Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 16
SUÐURNES 16 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ GERÐAHREPPUR gæti hugsan- lega þurft að greiða liðlega 100 millj- ónir af skuldum Hafnasamlags Suð- urnesja, segi hreppurinn sig úr samlaginu, þrátt fyrir að samlagið hafi aðeins tekið yfir skuldir og lagt í kostnað við höfnina í Garði rúmar 16 milljónir á þeim tíma sem hreppur- inn hefur verið í samlaginu. Vatns- leysustrandarhreppur gæti þurft að greiða 90 milljónir en þar hafa meiri nýframkvæmdir verið við höfnina. Skilanefnd sem skipuð var vegna úrsagnar Vatnsleysustrandarhrepps úr Hafnasamlagi Suðurnesja (HASS) vinnur að því að skipta eign- um og skuldum hafnasamlagsins milli eigendanna sem eru Reykja- nesbær og Gerðahreppur, auk Vatnsleysustrandarhrepps. Lagðir hafa verið fram ýmsir útreikningar og stefnir skilanefndin að því að ljúka störfum í næstu viku. Skipta eignum og skuldum Miklar umræður urðu um stöðu Gerðahrepps í samlaginu í vikunni þegar fulltrúar hreppsins í skila- nefndinni, Sigurður Jónsson sveitar- stjóri og Viggó Benediktsson hreppsnefndarmaður, gerðu hrepps- nefnd grein fyrir störfum nefndar- innar. Skilanefndin hefur það hlutverk að skipta eignum og skuldum HASS á milli sameigendanna. Samkvæmt stofnsamningi á hún að leggja til grundvallar eigna- og skuldastöðu hafnasjóðanna í lok árs 1996, þegar þeir sameinuðust, og taka tillit til framkvæmda á hverjum stað frá þeim tím svo og skuldbindinga vegna þeirra. Höfnin í Garði var nánast skuldlaus þegar hún rann inn í hafnasamlagið og sáralítið hefur ver- ið framkvæmt þar. Samkvæmt þessu ætti Gerða- hreppur að fá eignirnar í Garði og greiða rúmar 16 milljónir inn í Hafnasamlagið, ef hann kysi að segja sig úr samlaginu. Vatnsleysu- strandarhreppur sagði sig úr HASS fyrir ári og á úrsögnin að taka gildi í mánuðinum. Meira hefur verið fram- kvæmt í Vogum en Garði og þarf Vatnsleysustrandarhreppur að greiða rúmar 40 milljónir kr., sam- kvæmt þessu ákvæði stofnsamnings- ins, til að leysa til sín hafnarmann- virkin í Vogum. Kafloðinn samningur En málið er ekki svona einfalt. Hafnasamlagið hefur verið rekið með miklu tapi frá upphafi, rúmlega 100 milljónum á ári, og nærri tvö- faldað skuldir sínar frá stofnun. Tal- ið er skuldir séu nú ríflega 1.100 milljónir en voru 600 í ársbyrjun 1997. Í stofnsamningi er kveðið á um að ef eigendur þurfi að leggja hafna- samlaginu til aukið eigið fé vegna taprekstrar skuli það gert í hlutfalli við íbúatölu þeirra. Það hafa eigend- urnir ekki gert en kosið á láta fyr- irtækið safna skuldum í staðinn. Endurskoðendur og lögfræðingar hafa túlkað stofnsamninginn og sér- staklega síðarnefnda ákvæðið á ýms- an hátt enda er stofnsamningurinn „kafloðinn“ og „leiðinlegt plagg“, eins og Viggó Benediktsson lýsti því á hreppsnefndarfundinum í Garði. Endurskoðendur hafa reiknað það út að Gerðahreppur þyrfti að greiða um 85 milljónir kr. til viðbótar þeim 16 sem áður eru nefndar, vegna taps og skuldaaukningar HASS, samtals rúmar 100 milljónir kr. Vatnsleysu- strandarhreppur þyrfti með sama hætti að greiða 50 milljónir vegna þessa ákvæðis, eða samtals 91 millj- ón fyrir þær liðlega 40 milljónir sem hreppurinn hefur fengið frá samlag- inu með yfirtöku þess á skuldum og kostnaði við nýframkvæmdir. Kom það fram á hreppsnefndar- fundinum í Garði að hreppsnefndar- menn