Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Page 103
ÞÓRARINN LÁRUSSON:
ÚR NIÐURSTÖÐUM
BÚREIKNINGA 1981
Myndir þær, sem hér eru birtar með góðfúslegu leyfi hlutað-
eigandi aðila, sýna einkar vel mikilvægustu niðurstöður
búreikninga í hnotskurn.
Heimildin er Ársskýrsla Búreikningaskrifstofu landbúnað-
arins 1981. Niðurstaða þessi er þó síður en svo einskorðuð við
þetta ár heldur hefur svo verið í aðalatriðum og mun vafa-
laust verða um ófyrirsjáanlega framtíð.
Með framlegð er átt við þá upphæð, sem eftir er af fram-
leiðslutekjum þegar búið er að greiða allan tilkostnað nema
fjölskyldulaun og vexti af eigin fé.
Varðandi sauðféð kann ýmsum að vera spurn hvers vegna
frjósemin ein er lögð til grundvallar framlegð. Það sem hins
vegar gerir þetta skiljanlegra, og raunar að snjöllum og
glöggum mælikvarða á afkomu búa, er sú staðreynd að eftir
því, sem lömbum fjölgar á kind frá einu búi til annars, eykst
fallþungi einnig og þar með að sjálfsögðu kjöt eftir á.
Eins og sjá má er framlegð um 300 kr. á kind þegar 1-1,1
lamb fæst á kind, en um 600 kr. þegar um og yfir 1,5 lömb fást
á kind. Miðað við svipaðan fastakostnað á 400 ærgilda búi,
hvort sem fleiri eða færri lömb fæðast á kind, er þarna um
300x400= 120.000 kr. tekjumun fjölskyldu að ræða. Til þess
að afurðaminna búið nái sömu tekjum þyrfti þar að tvöfalda
fjárfjöldann.
Á sama hátt má segja að á kúabúi, með 3000 lítra meðal-
105