Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 117
Ýmsar aðrar ferðir og fundahöld má til tína eins og hey-
sýnatökur í V-Húnavatnssýslu sl. haust og afhending niður-
staðna þar, jarðvegssýnatökuferð í A-Húnavatnssýslu sl. vor,
leiðbeiningaferðir vegna sláttutíma og heygæða og mælingar
í Vestur-Húnavatnssýslu á súgþurrkunarkerfum eins og fyrr
er getið.
Ný heimaöflunarnefnd.
Fremur lítið hefur borið á þessu máli, frá því að fundi þar um
í nóvember 1981 lauk, en þar skilaði fyrsta heimaöflunar-
nefndin af sér. Nú er aftur að vænta hreyfingar og er fundur
næstu daga með nýrri heimaöflunarnefnd, en í henni eiga
sæti ráðunautarnir Aðalbjörn Benediktsson og Einar E.
Gíslason ásamt Ragnari Jónssyni bónda í Fjósatungu,
Fnjóskadal, Suður-Þingeyjarsýslu. Er í ráði að nefndin setji
fram hugmyndir sínar um verkefni næsta ár á þessum aðal-
fundi.
Vörusala.
Pantanir í vörur í gegnum Ræktunarfélagið vaxa ár frá ári. Er
þessi starfsemi orðin það umfangsmikil að hún er farin að taka
of mikinn tíma að mati undirritaðs.
Þótt ýmislegt megi að þessari starfsemi finna, er það þó mat
flestra að gagnsemin hafi yfirhöndina, þannig að ekki þvkir
ráðlegt að leggja slíkt starf niður. Viðræður hafa farið fram
við Véladeild KEA að hún taki að sér innkaup og dreifingu,
en mál þetta verður væntanlega rætt nánar á fundinum.
Ymis slörf.
Starfa, ásamt Aðalbirni Benediktssyni, í nefnd á vegum
Ræktunarfélagsins, sem hefur það hlutverk að fá fram álits-
eða reglugerð frá Sauðfjárveikivörnum um færanlegar hey-
kögglunarsamstæður vegna hugsanlegrar smithættu. Fylgst
var með heykögglagerð Stefáns í Teigi og framgang þeirra
mála almennt, einkum í Húnavatnssýslum.
Með bréfi dagsettu 23. júlí 1982 fór Samband íslenskra
loðdýraræktenda fram á það við Ræktunarfélagið að það
119