sætta sig ekki við að þurfa að greiða 100 milljónir, í því fælist hróp- legt óréttlæti í ljósi þess að nánast engar framkvæmdir hefðu verið við höfnina í Garði. Í því sambandi voru rifjuð upp loforð ráðamanna um að byggja þar smábátahöfn og virtust menn orðnir vonlitlir um efndir á þeim. Einn hreppsnefndarmaður, Ólaf- ur Kjartansson, lagði áherslu á að ef til úrsagnar kæmi yrðu ekki greidd- ar nema umræddar 16 milljónir kr., að öðrum kosti yrði Gerðahreppur að segja sig einhliða úr hafnasamlag- inu. Boðar tillögu um úrsögn Viggó Benediktsson, fulltrúi I- lista, boðaði tillögu um úrsögn úr HASS á síðari stigum og sagði að út- lit væri fyrir að meirihluti væri að myndast fyrir slíkri ákvörðun. Finn- bogi Björnsson, annar fulltrúi H- listans, rifjaði þá upp að hann hefði hvað eftir annað flutt tillögur um úr- sögn úr hafnasamlaginu en meiri- hluti F-listans ávallt fellt þær. Skuldir Hafnasamlagsins hefðu auk- ist um 200–300 milljónir frá því til- lagan var felld í fyrsta skipti. Dýrt fyrir Voga og Garð að yfirgefa Hafnasamlag Suðurnesja Gætu þurft að greiða 90–100 milljónir króna Stofnsamningur Hafnasamlags Suðurnesja er svo loðinn að hann býður upp á mismun- andi túlkanir. Helgi Bjarnason fylgdist með umræðum í hreppsnefnd Gerðahrepps um slit samlagsins og kynnti sér útreikninga um skiptingu skulda þess. Reykjanesbær/Garður/Vogar ÁLAGNING útsvars í Gerðahreppi verður óbreytt á næsta ári frá því sem nú er. Fasteignagjöld hækka vegna hækkunar fasteignamats í haust en lóðarleiga verður lækkuð. Hreppsnefnd Gerðahrepps gekk formlega frá álagningarreglum fyr- ir komandi ár á síðasta fundi sín- um. Útsvar verður 12,7%, eins og nú er. Að tillögu meirihluta F- listans var ákveðið að halda fyr- irkomulagi álagningar fasteigna- gjalda einnig óbreyttu nema hvað aukavatnsgjald fyrirtækja hækkar lítillega. Þá lækkar lóðarleiga hjá þeim sem eiga hús á lóðum í eigu Gerðahrepps, eða úr 2% af fast- eignamati í 1%. Fasteignamat húsa og lóða í Gerðahreppi hækkaði verulega við endurmat í haust. Með því að álagningarhlutföll verða óbreytt aukast tekjur Gerðahrepps um 6 milljónir að mati Sigurðar Jóns- sonar sveitarstjóra. Hann sagði á hreppsnefndarfundi þegar þetta var ákveðið að með því að lækka lóðarleigu væri verið að koma til móts við fólk vegna hækkunar lóð- armats. Þá legði meirihluti hrepps- nefndar áherslu á að aðrir landeig- endur lækkuðu leiguna með sama hætti. Fulltrúar H-listans lögðu til að fasteignagjöldin yrðu lækkuð til samræmis við hækkun fasteigna- matsins. Sögðu þeir óeðlilegt að Gerðahreppur hagnaðist á hækkun fasteignamats á landsvísu. Áætluðu þeir að ákvörðun meirihlutans um óbreytt álagningarhlutföll hækkaði gjöld Garðmanna um 7–10 milljónir á næsta ári, umfram verðlags- breytingar. Hins vegar lagði fulltrúi I- listans, sem skipar minnihluta hreppsnefndar ásamt H-listanum, til að fasteignagjöld á atvinnuhús- næði yrðu hækkuð úr 1 í 1,4%, til samræmis við það sem gengur og gerist í nágrannasveitarfélögum. Báðar tillögurnar voru felldar og vilji meirihlutans náði fram að ganga. Fasteignagjöld hækka vegna hærra mats Garður NOKKUR hópur fólks kom á kynningu á umhverfisáhrifum breikkunar Reykjanesbrautar sem Vegagerðin stóð fyrir í Reykja- nesbæ í fyrradag. Bæjarfulltrúar, forystumenn í ferðamálum og áhugamenn um breikkun Reykja- nesbrautar voru meðal þeirra sem vildu