Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1994, Side 61

Frjáls verslun - 01.10.1994, Side 61
Knútur Friðriksson í sölu notaðra bíla hjá Jöfur hf. í Kópavogi notar Macintosh. Hann geymir þar skrá yfir bíla í eigu Jöfurs, sem eru til sölu, og skrá yfir bíla í umboðssölu. áberandi félagslegum breyt- ingum 20. aldar er sam- þjöppun byggðar um víða veröld þar sem fólk flytur úr strjálbýli til að búsetja sig umhverfis þjónustukjama. Þjónustustöðvum og þjón- ustustörfum hefur fækkað í kjölfar fólksfækkunar í strjálbýli. Skipulagsbreytingar í landbúnaði hafa hraðað þessari þróun. Um miðbik og í nyrðri hluta Svíþjóðar er að finna flest vandamál sem tengjast fólksfækkun í strjálli byggðum, bæði at- vinnuleg og félagsleg. Hafa sænsk stjórnvöld, ásamt sveitarfélögum, staðið fyrir sérstökum byggða- og svæðaverkefnum í því skyni að hefta fólksflóttann og auka atvinnumöguleikana. Eitt slíkt byggðaverkefni er í Arefjállen, 800 manna bæ í Svíþjóð þar sem flestir lifa af þjónustu við skíðafólk á vetrum. App- le kom inn í verkefnið 1991. Vanda- málið á þessum stað tengist ferða- mennsku sérstaklega og þarf varla fleiri orð til að lýsa því en þau að á vetrum fjölgar fólki í Arefjállen úr 800 í um og yfir 16 þúsund. Upphaflega sameinuðust 30 fyrir- tæki í bænum undir einn hatt og tóku við Macintosh tölvu- og hugbúnaði. Tölvuvæðingin hófst með stuttum námskeiðum þar sem kynntir voru möguleikar á að nýta tölvu til að auka afköst og árangur. Námskeiðunum var síðan fylgt eftir með ráðgjöf og leiðbeiningum í fyrirtækjunum og með því að koma á laggirnar upplýs- ingamiðlun á milli þeirra með gagna- miðlun á milli tölvanna um síma (raf- eindapósti, tilkynningatöflu o.fl.) Tveimur árum síðar voru fyrirtæk- in í Apple-verkefninu í Arefjállen orð- in 100. Og nú, seint á árinu 1994, hafa nokkur fyrirtæki flutt til Arefállen til að geta tekið þátt í verkefninu. Kerstin Fryschuss stendur fyrir og stjórnar verkefninu í Arefállen. Að hennar sögn sýnir framgangsmátinn og árangur verkefnisins hve skipuleg þjálfun þátttakenda er mikilvæg, þjálfun sem miðar að því að upplýsa fólk og sýna því hvernig hafa megi gagn af tölvum sem hjálpartækjum við hin ýmsu störf. Þjálfunin hófst með eins dags námskeiði. Tölvunot- endur komust sjálfir að þeirri niður- stöðu að þeir þyrftu frekari þjálfun nokkru síðar. Kerstin Fryschuss segir ennfrem- ur að reynslan hafi sýnt þeim að verk- efni á borð við þetta þurfi lengri undir- búning en upphaflega hafi verið gert ráð fyrir. Verkefnið fór einnig hægar af stað en búist hafði verið við — var lengur að komast á skrið. Aðal- ástæðan var sú að fólk þurfti lengri tíma til að komast upp á lag með að nota tölvuna sér til gagns. En þegar það hafði náð tökunum og sá mælan- legan árangur jókst gangurinn í verk- efninu og fleiri óskuðu eftir því að fá að vera með. Hún segist ekki hafa búist við að almennur áhugi á þátttöku yrði jafn mikill og raun ber vitni. Um árangurinn er það að segja að afköst þjónustufyrirtækja í Arefjállen hafa aukist verulega: Skíðafólk er ánægðara með þjónustuna og staður- inn nýtur meira trausts á meðal þeirra sem skipuleggja og selja skíðaferðir. Utan skíðatímans er atvinnulífið þróttmeira og yngra fólk telur staðinn vænlegri en áður þótt of snemmt sé að spá um áhrif framtaksins á þróun búsetu þegar fram í sækir. Ef til vill skiptir mestu máli að verkefnið er borðleggjandi sönnun þess að eitt- hvað hefur verið gert til að snúa þró- uninni á betri veg fyrir byggðarlagið. „SAMSKIPTAFÉLAG" Þriðja verkefnið sem Apple tekur þátt í, með áðurnefndum hætti, hófst 1992 í Bretlandi, í smábænum King- ton í Hereforshire. Arangurinn er þegar orðinn markverður og hefur vakið athygli. Verkefnið nefnist „Connected GJALDEYRISMÁL Daglegar faxupplýsingar um gjaldeyrismál Áskriftarsími 684999 61

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.