Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1994, Side 33

Frjáls verslun - 01.10.1994, Side 33
ÞAÐ ERU TIL ÞRIÁR GERÐIR AF FYRIRTÆKIUM: 1. Þar sem reynt er að leiða viðskiptavininnþangað sem hann vill ekki endilegafara sjálfur, þ.e. allt miðast við skilningstjórnendaþeirra áþörfum viðskiptavin- arins. 2. Þar sem hlustað er á viðskiptavininn og síðan brugð- ist við þörfum hans hafi ekki einhver annar fram- sýnni keþpinautur verið á undan. 3. Þar sem viðskiptavinurinn er leiddur þangað sem hann vill í rauninni fara en hann veit það ekki sjálfur ennþá. Fyrirtækjastjórnendur, sem skapa framtíðina, mæta ekki aðeins þörfum viðskiptavin- arins heldur koma honum stöðugt á óvart. GSM símakerfi eða faxtæki. Eða SO- NY fyrirtækið um Walkman eða geis- laspilara en allt þetta finnst viðskipta- vininum ómissandi í dag. Svo vitnað sé í Akio Morita, fráfarandi stjórnar- formann SONY: „Okkar hlutverk er að kynna almenningi nýjar vörur, fremur en að spyrja hann hvað hann vilji. Almenningur veit nefnilega ekki hvað er mögulegt en það vitum við. I stað mikilla markaðsrannsókna, eyð- um við kröftum okkar í að finna nota- gildi vara og skapa markað fyrir þær með nánum tengslum við almenning og kynningum fyrir hann.“ Það er að vísu mikilvægt að spyrja sig að því hversu ve! við þjónum nú- verandi viðskiptamönnum. En það er ekki síður mMvægt að spyrja sig að því hvaða viðskiptamönnum erum við ekki að þjóna í dag. Það má þannig segja að þau fyrirtæki, sem aðeins bregðast við núverandi þörfum við- skiptavina sinna, kasta frá sér tæki- fasrunum til sér framsýnni keppi- nauta. NIÐURSKURÐUR OG ENDURSKIPULAGNING Það er ekki framtíðin sem á allan hug stjómenda í dag heldur niður- skurður og endurskipulagning fyrir- tsekjanna. Það má alls ekki gera lítið úr þeirri vinnu en hvorugt þessara atriða kemur í stað þess að hugsa til framtíðar og án þess mun hvorugt þeirra koma að gagni og tryggja ár- angur til lengri tíma litið. Þegar kreppir að og samkeppnin veldur erfiðleikum hjá fyrirtækjum þá er byrjað að skera niður fitu og minnka fyrirtækin, síðan eru svo end- urskipulagðir allir vinnuferlar í fyrir- tækjunum. Það síðamefnda er aðferð sem á að betrumbæta fyrirtækið en það fyrra hefur það að aðalmarkmiði að minnka stærð þess. Það er aðeins þegar þessir þættir eru hættir að draga úr erfiðleikum fyrirtækjanna að farið er að huga að framtíðinni og nýj- ungum. Hin mikla áhersla á niðurs- kurð og á endur- skipulagningu fyrirtækja í dag þýðir aðeins að þau verða grennri en ekki endilega heil- brigðari og sum enda jafnvel í „við- skiptalegu lystarstoli“ (corporate an- orexia). í stað þess að reyna að fækka fólki og skera niður kostnað væri stjórnendum nær að nýta starfsfólkið til að skapa vörur/þjónustu og mark- aði framtíðarinnar. Fyrirtækin verða að gera sér grein fyrir að niðurskurður, endurskipu- lagning og framsýni haldast í hendur og gera hvert um sig fyrirtækið minna, betra og umfram allt öðruvísi en fyrirtæki keppinautanna. UPPBYGGINGOG EFNISTÖK Bókin byggir að miklum hluta á þeim hugmyndum sem þeir setja fyrst fram í áðurnefndum verðlauna- greinum og síðan í nýjustu grein sinni í tímaritinu HBR frá 1993: „Strategy As Stretch & Leverage". Hún skipt- ist í 12 kafla og eru nokkrir þeirra endurtekning á fyrrnefndum greinum með viðbótum en aðalkaflar bókarinn- ar eru þeir sem fjalla um framsýnina og hvernig byggja eigi upp breytta hugsun hjá stjórnendum sem snýst eingöngu um framtíðina. Bókin er ætluð sem handbók og leiðbeiningar fyrir þá sem vilja horfa til framtíðar. Höfundum tekst vel að ná þessu markmiði sínu. Bókin er full „Hin mikla áhersla á niðurskurð og endurskipulagningu fyrirtækja í dag þýðir aðeins að þau verða grennri en ekki endilega heilbrigðari og sum enda jafnvel í„viðskiptalegu lystarstoli“ (corporate anorexia)“. 33

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.