Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AUKINNAR svartsýni gætir á
skuldabréfamarkaði samkvæmt um-
fjöllun Greiningar Íslandsbanka um
horfur á næsta ári og spá um þróun
ákvöxtunarkröfunnar, sem birt var í
gær. Þar segir að ávöxtunarkrafa
lengri skuldabréfa hafi hækkað
nokkuð í kjölfar birtingar Íbúðalána-
sjóðs á áætlaðri útgáfu húsbréfa og
húsnæðisbréfa á næsta ári.
Fram kemur í umfjöllun Greining-
ar Íslandsbanka að eftirspurn á
skuldabréfamarkaði verði lítillega
umfram framboð á næsta ári. Því
megi ætla að lítið svigrúm verði til
lækkunar ávöxtunarkröfunnar og
eigi það einkum við um skuldabréf til
lengri tíma. Hafa beri þó í huga að
ávöxtunarkrafan hafi hækkað mikið
undanfarið og sé nú mjög há í sögu-
legu samhengi. Þættir sem geti
breytt þessari mynd séu t.d. ef sam-
dráttur á fasteignamarkaði verði
meiri en bankinn gerir ráð fyrir eða
ef uppbygging leiguíbúðakerfisins
tekur lengri tíma en áætlað er.
Hvort tveggja myndi þýða meiri
lækkun ávöxtunarkröfunnar en gert
er ráð fyrir.
Greining Íslandsbanka telur að
Seðlabankinn muni lækka vexti um
2,2% fyrir lok næsta árs og segir að
sú lækkun ætti að hafa áhrif á vexti á
skuldabréfamarkaði.
Færri húsbréfalán til notaðra íbúða
Samkvæmt því sem fram kemur í
umfjöllun Greiningar Íslandsbanka
hefur íbúðaverð hækkað mikið á því
þensluskeiði sem nú virðist á enda.
Þannig hafi íbúðaverð á höfuðborg-
arsvæðinu hækkað yfir 30% umfram
almenna verðbólgu frá upphafi árs
1998 til sama tíma 2001. Töluvert
hafi þó hægt á hækkunum að und-
anförnu. Vænta megi að kaupmáttur
rýrni nokkuð á næstu mánuðum en
ekki þannig að það kalli á umtals-
verðan samdrátt á íbúðamarkaði. Þó
gerir bankinn ráð fyrir að umsókn-
um um húsbréfalán vegna kaupa á
notuðu húsnæði fækki nokkuð á
næsta ári, bæði vegna lítils háttar al-
menns samdráttar og vegna tilflutn-
ings yfir á leigumarkað.
Varðandi nýjar íbúðir telur Grein-
ing Íslandsbanka að framboð á nýju
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu
muni á næsta og jafnvel næstu árum
ekki ná til að fullnægja þörf. Litlar
líkur séu því á verðlækkunum af
þeim sökum. Vera megi þó að aukin
áhersla verði lögð á byggingu ódýr-
ara húsnæðis. Greining Íslands-
banka gerir ráð fyrir um 10% sam-
drætti í nýbyggingum einstaklinga á
næsta ári en að fjöldi lána bygging-
araðila standi nokkurn veginn í stað.
Gert er ráð fyrir hækkun meðal láns-
fjárhæðar til nýbygginga og lítils-
háttar hækkun lána til bygginga-
verktaka og endurbóta.
Greining Íslandsbanka telur að þó
verð á íbúðum hafi hækkaði mikið á
undanförnum árum sé ekkert sem
segi að það þurfi að lækka að nýju.
Fátt bendi til þess að framundan sé
umtalsverð lækkun.
Greining Íslandsbanka um horfur á skuldabréfamarkaði
Lítið svigrúm til lækk-
unar ávöxtunarkröfu
Útboð hafið
í Bakkavör
SALA til almennings í hlutafjár-
útboði Bakkavarar Group hófst í
gær á heimasíðu Kaupþings en út-
boðið stendur fram á miðvikudag.
Um er að ræða sölu á nýju hlutafé
eða 700 milljónum króna að sölu-
virði sem selt verður almenningi.
Samtímis stendur yfir útboð til fag-
fjárfesta, en áformað er að selja til
þeirra hlutabréf að markaðsvirði
2,2 milljarðar króna, en heimilt er
að hækka þá fjárhæð um allt að 700
milljónir króna, verði um verulega
umframáskrift að ræða.
Lágmarksáskrift fyrir hvern fjár-
festi er 50.000 krónur að söluvirði
en hámarksáskrift er 2 milljónir
króna. Verði um umframáskrift að
ræða í almenna hluta útboðsins
skerðist hámarksfjárhæð sem
hverjum áskrifanda er heimilt að
skrá sig fyrir. Gengi bréfanna er
6,8 en getur lækkað, allt niður í 6,2,
ef endanlegt útboðsgengi, sem
ákvarðast af áhuga fagfjárfesta,
verður lægra en áskriftarverð til al-
mennings og fagfjárfesta verður
það sama.
Greiningardeild sænska fjárfest-
ingarbankans Aragon mælir með að
fjárfestar skrái sig í útboði Bakka-
varar. Samkvæmt verðmati Aragon
er markgengi Bakkavarar til 6–12
mánaða 10. Telur deildin að svig-
rúm sé til þess að gengið hækki í
12,5–13 ef félagið nær rekstrar-
markmiðum sínum og ef vel tekst
til að fella Katsouris Fresh Food
Ltd. að núverandi starfsemi Bakka-
varar.
Bræðurnir
í Bakkavör
menn ársins
FRJÁLS verslun hefur útnefnt
bræðurna Ágúst og Lýð Guð-
mundssyni í Bakkavör sem menn
ársins 2001 í atvinnulífinu.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að þeir hljóta þennan heiður fyrir
framúrskarandi athafnasemi sem
ekki aðeins hefur fært Bakkavör
í fremstu röð fyrirtækja á Íslandi
heldur er það orðið vel metið og
þekkt í sinni grein erlendis.
Þetta er í fjórtánda sinn sem
Frjáls verslun útnefnir menn árs-
ins í íslensku atvinnulífi. Við-
urkenningin verður afhent þeim
bræðrum í móttöku sem Frjáls
verslun heldur þeim til heiðurs á
Hótel Sögu milli jóla og nýárs.
Flugleiðir falla úr Úrvalsvísitölu
FLUGLEIÐIR verða ekki hluti af
Úrvalsvísitölu Verðbréfaþings Ís-
lands á tímabilinu frá 1. janúar
næstkomandi til 1. júlí og er það í
fyrsta skiptið síðan byrjað var að
reikna út Úrvalsvísitöluna að
Flugleiðir eru ekki hluti af henni.
Tvö ný félög koma inn í vísitöl-
una og hefur hvorugt þessara fé-
laga áður verið í vísitölunni. Þau
félög sem inn koma eru Delta og
Sjóvá-Almennar tryggingar og
koma þau í stað Flugleiða og
Húsasmiðjunnar.
Alls eru 50 hlutafélög skráð á
Aðallista þingsins, utan hluta-
bréfasjóða, og vega þau 15 félög
sem verða í Úrvalsvísitölunni sam-
tals 69,6% af markaðsverðmæti
þeirra. Velta þessara félaga sem
valin hafa verið í vísitöluna er 83%
af veltu hlutabréfa á Aðallista á
síðastliðnum 12 mánuðum.
mbl.isFRÉTTIR