Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1994, Page 22

Frjáls verslun - 01.10.1994, Page 22
FORSIÐUGREIN „Ég lærði þó fljótt hvað það er mikilvægt fyrir stjórnanda að vera fastur fyrir en þó um leið sveigjanlegur. Það er líka nauðsynlegt að bera virðingu fyrir fólkinu á gólfinu. Ég verð að játa að ég fer of lítið niður á gólf og það er slæmt. Það er nefnilega þar sem ég fæ bestu hugmyndirnar.“ skyldu Sighvats þegar Vinnslustöðin seldi verslunina Tanga í lok ársins 1992. Raunar varð málið að blaðamáli í Eyjum eftir að Frjáls verslun gerði Sighvati skil í Nærmynd fyrir ári síð- an. Móðurbróðir Sighvats, Gísli Guð- laugsson, hafði verið framkvæmda- stjóri verslunarinnar til margra ára og segir Sighvatur hann hafa haldið því fram að honum hafi verið lofaður for- kaupsréttur á versluninni en verið þess í stað notaður af Sighvati til að hækka annað tilboð. „Mistök mín voru þau að bjóða frænda mínum að gera líka tilboð. Þeir, sem buðu fyrst, buðu 5 milljón- um hærra í öðru tilboði. Ég hafði ekki leyfi til að gefa ættingja mínum 5 mill- jónir, svo einfalt var það.“ STÓR HLUTIÆTTINGJANNA YRÐIR EKKIÁ HANN Vegna þessa máls kom upp ósætti í fjölskyldunni sem Sighvati þykir mið- ur. „Það er erfitt að hitta ættingja á götu og heilsa þeim ekki en ég hef þykkan skráp. Eg er í eðli mínu mjúk- ur maður en ekki harðjaxl. Það vita þeir sem þekkja mig. Samfélagið er lítið og ég þurfti að taka erfiðar ákvarðanir. Fyrirtæki í Eyjum höfðu verið nokkurs konar félagsmálastofn- anir og á því þurfti að taka. Það gerð- um við. Það var annað hvort að duga eða drepast fyrir fyrirtækið. í mestu átökunum lærði ég mikið um mann- eskjuna sjálfa. Ég hef til dæmis horft upp á fólk láta ákvarðanir mínar bitna á föður mínum sem hefur alltaf stutt mig hvort heldur sem hann er sam- mála mér eða ekki. Ég geri mér nú betur grein fyrir því hverjir eru vinir mínir og hveijir ekki. “ Sighvatur setti það sem skilyrði, fyrir því að hann tæki við Vinnslu- stöðinni, að honum væri veitt alræð- isvald í fyrirtækinu. „Öðru vísi gat ég ekki tekið starfið að mér. Bæri ég ábyrgðina yrði ég líka að hafa fullt vald. Ekkert þar á milli. Ég tek allar ákvarðanir og ber ábyrgð á því sem gerist innan fyrirtækisins. Mér finnst mjög gott að fá að sitja einn við stjórn- völinn. Ég hef góða menn með mér og treysti þeim fullkomlega. Fyrirtækið er í góðum höndum þegar ég bregð mér frá.“ Sighvatur segir fleiri ástæður liggja að baki þeirri ákvörðun sinni að fá einn fullt vald. „Þeir sem voru við stjómvölinn í fyrirtækinu vom allir eldri en ég og bar ég mikla virðingu fyrir þeim enda höfðu þeir unnið vel. Það hefði aftur á móti verið mjög erf- itt fyrir mig að fara að segja þeim fyrir verkum. Verkefnið, sem mín beið við Vinnslustöðina, var að koma fyrir- tækinu á réttan kjöl og fá starfsfólk sem og lánardrottna til að trúa því að það gæti tekist. Einnig var mikilvægt að sameina í reynd þau sex fyrirtæki sem samein- uð voru undir heiti Vinnslustöðvar- innar árið 1991. Skuldastaðan var nán- ast vonlaus og reksturinn hafði geng- ið iila sem var ekkert skrýtið þar sem Vinnslustöðin var kvótalaus þegar kvótakerfið var sett á. Hún hafði því reitt sig á aðkeyptan afla en þegar gámavæðingin hófst árið 1986, og all- ur fiskur fór út í gámum, fékkst eng- inn fiskur. Því þurfti að fjárfesta í afla- heimildum og skuldir hrönnuðust Sighvatur með eiginkonu sinni, Ragnhildi Gottskdlksdóttur, og bömum. Frd vinstri: Dóra Dúna, Þórður, Ragnhildur, Gottskdlk, Bjami og Sighvatur. 22

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.