Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Kristján
Sigurgeir Halldórsson, íbúi við Aðalstræti 50, sem stendur á trénu, og
félagar hans skoða verksummerki eftir ofsaveðrið á Akureyri.
UM 6 metra hátt lerkitré féll í garði
við Aðalstræti 50 í hvassviðri sem
gekk yfir Akureyri í gærkvöld, en
tréð er um 50 ára gamalt.
Annað stórt tré féll við Bjark-
arstíg 3 og yfir á næsta hús. Björg-
unarsveitarmenn úr Súlum söguðu
tréð niður en ekki urðu skemmdir á
híbýlum. Þá splundraðist garðhús í
Síðuhverfi, þar sem þak rifnaði af
og veggir lögðust út.
Anna Guðný Sigurgeirsdóttir,
húsráðandi í Aðalstræði 50, sagði
að íbúar hefðu verið að horfa á
sjónvarp. „Það komu svakalega
miklar rokur, ég man ekki eftir
öðru eins,“ sagði Anna Guðný. Hún
sagði að yfirleitt væri skjól undir
brekkunum í Innbænum og fólk því
ekki haft áhyggur. „Ég heyrði svo
skyndilega brest, en leit ekki strax
út, ég hélt þetta væri ekki neitt.“
Að sögn Hallgríms Indriðasonar,
framkvæmdastjóra Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga, er tréð líklega
Evrópulerki, gróðursett fyrir um
50 árum. Hann sagði að það hefði
rifnað upp með rótum, enda hefði
jörð ekki verið frosin og jarðveg-
urinn grunnur á þessum slóðum.
Mikið hvassviðri á Akureyri
Tré fuku um koll
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isAfturelding sterkari
á lokasprettinum/B2
Brynjar og Jóhannes B.
í 16 manna úrslit/B3
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM
Morgunblaðinu í
dag fylgir auglýs-
ingablað frá
Smáralind, „Eitt
lítið jólablað
2001“. Blaðinu
verður dreift um
allt land.
ÚTFÖR Gísla Jónssonar, fyrrver-
andi menntaskólakennara, fór fram
frá Akureyrarkirkju í gær. Sr.
Svavar Alfreð Jónsson jarðsöng,
organisti var Björn Steinar Sól-
bergsson, Sigrún Arna Arngríms-
dóttir söng einsöng og félagar úr
Kór Akureyrarkirkju sungu.
Kistuna báru úr kirkju Kristján
Þór Júlíusson, Sigurður J. Sigurðs-
son, Þórarinn B. Jónsson, Hólmkell
Hreinsson, Þorsteinn Hjaltason,
Þorsteinn Þorsteinsson og Sigurð-
ur Eggert Davíðsson. Börn Gísla,
Hjörtur, Ingibjörg, Guðrún, Jón,
Arnfríður, Soffía og María, og Jón
Hjaltason báru kistuna í kirkju-
garðinum.
Morgunblaðið/Kristján
Útför Gísla Jónssonar
TILLÖGUR eru um að tollar á yl-
ræktuðu grænmeti verði felldir
niður og beingreiðslur teknar upp
í staðinn innan svonefndrar græn-
metisnefndar landbúnaðarráð-
herra. Er þess vænst að verðlag á
grænmeti hér á landi lækki veru-
lega verði farið að tillögum nefnd-
arinnar. Samstaða er innan nefnd-
arinnar og er starf hennar langt
komið og þess vænst að hún ljúki
störfum og skili tillögum fyrir jól.
Landbúnaðarráðherra skipaði
nefndina síðastliðinn vetur í kjöl-
far niðurstöðu Samkeppnisráðs
varðandi grænmetismarkaðinn hér
á landi. Í nefndinni eiga sæti
fulltrúar aðila vinnumarkaðarins,
ASÍ, SA og BSRB, auk fulltrúa
bænda og landbúnaðarráðuneytis-
ins.
Áfangatillögur síðastliðið vor
Nefndin skilaði áfangatillögum
síðastliðið vor þess efnis að tollar á
grænmetistegundum, sem ekki
væru framleiddar á Íslandi, yrðu
lagðir niður og var það fram-
kvæmt í kjölfarið með lagabreyt-
ingu og tilsvarandi reglugerðar-
breytingum.
