Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Page 50
\
plöntupinna. Gerð er nógu djúp hola til þess að ræturnar
hangi eðlilega og moldinni síðan þjappað vel að.
Það er mikið atriði að gróðursetja mátulega djúpt.
Vaxtarsprotinn í miðju plöntunnar má ekki fara í kaf og
jarðstöngullinn má ekki heldur standa upp úr moldinni.
Vökvun að lokinni gróðursetningu er óþörf, þegar plast-
dúkur er notaður enda á moldin að halda sér vel rök undir
honum.
Plönturnar verða stærri og þróttmeiri, ef þær eru gróður-
settar snemma og enn betri ef blómin eru fjarlægð fyrsta
sumarið. Er ráðlegast að gera það undir öllum kringumstæð-
um vegna þess hve sumarið er stutt hjá okkur. Sama er að
segja um allar renglur að þær verður að fjarlægja jafnóðum.
Jarðvegur og vökvun.
Jarðarber þrífast vel í ýmis konar jarðvegi en þó síst, ef hann
er mjög leirborinn. Þau vaxa best í lítið eitt sendnum, frjóum
moldarjarðvegi, sem heldur vel raka. Það er nauðsynlegt,
einkum um blómgunartímann. Verður þá að vökva oft ef .
þurrkar ganga. Vegna hættu á grámyglu er reynt að forðast
að bleyta plönturnar sjálfar. Þess er vandlega gætt að vökva
ekki yfir plönturnar heldur niður á milli þeirra með slöngu. Á
beðum með svörtu plasti er best að gera hæfileg göt á það fyrir
slönguna með stuttu millibili, stinga henni í gegn og vökva
undir plastdúkinn.
Ekki skal gróðursetja jarðarber aftur í sömu beðin, þegar
gamlar plöntur eru teknar burt og beðin hreinjuð. Nokkur ár
verða að líða á milli og eitthvað annað ræktað þar á meðan.
Að öðrum kosti getur berjatekjan farið ört minnkandi. Þetta
er nefnt jarðvegsþreyta og er lítið vitað um orsakir hennar.
Jarðarberjaplöntur eru ekki látnar verða gamlar. Sé ræktað
á svörtum plastdúk, eru þrjú uppskeruár talin hámarksaldur.
Fyrsta sumarið eftir útplöntun er ekki talið með. En með j
ræktun á opnum beðum geta plöntur í góðri rækt gefið góða
uppskeru í fimm ár eða jafnvel lengur.
Berjauppskera er breytileg en 1-1,5 kg af fermetra er talin
viðunandi uppskera í Noregi og 3 kg af fermetra þykir gott.
52