Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 13
undirfataverslun
Opið
mán.-laugard.
frá kl. 12-18
- Nýtt kortatímabil -
Lagerútsala - Síðumúla 3-5
Undirföt -
náttkjólar -
sloppar
Merkjavara
á frábæru
verði
ÞRJÁTÍU ár eru í dag liðinn frá því
að tekið var upp stjórnmála-
samband milli Íslands og Kína.
Sendiherra Kína á Íslandi, Wang
Ronghua, segir á þessum tímamót-
um að ekkert bendi til annars en að
samskipti ríkjanna eigi eftir að
aukast enn frekar á næstu árum.
Stjórn Kínverska alþýðulýðveld-
isins í Peking fékk aðild að Samein-
uðu þjóðunum 26. október 1971 í
stað stjórnarinnar á Taívan-eyju. Ís-
lendingar greiddu atkvæði með
þessari breytingu á allsherjarþingi
SÞ og var það aðdragandi þess að
Ísland og Kína tóku upp stjórnmála-
samband 8. desember það ár.
Wang Ronghua hefur gegnt emb-
ætti sendiherra Kína á Íslandi í tæp
fjögur ár og segir hann margt líkt
með íslensku þjóðinni og þeirri kín-
versku. „Þetta eru hvoru tveggja
friðsamar þjóðir. Íslendingar eru
framtakssamir og iðnir og þeim hef-
ur á um 50 árum tekist að byggja
upp nútímalegt ríki, þrátt fyrir að
náttúrufar og aðstæður séu að
mörgu leyti erfiðar. Kínverjar eru
einnig mjög iðnir og vinnusamir. Á
síðustu 25 árum höfum við opnað
landið og gengist undir miklar um-
bætur, svo þróunin hefur einnig
verið ör í Kína á undanförnum ára-
tugum. Og síðast en ekki síst eiga
báðar þjóðirnar ríka menningar-
arfleifð,“ segir Ronghua.
Sendiherrann segir á hinn bóginn
margt ólíkt með Íslendingum og
Kínverjum, einkum hugarfar og
gildismat. „Hjá Íslendingum er ein-
staklingurinn í fyrirrúmi, en sam-
kvæmt kínverskri hefð leggjum við
meiri áherslu á velferð heildar-
innar. En það þýðir þó ekki að við
hunsum hagsmuni einstaklingsins,“
segir Ronghua og bætir við að við-
skiptahættir séu einnig nokkuð
ólíkir meðal þjóðanna. Íslendingar
reiði sig í miklu meira mæli á milli-
liði, á meðan Kínverjar kjósi helst
að hafa bein samskipti.
Ronghua segir að samskipti Ís-
lendinga og Kínverja hafi aukist til
muna eftir að stjórnmálasambandi
var komið á milli þjóðanna. Hvað
stjórnmálin varðar komi það meðal
annars fram í fjölmörgum heim-
sóknum ráðamanna milli ríkjanna.
Sendiherrann nefnir
meðal annars að á
undanförnum tveimur
árum hafi landbún-
aðarráðherra, sjáv-
arútvegsráðherra og
utanríkisráðherra Ís-
lands sótt Kína heim.
Á síðasta ári hafi jafn-
framt Li Peng, forseti
kínverska þingsins,
komið hingað til lands,
sem og Ding Guangen,
ráðherra upplýsinga-
mála, Wu Yi, meðlimur
í kínverska ríkisráðinu
og Han Zhubin, rík-
issaksóknari Kína.
„Slíkar heimsóknir
eru mjög mikilvægar því þær gera
okkur kleift að auka á skilning milli
þjóðanna,“ segir Ronghua. Hvað
viðskipti ríkjanna varðar segir
sendiherrann að stóraukning hafi
orðið á síðustu tíu árum. „Á síðasta
ári námu viðskipti Kínverja og Ís-
lendinga 58 milljónum dollara, sem
er 5,33 sinnum meira
en árið 1991,“ segir
Ronghua, en helstu út-
flutningsvörur Íslend-
inga til Kína eru karfi,
loðna og rækja.
Ronghua bendir
einnig á að Íslendingar
hafi keypt fjölda fiski-
skipa frá Kína á und-
anförnum árum og að
Kínverjar hafi notið
liðveislu Íslendinga í
málum er lúta að jarð-
hita.
Sendiherrann segir
samskipti þjóðanna
ennfremur hafa aukist
mjög á menning-
arsviðinu. Hann nefnir að Íslend-
ingasögurnar og Snorra Edda hafi
verið gefnar út á kínversku og að
samningar hafi nýlega náðst um út-
gáfu Engla alheimsins eftir Einar
Má Guðmundsson í Kína. Kínversk
kvikmyndahátíð hafi verið haldin
hér á landi í júlí og jafnframt hafi ís-
lensk kvikmyndavika verið haldin í
Peking í síðasta mánuði, sem hafi
tekist mjög vel.
