Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1994, Page 44

Frjáls verslun - 01.10.1994, Page 44
ÁRAMÓTAHEIT þín mætti vera betri, skaltu drífa þig á námskeið. Sumir stjómendur hafa þann hátt- inn á að undirbúa viðskiptaferð með því að ræða í nokkrar klukkustundir við aðra á því tungumáli sem talað er í því landi sem þeir hyggjast sækja. í sumum tilvikum virka þessi samtöl eins og ryðolía, málakunnáttan er fyrir hendi en menn eru ryðgaðir í að tala málið. í svona samtölum rifjast líka oft upp ýmis fagorð sem gott er að hafa á hreinu. Það getur nefnilega verið djúpt á þeim í miðjum samtölum erlendis. Sumir býsnast yfir að eiga full- komnar tölvur en kunna lítið á þær. Það á ekki að henda. Stöðugt eru í boði tölvunámskeið. Svona er hægt að halda lengi áfram. Drífðu þig á námskeið í Islendingasögum, mat- reiðslu eða einhverju allt öðru sem þér hugkvæmist ekki í fyrstu. Eða taktu maka þinn á orðinu og farðu á dansnámskeið. Það styrkir sjálfs- ímyndina í óumflýjanlegu samkvæm- islífi stjórnenda að kunna að dansa. Það kemur sér örugglega vel fyrir þig sem stjómanda á hátíðum í framtíð- inni. Þú getur tekið sporið án þess að verða þér til skammar. Auk þess er dans góð líkamshreyfing og góð stund með makanum en flestir stjómendur telja sig hafa of lítinn tíma með fjöl- skyldunni vegna vinnuálags. Niðurstaða: Aðalatriðið er að gera sér grein fyrir gildi menntunar og hversu góð fjárfesting hún er. Mennt- un og þekking kemur sér alltaf vel. Drífðu þig á að minnsta kosti eitt nám- skeið á nýju ári. Bættu við þekkingu þína og þú tryggir þig betur í starfi. Ef þú er stjórnandi, sem ert með himinháa skjalabunka á skrifborðinu þínu, skaltu strengja þess heit um áramótin að hafa allt í röð og reglu á skrifstofu þinni - og í fyrirtæki þínu - á nýju ári. Þú gerir þig síður ómissandi, þú getur farið frá og aðrir leyst þig auðveldlega af, gengið í starf þitt. Þótt þetta hljómi sem þverstæða þá styrkir þetta þig í starfi. Þetta er styrkur en ekki veikleiki. Gott skjala- safn, sem allir geta gengið í, ber vott um að fyrirtækið sé sveigjanlegt. Taktu eftir: Það er alls ekki tákn um skriffinnsku! Vissulega eru til margar sögur um himinháa skjalabunka stjómenda í ráðuneytum og fyrirtækjum. Þær eru kannski fyndnar en þær eru ótvírætt vitni um skipulagsleysi og að aðrir geti ekki gengið í störf þessara stjóm- enda fari þeir í frí. Viðskiptavinurinn fær jafnvel þau svör að ekki sé hægt að afgreiða mál fyrr en viðkomandi stjórnandi komi úr fríinu. Ekki vegna þess að sérfærðikunnáttuna vanti heldur vegna þess að samstarfsmenn finna ekki skjölin þótt þeir róti í bunk- unum. Ef þú hefur hins vegar viljandi allt í þykkum bunkum og óreiðu til að gera þig ómissandi í vinnunni skaltu íhuga þinn gang vel. Það er tákn um að þú sért ekki öruggur um þig í starfi og er vísbending um að þér vegni ekki eins vel og þú heldur. Áramótin eru ekki aðeins góður tími til að taka til og koma skipulagi á hlutina. Þau minna líka á að hratt flýg- 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. V182808 Mappa A3 V155762 Tímaritabox A4 V151159 Tímaritabox A4 V165035 Mappa A4 V151142 Tímaritabox A4 V118794 Tímaritabox A4 V120386 Tímaritabox A5 V189761 Mappa Folio V129171 Mappa meö vasa A4 V119248 Skjalaaskja A4 V111641 Skjalaaskja 38x24.5 HOFUM ALLT TIL 4\n a CWM^\W@öm^ T.D. FYRIR: BÆJARFÉLÖG, BÓKASÖFN, SJÚKRAHÚS OG FYRIRTÆKI - Á MJÖG GÓÐU VERÐI. KASSAGERÐ REYKJAVIKUR HF. Kleppsvegur 33 - Sími 38383 - Fax 684578 (afgreiðsla) 44

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.