Nefndin hefur starfað síðan og
fjallað um þær grænmetistegundir
sem einnig eru framleiddar hér
innanlands, bæði ylræktaðar og
útiræktaðar. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins fela tillögur
nefndarinnar í sér að tollvernd á
grænmeti verði minnkuð verulega,
en beingreiðslur til bænda teknar
upp í staðinn, auk annarra aðgerða
til að styrkja samkeppnisstöðu
grænmetisbænda gagnvart inn-
flutningi erlendis frá í stað toll-
verndarinnar. Er þess vænst að
þessar tillögur verði til þess að
grænmetisverð til neytenda lækki
mjög mikið nái tillögurnar fram að
ganga. Heimildir Morgunblaðsins
herma að tollvernd verði afnumin
hvað ylræktaða grænmetið snertir,
þ.e. agúrkur, tómata og papriku,
en að dregið verði úr tollvernd
hvað útiræktaða grænmetið varð-
ar. Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra vildi í gær ekki tjá sig
efnislega um tillögurnar á þessu
stigi en sagðist fagna samstöðu um
málið.
Samkvæmt núgildandi fyrir-
komulagi leggjast bæði magntollar
og verðtollar á innfluttar græn-
metistegundir sem einnig eru
framleiddar hér á landi, nema yfir
vetrarmánuðina en þá er innflutn-
ingurinn tollfrjáls vegna ákvæða
samningsins um evrópska efna-
hagssvæðið.
Vonast til að nefndin
ljúki störfum fljótlega
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri landbúnaðarráðu-
neytisins og formaður nefndar-
innar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að nefndarstarfið
væri langt komið og vonast væri
til að það kláraðist fljótlega. Sam-
staða væri innan nefndarinnar og
nefndarmenn væntu þess að til-
lögur nefndarinnar yrðu til þess
að grænmetisverð gæti lækkað
verulega. Að öðru leyti gæti hann
ekki tjáð sig um málið að svo
komnu.
Samstaða í grænmetisnefnd landbúnaðarráðherra
Beingreiðslur
verða teknar upp
Gert ráð fyrir að
grænmetisverð
til almennings
lækki verulega
Öxnadalsheiði
Sex bílar
lentu utan
vegar
SEX bílar lentu út af veginum um
Öxnadalsheiði í gærkvöld í roki og
skafrenningi. Ekki urðu slys á fólki.
Björgunarsveitin Súlur sótti fólkið
upp á heiði og verður væntanlega
náð í bílana í dag.
Lögreglan á Akureyri fékk til-
kynningu frá vegfaranda um kl.
19.30 um mikinn veðurham á heið-
inni og að ökumenn væru að lenda í
vandræðum. Björgunarsveitin Súl-
ur var þá kölluð út og voru þrír bílar
sendir af stað.
Á Akureyri fuku mannlausir bílar
til á svellbunkuðum bílastæðum og
ökumenn lentu víða í vandræðum.
Skjólveggir lögðust flatir
Trilla fauk niður af búkkum en
ekki hafði verið lagt mat á skemmd-
ir í gær.
Að sögn Skúla Árnasonar sem er
í svæðisstjórn Björgunarsveitar-
innar Súlna gekk mikið á innanbæj-
ar. Hurðir fuku upp, sólskýli
skemmdust og skjólveggir við sól-
palla lögðust flatir. Þá munaði
minnstu að vinnupallur fyki um
koll. Undir miðnætti var veðrið að
mestu gengið niður í bænum, að
sögn Skúla.
Sandstorm-
ur á Mýr-
dalssandi
SANDSTORMUR var á Mýrdals-
sandi í gærkvöld og var Suður-
landsvegi lokað milli Kirkjubæjar-
klausturs og Víkur í Mýrdal af
þeim sökum. Þá hrundi grjót úr
Hvalsnesskriðum í kvöld og var því
veginum um Hvalsnes lokað. Þæf-
ingur var í Bröttubrekku og var
hún aðeins fær fjórhjóladrifnum bíl-
um.
Mikið hringt
Að sögn Ídu Kristjánsdóttur,
þjónustufulltrúa hjá Vegagerðinni,
hringdu fjölmargir í upplýsinga-
síma Vegagerðarinnar og óskuðu
eftir upplýsingum um færð og veð-
ur. Að hennar sögn verða Hrafns-
eyrar- og Dynjandisheiði hreinsað-
ar í dag ef veður leyfir.
Þak fauk
af fjárhúsi
ÞAK fauk af fjárhúsi við bæinn
Brattavelli á Árskógsströnd um tíu-
leytið í gærkvöld. Björgunarsveitin á
Dalvík var kölluð út til að tína saman
brakið, festa niður og koma þannig í
veg fyrir frekara fok. Ekkert búfé
var í fjárhúsinu.
♦ ♦ ♦