Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Page 16
kröfur um afurðir á grip. Auknar afurðakröfur á grip hafa
valdið því, að kjarnfóður er síaukinn hluti fóðursins. Sem
betur fer eiga vambargerlar auðvelt með að aðlaga sig margs
konar fóðursamsetningu, og því veldur þetta sjaldan vand-
ræðum. Samt sem áður er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir,
að því ólíkara sem fóðrið er hinu venjulega gróffóðri, því meiri
hætta er á meltingartruflunum. Enda hefur á seinni árum
komið á daginn að mikil kjarnfóðurgjöf getur sett vambar-
gerjunina úr lagi.
Löngu áður en kýr veikist, dregur slík fóðrun úr lyst hennar.
Lítil fita í mjólk stafar oft af lélegri samsetningu fóðurs og
gróffóðurskorti. Ekki er hægt að vega gróffóðurskort upp með
aukinni kjarnfóðurgjöf. Þó að nauðsynlegt sé, að fóður inni-
haldi næga orku, er hinn grófgerðari hluti þess ekki síður
mikilvægur, ef melting og mjólkurframleiðsla júgursins eiga
að vera eðlileg. Ef hlut kjarnfóðurs í þurrefni er haldið innan
40-60% marka, fara saman mikið át og eðlileg vambargerjun.