Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1946, Page 5

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1946, Page 5
LANDSBÓKA S A F NIÐ 1945 5 Lestrarsalur er með gjöf íslendinganna í Edinborg, og hafa þegar verið athugaðir möguleikar á að fá sams konar filmur af íslenzkum handritum í Svíþjóð. Snemma á árinu eignaðist safnið amerískt lestæki fyrir mikrofilmur (film reader). Er það af beztu tegund og hefir reynzt ágætlega. Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að fá myndatökuvélar, en afhending þeirra hefir tafizt. Arið 1945 töldust gestir í lestrarsal Landsbókasafnsins 10511, en salurinn var opinn eins og áður frá kl. 1—7 síðdegis. í jan- úar 1946 var starfstíminn lengdur um 4 klukkutíma á dag og hefir salurinn síðan verið opinn frá klukkan 10 á morgnana til 10 á kvöldin að undanskildum matmáls- tímum frá 12—1 og 7—8. Hefir aðsóknin síðan aukizt allverulega. Lánuð voru í lestrarsal 18930 bindi prentaðra hóka og 4620 handrit, eða samtals 23550 bindi. Notkun handbóka, sem standa í lestrarsal, er að sjálfsögðu ekki talin hér með, en þar eru um 1500 bindi hóka, og eru sumar þeirra mjög mikið notaðar. Lestur skemmti- bóka í lestrarsal fer minnkandi og veldur því án efa, að atvinna er næg og ráð al- mennings til kaupa á slíkum bókum betri en áður. Lestrarsalinn sækja nú einkum fræðimenn, eins og sjá má af hinni tiltölulega miklu notkun handritasafnsins. Utlánssalur var opinn kl. 1—3 daglega og voru lánuð alls 5162 bindi. Takmörkuð hafa verið útlán á íslenzkum bókum meir en áður, bæði vegna þess, að nú fjölgar óðum þeim bókum, sem telja má ófáanlegar á bókamarkaði, og því meiri nauðsyn en áður að gæta þeirra vandlega. Einnig veldur það miklum óþægindum fyrir fræðimenn, sem sækja lestrarsalinn að staðaldri, ef eftirsóttar bækur eru vikum saman í útláni og eigi tiltækar í lestrarstofu, þegar á þarf að halda, en að jafnaði hefir safnið ekki nema eitt eintak af hverri bók til notkunar. Landsbókasafnið hefir löngum þótt stílfagurt hús og bæjarprýði og undu margir því illa að sjá það veðurbarið, grátt og guggið, eins og það hefir verið útlits hin síðustu ár. Síðastliðið sumar var húsið vandlega málað að utanverðu og var að því hin mesta búningsbót. Ákveðið hefir verið að leggja steinstétt meðfram veggjum hússins og lagfæra umhverfi þess að öðru leyti. Þegar hitaveita var lögð í húsið, losnuðu nokkrir smáklefar í kjallara, sem notaðir höfðu verið í sambandi við miðstöðvarhitunina. Þeim hefir nú verið breytt i bóka- geymslu, og fékkst þar hillurúm fyrir nokkrar þúsundir bóka. Það hefir þó ekki bætt úr skortinum á geymslurúmi til neinnar hlítar, því að enn eru hátt á annað hundrað kassar í kjallara hússins fullir af bókum, sem hvergi er hillurúm fyrir, og þeim fjölgar óðum, því að stöðugt verður að rýma fyrir nýjum bókum, sem við bætast. Verður nú óhjákvæmilegt að hraða sem mest brottflutningi Þjóðminjasafnsins og Náttúrugripa- safnsins, því að eins og nú er ástatt er mjög torvelt að vinna að umbótum í safninu vegna þrengsla. Ef vel væri, þyrfti einnig að sjá Þjóðskjalasafninu fyrir öðru húsnæði, því að þess verður ekki langt að bíða, að einungis tveir kostir verði fyrir hendi, ann- ar sá, að reisa stórhýsi handa Landsbókasafninu, hinn, að fá því allt húsið til umráða.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.