Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1994, Page 53

Frjáls verslun - 01.10.1994, Page 53
Frosti Bergsson, forstjóri H.P. á íslandi, er stundum kallaður Nestor íslenskra tölvugrúskara á meðal yngri manna og nýtur virðingar samkeppnisaðila fyrir ábyrg og sanngjörn vinnubrögð. í Kópavoginum var byggðin þar mjög að þéttast og mikið af fólki með börn sem flutti þangað. Hvammarnir í Austurbænum, sem Frosti ólst upp í, átti sitt strákagengi sem barðist reglulega við önnur gengi í Austur- bænum eða við Vesturbæinga í Kópa- vogi. Vopnin voru trésverð og þess- háttar og átökin yfirleitt í góðu þótt stundum hlypi mönnum kapp í kinn eins og verða vill.„Það var völlur á Frosta þegar hann mætti með keðju- svipuna, skjöldinn og hjálm merktan íslenskum aðalverktökum,“ segir gamall bardagafélagi hans frá þessum árum. „Þá fór svo sannarlega hrollur urn andstæðingana." Hann réðst til starfa hjá Kristjáni Ó. Skagfjörð hf. að loknu námi 1974 og tveimur árum síðar setti hann tölvudeild KÓS á laggirnar og byggði hana upp frá grunni. Hann náði góðri sölu á Digital tölvum sem margir muna eftir. Þegar hann yfirgaf KÓS 1984 fór hann að vinna hjá Hewlett Packard sem opnaði síðar útibú á ís- landi í maí 1985. Byggði hann það upp frá grunni. Árið 1991 varð HP á íslandi hf. til. Frosti er stærsti einstaki hlut- hafinn ásamt þróunarfélaginu, með um 30% eign í fyrirtækinu. Aðrir hlut- hafar eru Pharmaco, starfsmenn og móðurfyrirtæki Hewlett Packard í Ameríku. Frosti giftist 1970 Elínu Guð- mundsdóttur, f. 20.01. 1949, dóttur Guðmundar Vals Sigurðssonar klæð- skera og Halldóru Guðlaugsdóttur. Þau skildu árið 1992. Þau eiga saman tvö börn, Frey f. 1970 og Önnu Dóru f. 1975. Seinni eiginkona Frosta er Hall- dóra Mathiesen, f. 16.12.1960 og búa þau í Staðarhvammi í Hafnarfirði ásamt Matthíasi, 11 ára syni Halldóru. Halldóra er dóttir Matthíasar Mathie- sen, fyrrum ráðherra og alþingis- manns, og Sigrúnar Þ. Mathiesen. Frosti situr í ýmsum stjórnum og nefndum. Hann er stjórnarformaður Sementsverksmiðjunnar á Akranesi, varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs tæknifræðinga, stjómarformaður hugbúnaðarfyrirtækisins Gagnalind- ar, stjórnarformaður nefndar á veg- um Alþingis í sambandi við fjárfest- 53

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.