Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Síða 57

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Síða 57
Samkvæmt skipun stjórnar Rfl. Nl. hef ég starfað í svo- nefndri Heimöflunarnefnd, ásamt Heiðari Kristjánssyni bónda að Hæli í Torfalækjarhreppi A.-Hún. og Ara Teitssyni ráðunaut í S.-Þing. Höfum við mætt á þrem fundum á þessu ári og verður skýrsla nefndarinnar kynnt nánar síðar á fund- inum. Sat fund í nefnd um fóðurþarfir fyrir sunnan í júní. Þá skrifaði ég þrjár greinar i Frey, eina um heykögglagerð, aðra um innlenda fóðuriðju og þá þriðju ásamt Ólafi Guð- mundssyni fóðurfræðingi hjá Rala um sumarbeit mjólkur- kúa. Þá dvaldist ég tvívegis syðra í nokkra daga, bæði við upp- gjör á selenrannsóknum í samvinnu við Baldur Símonarson á Keldum og í heimsókn hjá fagbræðrum hjá Rala og BÍ. Þá hefur pöntunarfélagið gengið með svipuðu sniði og áður og kemur veltan væntanlega fram á reikningum félagsins. Flutningur í nýtt húsnœði: Það er töluvert verk að flytja, ekki síst heila rannsóknarstofu ásamt skrifstofum og tilheyrandi. Þetta er þriðja húsnæði stofunnar og er vonast ákveðið til þess að þar sannist orðtakið „allt er þegar þrennt er.“ Sem kunnugt er verður stofan og aðsetur Ræktunarfélags- ins framvegis á annarri hæð nýbyggingar að Óseyri 2 á Ak- ureyri, en þá hæð er BSE að byggja. Þegar þetta er ritað er flutningur vel á veg kominn og lítur ekki út fyrir teljandi tafir á heyefnagreiningum í haust, eða annarri starfsemi félagsins hans vegna. Þá stendur fyrir dyrum flutningur Búnaðar- bókasafnsins á Akureyri á sama stað, en að því standa BSE og Tilraunastöðin á Möðruvöllum, ásamt Rfl. Nl. Verður þá notað tækifærið til að koma betra skipulagi á safnið en verið hefur. f því skyni hefur verið ráðinn bókasafnsfræðingur, þegar þar að kemur. 59

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.