Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Page 24

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Page 24
lega fyrirskurðarhníf, sem til þess var smíðaður og naumast eða ekki notaður á öðrum vettvangi. Hvar hann átti uppruna sinn er óvíst, ef til vill í Ólafsdal, eins og ýmis önnur tæki, en þeir, sem almennt voru notaðir í okkar sveit, voru flestir smíðaðir af sveitungum, aðallega Halldóri á Melum og Sig- urði í Gullbringu. Stungugafflarnir leystu pálinn af hólmi. Þeir voru auðvitað allir innfluttir eins og kastgafflarnir, eftir að þeir komu til sögu, og eins og fyrr segir innfluttir með meðalgöngu Rækt- unarfélagsins. En svo voru það plógarnir, herfin og moldskúffurnar (hestrekurnar) sem komu til sögunnar í Svarfaðardal á þessari öld. Eg hef ekki fundið nein gögn, sem geta þess að plógur hafi komið í sveitina fyrr. Ef til vill hefur arðurinn rispað svarf- dælskan svörð á fyrstu öldum eftir landnám dalsins, en sér- heiti eins og „akur“ eða forskeyti nafnorða í sama dúr eða líkum, benda ekki til þess að akuryrkja hafi átt neina sögu í Svarfaðardal. Fyrstu plógförin innan dalsins má vel vera að Angantýr Arngrímsson frá Gullbringu hafi rist eftir að hann kom frá námi á Hólum um aldamótin. Hefur hann þá sennilega notað plóg frá Ólafsdal. En brátt komu flest tæki af því tagi úr smiðju sveitunga, sem fluttur var til Akureyrar, en það var Sigurður Sigurðsson frá Hæringsstöðum, sem á fyrstu ára- tugum aldarinnar var afkastamikill járnsmiður þar. Plógar hans, tindaherfi, lappaherfi, moldskúffur og fleiri tæki til landbúnaðar- og ræktunarstarfa, dreifðust víða um sveitir og þótti að þeim mikill fengur til efldrar verkmenningar vítt um land og ekki bara i okkar sveit. Þúfnasléttunin. Þótt hvatningar væru hátt á baugi um áratugi, sem brýndu menn til dáða við sléttun landsins, til þess að gera bústörfin auðveldari, bæði við ávinnslu og heyskap, voru ekki allir á einu máli um ágæti árangursins. Minntist ég þess vel að þá voru enn til góðir málsvarar þúfnanna. „Víst minnkar yfirborð landsins þegar sléttað er“ sögðu 26
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.