fræðast um verkefnið. Að sögn Jónasar Snæbjörns- sonar, umdæmisstjóra Vegagerð- arinnar á Reykjanesi, var mest spurt um það hvenær fram- kvæmdir gætu hafist og hvenær þeim lyki og höfðu sumir áhyggj- ur af niðurskurðarhnífnum. Jónas segir að rætt sé um að fram- kvæmdir hefjist á næsta ári og samkvæmt langtímaáætlun í vega- gerð ætti þeim að vera lokið fyrir 2010. Öðruvísi gætu starfsmenn Vegagerðarinnar ekki svarað slíkum spurningum á þessari stundu. Jónas segir að ekki hafi verið gerðar alvarlegar athuga- semdir við útfærslu tvöföldunar brautarinnar. Morgunblaðið/Hilmar Bragi Bárðarson Kynna sér fyr- irkomu- lag tvö- földunar Reykjanesbraut Reykjanesbær - Kostnaður við framkvæmd Ljósanætur, menningarhátíðar sem haldin var í Reykjanesbæ í haust, nam tæpum 2,7 milljónum. Útgjöld urðu minni en styrkir og fram- lög sem undirbúningsnefndin hafði til ráðstöfunar. Fram kom hjá Steinþóri Jónssyni hótelstjóra á fundi markaðs- og atvinnuráðs Reykjanesbæjar fyrir skömmu að Reykjanes- bær hefði lagt 1,5 milljónir í framkvæmdina og fyrirtæki tæpar 1,3 milljónir að auki. Út- gjöld urðu tæpar 2,7 milljónir, nokkru hærri en áætlað var vegna ófyrirsjáanlegs kostn- aðar við viðgerðir á ljósum við Bergið. Tekjuafgangur varð 87 þúsund kr. Fram kom í ráðinu að almenn ánægja var með framkvæmd Ljósanætur. Tekjuaf- gangur af Ljósanótt Njarðvík/Keflavík - Lög- reglan í Keflavík hafði seint í fyrrakvöld afskipti af öku- manni vegna hraðaksturs í Njarðvík. Þegar betur var að gáð fundust áhöld til fíkniefna- neyslu í bílnum. Bifreiðin var stöðvuð á Njarðarbraut þegar henni var ekið á 94 km hraða þar sem 60 km hámarkshraði gildir. Síðar hafði lögregla af- skipti af ökumanni og farþeg- um í bifreið á bílaplani í Kefla- vík. Við athugun fann lögregla sprautu og tvö grömm af efni sem talið er vera amfetamín. Fíkniefni og áhöld í bílum Keflavík - Efnt verður til að- ventutónleika í Keflavík- urkirkju á morgun, sunnudag, klukkan 20.30. Áhersla er á létta en hátíðlega helgitónlist. Nokkrir af þekktustu söngv- urum Reykjanesbæjar koma fram á tónleikunum; Rúnar Júl- íusson, Birta Sigurjónsdóttir og Guðmundur Hermannsson. Með þeim leikur hljómsveit sem skipuð er þeim Rúnari Júl- íussyni, Júlíusi og Baldri sonum hans og mági, Þóri Baldurssyni. Þá mun kirkjukór Keflavík- urkirkju flytja þrjú hátíðleg lög. Flutt verður blanda af nýrri og gamalli tónlist. Meðal annars mun Rúnar flytja lag af nýrri hljómplötu sinni. Auk tónlistar- flutnings flytur sóknarprestur Keflavíkurkirkju hugvekju. Jólasveifla í Keflavík- urkirkju Garður - Íbúðalánasjóður hefur samþykkt að veita Gerðahreppi 60 milljóna kr. lán til að byggja tíu leiguíbúðir fyrir aldraða í Garði. Gerðahreppur hefur um tíma unnið að undirbúningi bygg- ingar leiguíbúða fyrir aldraða, í kjölfar skoðanakönnunar sem sýndi að áhugi er meðal eldri borgara á staðnum að nýta sér slíka aðstöðu. Fyrirhugað er að byggja hús- ið í nágrenni hjúkrunarheimilis- ins Garðvangs og á síðasta fundi hreppsnefndar var ákveð- ið með atkvæðum fulltrúa meirihlutans, F-listans, að ráða Sigríði Sigþórsdóttur, arkiktekt hjá VA arkitektum, til að skipu- leggja svæðið. Fulltrúar minni- hlutaflokkanna í hreppsnefnd vildu að samið yrði við Arki- tekta sf. um verkið en þeir hafa unnið mikið fyrir Gerðahrepp. Loforð veitt um lán
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.