Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 84

Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 84
FÓLK Í FRÉTTUM 84 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞEIR bræður eru alvanir tónlistarmenn þrátt fyrir ungan aldur en aðrir meðlimir Sign eru óreyndari. Ragnar leggur þó áherslu á að hér sé um hljómsveit að ræða og hann ráði „einum fimmta“. Ragnar gaf annars út einherja- skífu fyrir þremur árum, aðeins ellefu ára að aldri, en hún ber nafnið Upplifun. Fyrst bar þó á Ragnari í Músíktilraunum það ár- ið, en þá var hann einn af með- limum hljómsveitarinnar Renni- reiðar. Eldri bróðir hans, Egill, hefur og verið áberandi í íslensku tónlistarlífi; sást fyrst með hljóm- sveitinni Woofer en hefur svo spil- að með Stæner og Buttercup m.a. Hæfileikana eiga þeir ekki langt að sækja en faðir piltanna er Rafn Jónsson, trommuleikarinn kunni. Whitesnake og Megadeth „Bandið var stofnað í fyrra,“ segir Ragnar. „Þá ákváðum ég og Hörður gítarleikari að taka þátt í Músíktilraunum. Við vorum sam- an í harðkjarnabandi og okkur langaði til að gera eitthvað ann- að. Hinir meðlimirnir voru allir að hlusta á Mínus; allir nema ég. Þá stofnuðum við Halim [en undir því nafni tók sveitin þátt í tilraun- unum] en bandið var ekki full- mótað fyrr en tveimur vikum fyr- ir Tilraunirnar og við byrjuðum ekki að æfa fyrr en viku fyrir þær.“ Um áhrif á bandið segir Ragn- ar. „Ég og Baldvin [þriðji gít- arleikarinn en hann kom inn í bandið í ágúst] hlustum mikið á rokk níunda áratugarins; Kiss, Whitesnake, Megadeth og allt það.“ Egill segir tónlist Sign vera blöndu af því sem var að gerast í rokkinu þá og því sem er að ger- ast í dag. Hann segir að stefnt sé á aukna spilamennsku eftir ára- mót. „Svo er vonandi önnur plata fyrir næstu jól.“ Talið berst að textum Ragnars. „Þeir eru samdir á svolítið skemmtilegan hátt,“ útskýrir hann. „Ég skrifa þá ekkert niður. Við erum með átta rása upp- tökutæki þar sem við tökum upp prufur af lögum og ég sem yfir- leitt ekki textana fyrr en ég tek sönginn upp. Ýti bara á afritun og það fyrsta sem kemur út úr mér verður textinn.“ Það er ekkert viðtal við rokkara nema spurt sé hvort horft sé til útlanda. Og svörin eru þægilega hreinskilin. „Það væri ekkert leiðinlegra að spila þar,“ segir Egill, „þótt við séum ekkert að einblína á það. En markmiðið er auðvitað að slá í gegn í útlöndum. En af gefinni reynslu annarra Íslendinga í svona málum er maður alveg niðri á jörðinni með þetta allt saman.“ Aldrei þekkt neitt annað Ragnar er nokkuð stoltur af frumraun sinni, Upplifun, hann lítur ekki á plötuna sem neitt barnabrek. „Ég er mjög sáttur við þetta og mér finnst þetta fínt, sér- staklega ef miðað er við að ég var ellefu ára. Og enn yngri þegar ég samdi lögin.“ Það eru hæg heimatökin hjá strákunum þegar taka skal upp, en upptökuherbergið er að heita má inn af eldhúsinu heima hjá þeim. Tónlistin hefur alltaf legið fyrir þeim og ekkert annað hefur verið inni í myndinni. „Það eru til myndir af mér eins árs með lítið æfingasett inni í stofu,“ segir Egill. „Þetta var t.d. alltaf draum- urinn. Að vera á geisladiski,“ skýtur Ragnar inn í. „Ég hef aldrei þekkt neitt ann- að en að vera trommuleikari,“ segir Egill, „öll önnur störf hafa í raun verið bráðabirgðastörf.