandi að þvo andlitið í köldu vatni og leggja