Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 74
FRÉTTIR
74 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR skömmu kom Hannes Hösk-
uldsson, eigandi Skipaafgreiðslu
Húsavíkur ehf., færandi hendi á æf-
ingu hjá bocciadeild Völsungs. Er-
indið var að afhenda liðsmönnum í
flokki fatlaðra, leiðbeinanda þeirra
og aðstoðarmönnum flíspeysur til
að nota á keppnisferðalögum. Peys-
urnar eru hinar vönduðustu, merkt-
ar bæði Skipaafgreiðslunni og Völ-
sungi. Hannes sagði við þetta
tækifæri að hann væri ánægður að
geta styrkt liðið og stoltur af því.
Hann tók fram að fyrirtækið hefði
átt góð samskipti við deildina, einn
liðsmaður deildarinnar væri starfs-
maður sinn, en nú liti hann á liðið í
heild sem merkisbera fyrirtækisins.
Hannes óskaði þeim að lokum alls
hins besta og góðs gengis á mótum í
framtíðinni.
Bragi Sigurðsson, formaður bocc-
iadeildarinnar, þakkaði Hannesi og
félögum hans á Skipaafgreiðslunni
höfðinglega gjöf og sagði fyrir-
tækið hafa sýnt deildinni góðan
stuðning gegnum tíðina. Gjafir sem
þessar og stuðningur væri deildinni
ómetanlegur og hvetti liðsmenn til
enn frekari dáða. Egill Olgeirsson,
leiðbeinandi liðsins, sagði, að með
því að allir liðsmenn væru eins
klæddir og vel til fara á mótum
skapaðist liðsheild og eftir liðinu
væri tekið, bæði af áhorfendum og
keppendum.
Góð þátttaka í mótum
Að sögn Egils hefur mikil gróska
verið í starfi bocciadeildar Völsungs
á árinu. Félagar á hennar vegum
hafa farið á öll helstu mót og sýnt
frábæra frammistöðu, m.a. unnið Ís-
landsmeistaratitla, gullverðlaun á
Landsmóti UMFÍ og Norðurlands-
meistaratitla. Þá hefur í vetur orðið
mikil fjölgun í opnum flokki, í hon-
um æfa og keppa eldri borgarar
bæjarins og hafa þeir staðið sig
mjög vel á mótum það sem af er
vetri. Stjórn bocciadeildar Völsungs
skipa núna, auk Egils og Braga for-
manns, þau Lilja Sæmundsdóttir,
Kristín Magnúsdóttir og Arnar
Guðlaugsson sem jafnframt hefur
verið yfirdómari á öllum mótum
sem deildin hefur staðið að frá upp-
hafi eða í 11 ár og geri aðrir betur.
Egill segir að til að starf sem þetta
geti dafnað og árangur náist þurfi
margir að leggja hönd á plóginn til
að skapa þær aðstæður og stemmn-
ingu sem þarf til. Í tilfelli boccia-
deildarinnar hefur ekkert af þessu
vantað, þátttakendur eru frábærir,
áhugasamir og stunda íþrótt sína af
dugnaði og prúðmennsku. Því til
sönnunar nefnir Egill að einn úr liði
fatlaðra, Ásgrímur Sigurðsson,
mæti á flestar æfingar þótt hann búi
fram í Bárðardal og þurfi að fara
um 100 km leið á hverja æfingu.
Allt frá stofnun deildarinnar hef-
ur Kiwanisklúbburinn Skjálfandi
verið traustur bakhjarl og veitt
deildinni fjárhagslegan stuðning.
Félagar í Skjálfanda hafa aðstoðað
við öll mót sem haldin hafa verið og
standa auk þess árlega að Þórð-
armótinu. „Þessi stuðningur þeirra
er íþróttafólkinu ómetanlegur,“
sagði Egill að lokum.
Gróska í starfi bocciadeildar Völsungs
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Boccialið Völsungs í flokki fatlaðra ánægt með nýju peysurnar.
Lið
fatlaðra
fékk flís-
peysur
Húsavík. Morgunblaðið.
UNGMENNAFÉLAG Selfoss
hefur tekið í notkun netverslun á
heimasíðu sinni. Þessi verslun
kallast Big Planet. Allt sem versl-
að er á þessari síðu er til stuðn-
ings Umf. Selfoss. Þar er að finna
hluti fyrir GSM síma, Nu Skin
snyrtivörur og Pharmanex
heilsuvörur og vítamín.
Mikið af spennandi jólatilboð-
um er á síðunni, að sögn Krist-
ínar Gísladóttur framkvæmda-
stjóra félagsins. „Það eina sem
þarf að gera til að skoða og versla
er að fara inn á heimasíðu Umf.
Selfoss og skoða „fréttir“, slóðin
er http://umf.selfoss.is.,“ sagði
Kristín
Mánudaginn 10. desember kl.
20 verður síðan allsherjar kynn-
ing á vörunum og kennsla í því að
versla í Tíbrá, Félagsheimili Umf.
Selfoss. Allar mæður og velunn-
arar Umf. Selfoss eru velkomin.
Ungmennafélag
opnar netverslun
Selfossi Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Netverslunin opnuð á heimasíðu Ungmennafélags Selfoss, Kristín
Gísladóttir framkvæmdastjóri, Ólafur Ragnarsson gjaldkeri og
Magnús Gíslason meðstjórnandi.