“ Vindar og breytingar hjá Sign Fyrsta skrefið Hljómsveitin Sign vakti athygli að afstöðnum Músíktilraunum fyrir þétta og góða spila- mennsku. Arnar Eggert Thoroddsen talaði við þá Ragnar og Egil Rafnssyni vegna nýrr- ar plötu sveitarinnar, Vinda og breytinga. arnart@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Egill og Ragnar í ljósaskiptunum. THORA Birch hóf feril sinn aðeins fjögurra ára gömul þegar foreldrar hennar sendu hana í prufu fyrir sjónvarpsauglýsingu. Vitanlega féllu allir fyrir þeirri stuttu og glæstur auglýsingaferill var hafinn. Ekki leið á löngu áður en þeir í Hollywood tóku eftir henni og hún birtist í sínu fyrsta kvikmyndahlut- verki. Þá var hún sex ára en mynd- ina muna fáir, vísindagrín sem hét Purple People Eater. Almenningur tók samt fyrst eftir henni í næstu mynd Paradise, þar sem hún lék á móti þáverandi bíóhjónum Don Johnson og Melanie Griffith. Birch vakti verulega athygli fyrir óvenju næman leik og varð strax eftirsótt. Næstu myndir hennar vöktu ennþá meiri athygli á henni; Hocus Pocus, Patriot Game þar sem hún lék dótt- ur Jacks Ryans (Harrison Ford) og Now and Then þar sem hún lék unga Melanie Griffith og þótti bera nokkuð af hinum ungu leikkonum myndarinnar. Þegar Birch var 14 ára og orðin viðurkennd barnastjarna hvarf hún sviplega af sjónarsviðinu og veltu þá einhverjir fyrir sér hvort ævintýrið hefði orðið skammlífara en til stóð. En því fór fjarri því þremur árum síðar birtist hún á tjaldinu á ný í einu af aðalhlutverkum einhverrar athyglisverðustu myndar síðustu ára, Óskarsverðlaunamyndarinnar American Beauty. Barnastjarnan var þá orðin að fullþroska hæfi- leikaríkri leikkonu. Í dag er Birch 19 ára gömul og hefur leikið í 4 myndum síðan menn féllu fyrir henni í American Beauty. Nýjasta myndin hennar er breska spennumyndin The Hole sem frum- sýnd er hérlendis um helgina og fjallar um óendurgoldnar ástir, yf- irgengilega þráhyggju og óheil- brigðar ástríður. Ung stúlka finnst illa útleikin og hefur greinilega ver- ið beitt grimmilegu ofbeldi bæði andlegu og líkamlegu. Hún segir sálfræðingi sögu sína og þegar líða tekur á hana kemur í ljós að ekki er allt sem það sýndist í fyrstu. Ekki stjarna heldur leikkona „Ég fékk snemma leiklistarbakt- eríuna og hef ekki losnað við hana síðan. Ég man að mér fannst frá- bært að vinna með þessu hæfileika- ríka fullorðna fólki. Þetta var eins og að vera í daglegu partíi. Ég hef aldrei viljað gera neitt annað,“ segir Birch blaðamanni, spurð um upp- hafið. – Var æðsti draumurinn þá alltaf að verða skínandi Hollywood- stjarna? „Nei, draumurinn hefur alltaf verið að verða leikkona.“ – Er auglýsingaferillinn þá al- gjörlega að baki? Birch hlær við. „Ég veit það ekki, það getur náttúrlega vel verið.“ – Nafnið þitt Thora er allsérstakt. Getur verið að það sé tekið úr nor- rænu goðafræðinni? „Já, ég er skírð í höfuðið á nor- ræna guðinum Þór.“ – Eru foreldrar þínir sérstaklega áhugasamir um norræna goða- fræði? „Já þau hafa alltaf haft mikinn áhuga á goðsögnum og allskyns dul- speki. Þau eru gömul blómabörn skilurðu,“ segir Birch og hlær nett kvikindislega. – En þú? „Já, norræn goðafræði er svöl.“ – Eftir að hafa skapað þér nafn sem barnastjarna birtistu í Americ- an Beauty og fólk fékk allt aðra mynd af þér. Myndin hlýtur að hafa umbylt bæði lífi þínu og ferli? „Vissulega. Það var nátturlega himnasending að fá þetta hlutverk en ferillinn gjörbreyttist. Það sem mér fannst dýrmætast var að fá tækifæri til að vinna með öllu þessu hæfileikafólki. Ég lærði heilmikið af því. Það læðist óneitanlega að mér sá grunur að blaðamenn verði enn að spyrja mig spurninga um mynd- ina eftir 20 ár. Sem er eðlilegt því hún er mögnuð.