Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1916, Blaðsíða 70

Eimreiðin - 01.05.1916, Blaðsíða 70
146 málið enn betur. Á þeim þættinum má ekki sjást blettur né hrukka. En því gætum vér trúað, að einmitt hann yrði svo örðugur viðfangs í þýðingu, að ekki veitti af að hafa sig allan við, til að koma honum á góða íslenzku. V. G. ÁGÚST BJARNASON: YFIRLIT YFIR SÖGU MANNSAND- ANS. Vesturlönd. Rvík 1915 (Sig. Kr.). í’etta bindi segir sögu mannsandans um 5 alda skeið, frá hérum- 1300 til 1800. Er því skift í 4 aðalkafla: 1. Endurreisnartímabilið, 2. Siðbótartímarnir, 3. Heimsmyndin nýja og 4. Hin nýrri heimspeki. Aðalköflunum er svo skift í smærri kafla, og þeim aftur í greinar. Að rekja efni bókarinnar að öðru leyti, er ógerningur í stuttu máli. Verður því að nægja, að geta þess eins, að þar er skýrt frá umbrot- um mannsandans á þessu 5 alda skeiði á öllum sviðum andlegrar menningar, í heimspeki, trúmálum, bókmentum, listum, uppeldismálum og stjórnmálum. Þó er, eins og gefur að skilja, rúmsins vegna, mis- jafnlega langt farið í hverri grein. Þannig er t. d. listanna lítt getið, nema á endurreisnartímabilinu, og bókmenta, uppeldismála og stjórn- mála auðvitað aðeins að því leyti, sem þau skýra sögu mannsandans. Er jafnan fylgt þeirri reglu, að stikla aðeins á hæstu hnúkum heims- menningarinnar og veita mönnum þaðan útsýni yfir láglendið og þau umbrot og öldugang, sem stormbyljirnir frá þessum himinháu hnúkum hafa valdið. Virðist höf. nokkurnveginn hæfilega hafa takmarkað sig í hverri grein, og er þar þó oft úr vöndu að ráða, hvað með skuli taka og hveiju sleppa. Bókin er yfirleitt ágætis bók, fræðandi og skemtandi — sann- mentandi. Hún hefir meiri almennan mentunarforða að geyma, en nokkur önnur bók, sem út hefir komið á íslenzku, þegar öll bindin eru tekin í einu lagi. Og ekkert bókasafn á landinu, hvort sem það er smátt eða stórt, má án hennar vera. Því að þó að gera megi ráð fyrir, að ekki allir geti haft hennar jafnmikil not, þá munu þó í hverri sveit finnast mýmargir með svo miklum andlegum þroska, að þeir geti satt menningarþorsta sinn og auðgað anda sinn á lestri henn- ar, jafn-ljóst og lipurt og hún er rituð. Vér höfum sjaldan lesið nokkra fræðibók með meiri ánægju. Þó nóg sé til af útlendum ritum að ausa úr, þá er meiri vandi að rita slíka bók sem þessa og koma henni í viðunandi íslenzkan búning, en flestir munu gera sér í hugarlund. Málefnið er víða svo flókið, að allerfitt er að skýra frá því í stuttu máli, svo að framsetn- ingin geti orðið ljós og hverjum manni skiljanleg. Og þetta er því örðugra, sem svo fátt hefir áður verið um þessi efni ritað á íslenzku, svo að engin orð eru til í málinu yfir sæg af hugmyndum og hugtök- um, sem þar koma fyrir, og verður þá sífelt að mynda ný orð. En fram úr þessum örðugleikum hefir höf. tekist merkilega vel að ráða. Framsetningin er altaf ljós og mörg af nýyrðum hans einkar-heppileg. Að því hefir það stuðlað, að hann hefir ekki — eins og altítt hefir verið við myndun nýyrða — verið að stritast við að þýða hin út-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.