Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1946, Page 7
HALLGRÍMUR HALLGRÍMSSON
BÓKAVÖRÐUR
lézt í Reykjavík 13. desember 1945. Ilann var fæddur í Stærra-Arskógi við Eyjafjörð
14. september 1888. Voru foreldrar hans Hallgrímur Sigurðsson gagnfræðingur á
Reistará, síðar járnbrautarstjóri í Regina í Canada, og Friðbjörg Jónsdóttir, bónda
á Sauðá í Svarfaðardal, Jónssonar. Hallgrímur gekk í gagnfræðaskólann á Akureyri,
síðan í menntaskólann í Reykjavík og lauk þar stúdentsprófi 1912. Eftir það stund-
aði hann nám í háskólanum í Kaupmannahöfn og lauk þar meistaraprófi í sagnfræði
14. júní 1918. Hann var settur bókavörður við Landsbókasafnið 1. janúar 1919 og
skipaður 2. bókavörður 14. júní 1924. Gegndi Iiann því starfi til dauðadags.
Auk bókavarðarstarfsins fékkst Hallgrímur við kennslu og ritstörf og tók um skeið
nokkurn þátt í blaðamennsku og stj órnmálum. Hann kenndi við ýmsa skóla í Reykja-
vík og var forstöðumaður kveldskóla Kristilegs félags ungra manna í tólf ár. Hann
var formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur mörg ár og sinnti jafnframt blaða-
mennsku við „Tímann“ og síðar „Framsókn“. Hann skrifaði fjölda greina í blöð og
tímarit, einkum um söguleg efni og stjórnmál, en auk þess liggja eftir hann sjálfstæð
rit, svo sem Þingstjórn (1927) og íslenzk alþýðumenntun á 18. öld (1925). Árið
1930 tók liann þátt í samkeppnisprófi um prófessorsstöðu í sagnfræði við liáskóla
Islands og skrifaði þá ritgerð um Frjálst verkafólk á íslandi til siðaskipta, sem enn
er óprentuð.
Hallgrímur kvæntist aldrei og átti ekki afkvæmi. Hann bar mikla tryggð til átthaga
sinna í Eyjafirði og dvaldi þar löngum í sumarleyfum sínum. Hafði hann kosið sér
legstað á Möðruvöllum í Hörgárdal og var jarðsettur þar.