“ –Breytti myndin á einhvern hátt viðhorfi þínu til ferils þíns, hvernig leikkona þú vilt vera? „Nei, í raun ekki, því ég held að þátttaka mín í myndini hafi einmitt verið ákveðið þroskamerki, vísir að því hvert ég vildi að ferillinn stefndi.“ Í læri hjá Ford, Spacey og Keitel – Hvers vegna hvarfstu af sjón- arsviðinu í heil 3 ár? „Það var einfaldlega ekkert að gera fyrir stelpu á aldrinum 16–19 ára þá, allavega ekki fyrir mig. Það var því ekki mér að kenna að ég sást hvergi.“ – Fórstu aldrei í leiklistarskóla? „Nei, ég hef aldrei lært leiklist í skóla. Allt sem ég kann hef ég lært af meðleikurum mínum. Það er ým- islegt hægt að læra af Harrison Ford, Kevin Spacey og Harvey Keitel.“ – Þú kláraðir nýverið mennta- skólann í fjarnámi. Saknarðu ekkert að hafa ekki upplifað menntaskóla- árin eins og aðrir „venjulegir“ krakkar? „Nei, alls ekki. Það er alltaf verið að spyrja mig að þessu. En það skiptir mig engu máli.“ – Þegar þú varst 9 ára lýstir þú yfir að þú vildir verða leikstjóri þegar þú yrðir stór. Er það enn á stefnuskránni? „Já, tvímælalaust. Ég er nærri því að láta þann draum rætast nú en þá en samt er ég ekki tilbúin og hef ekki fundið nein verkefni sem heilla mig.“ – Síðan þú lékst í American Beauty virðist sem þú hafir valið að leika í litlum myndum fremur en Hollywood-myndum. Er það rétt? „Má vera, en það hefur ekki verið meðvitað. Ég vel hlutverk fyrst og fremst út af handritinu og skiptir þá engu hvort myndirnar eru litlar eða stórar, frá Hollywood eða Eng- landi.“ – En hefurðu vísvitandi haldið þig utan við bylgju unglingamynda sem gerðar hafa verið í Hollywood und- anfarið? „Nei, ef ég fæ í hendurnar gott handrit þess eðlis er ég alveg vís til þess að slá til og taka þátt í einni slíkri.“ Áskorun – Yfir í The Hole. Hvað kom til að þú ákvaðst að leika í enskri mynd? „Ég féll einfaldlega fyrir sterkri sögunni. Ég kann vel við spennu- sögur þar sem ekki er allt sem það sýnist. Hlutverkið var og áskorun fyrir mig því ég hafði aldrei leikið neitt því líkt og ég hafði ekki heldur leikið í spennutrylli og langaði að prófa það.“ – Varstu ekkert hikandi yfir því að leika í lítilli enskri mynd eftir að hafa vanist Hollywood-vinnubrögð- unum? „Nei, en kannski hefði ég átt að gera það,“ segir hún og hlær af óör- yggi rétt eins og hún hafi fattað um leið að þetta hefði hún betur látið ósagt. – Var ekkert erfitt að temja sér enska mállýsku? „Nei, reyndar ekki. Ég fékk stífa leiðsögn og svo voru bara tekin upp stutt atriði með mér í einu svo ég þyrfti að lagfæra minna. En ég kæri mig svo sem ekkert um að þurfa að tala með enskum hreim aftur.“ – Er mikill munur á því að vinna að enskri mynd og Hollywood- mynd? „Framleiðsluferlið er það sama en tæknivinnan er öllu þróaðri í Hollywood, fríðindin meiri. Það var allt fremur smærra í sniðum og lát- lausara í Englandi.“ – Höfðar það til þín? „Nei, ekkert sérstaklega en það skiptir ekki máli. Þótt það sé aðeins óþægilegra að taka þátt í gerð lít- illar myndar þá er og verður það alltaf handritið sem ræður úrslit- um.“ Thora Birch leikur aðalhlutverkið í spennumyndinni The Hole sem frumsýnd er um helgina Úr auglýsingum í Óskarsmynd Thora Birch var meinlaus barnastjarna í hugum fólks þegar hún sýndi stórleik í American Beauty og steig fram á sjónarsviðið sem fullsköpuð leikkona. Skarphéðinn Guðmundsson spjallaði við hana um veginn frá auglýsingaleik til Óskarsverðlauna- myndar og nýjustu mynd hennar The Hole. skarpi@mbl.is Thora Birch aðalleikkona The Hole er 19 ára og þykir mikið efni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.