Aukin tækifæri í kjölfar
inngöngu Kína í WTO
Ronghua segir að samskipti Ís-
lands og Kína geti aðeins batnað á
næstu árum.
„Á þriðjudag verður Kína full-
gildur meðlimur í Heimsvið-
skiptastofnuninni og það þýðir að
landið mun opnast enn frekar.“
Ronghua segir að miklar umbætur
hafi átt sér stað í Kína á undan-
förnum árum og að aðildin að
Heimsviðskiptastofnuninni (WTO)
muni knýja á um enn frekari þróun í
þá átt. Kínversk stjórnvöld verði að
hlíta skilmálum WTO og það hafi í
för með sér minnkandi afskipti
þeirra af verslun og viðskiptum.
„Ég sé fyrir mér að fisksala Ís-
lendinga til Kína muni stóraukast,“
segir sendiherrann. Hann bendir á
að stórir markaðir muni opnast
þegar Kínverjar fella niður tolla og
að markaðirnir muni jafnframt
stækka eftir því sem velmegun kín-
versku þjóðarinnar eykst. Með auk-
inni markaðssókn Íslendinga í Kína
verði möguleikarnir óendanlegir,
enda sé eftirspurnin eftir fiski nær
óþrjótandi í þessu stóra landi.
Ronghua kveðst einnig telja að
ferðamannastraumur muni aukast
milli ríkjanna, enda hafi þau bæði
upp á einstaka hluti að bjóða. Hann
segir að á síðasta ári hafi um 400
kínverskir ferðamenn komið hingað
til lands, en kveðst búast við að á
næsta ári muni þeir nálgast þúsund.
„Ef við lítum til næstu þrjátíu ára
tel ég að samskipti ríkjanna eigi eft-
ir að verða enn nánari og að þjóð-
irnar muni komast í betri kynni
hvor við aðra,“ segir Ronghua að
lokum. „Við sáum saman og upp-
skerum saman. Báðar þjóðirnar
njóta góðs af þessum tengslum.“
Þrjátíu ár eru liðin frá stofnun stjórnmálasambands milli Íslands og Kína
Samskiptin líkleg til að
aukast enn á næstu árum
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Sigurður Bjarnason, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, og Yueh
Siang, sendiherra Kína í Kaupmannahöfn, undirrita sameiginlega yfir-
lýsingu Íslands og Kínverska alþýðulýðveldisins um stofnun stjórnmála-
sambands hinn 8. desember 1971.
Sendiherra Kína á Íslandi, Wang Ronghua,
segir margt líkt með Íslendingum og Kínverjum.
Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir tók hann tali í
tilefni þess að þrjátíu ár eru liðin frá því að
stjórnmálasamband var tekið upp milli þjóðanna.
aith@mbl
Wang Ronghua
RÝMA þurfti rannsóknarstofu
Landspítala – háskólasjúkrahúss við
Hringbraut í frumulíffræði í skyndi í
hádeginu í gær eftir að eitraðar
gufur tóku að streyma úr plastdunki
sem geymdi efnið akrýlamíð. Að
sögn Rósu Bjarkardóttur, yfirlíf-
fræðings á rannsóknarstofunni, var
enginn starfsmaður í hættu vegna
þessa.
Skömmu fyrir hádegi í gær voru
starfsmenn rannsóknarstofunnar að
blanda efninu akrýlamíði saman við
vökva en þannig er efnið skaðlaust.
Blandað var í fjóra plastdunka en
svo virðist sem efnið í einum þeirra
hafi af einhverjum orsökum ofhitn-
að, plastið tók að bráðna og eitraðar
gufur stigu upp af dunknum. Rósa
segir að starfsfólkið hafi brugðist
hárrétt við aðstæðum. Húsið var
rýmt, hurðum og gluggum lokað og
slökkvilið kallað til. Hún segir að
starfsfólkið hafi ekki verið í hættu
heldur hafi verið um öryggisráðstöf-
un að ræða. Rannsóknarstofan sem
stendur við Eiríksgötu var lokuð í
um klukkustund vegna atviksins.
Ekki ljóst hvað varð
til þess að efnið ofhitnaði
Slökkviliðsmenn frá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins fóru inn í hús-
ið í eiturefnabúningum, fjarlægðu
efnið og loftuðu út. Að því búnu var
farið með efnið til förgunar.
Rósa segir ekki ljóst hvað varð til
þess að efnið ofhitnaði en það hefur
verið notað við kjarnsýrurannsóknir
á rannsóknarstofunni í fjöldamörg
ár. Hitni efnið þannig að gufur
standa frá því getur það verið
krabbameinsvaldandi eða skemmt
taugakerfið en til þess þarf efnið þó
að vera í miklu magni.
Rannsóknarstofur LHS við Hringbraut voru rýmdar í skyndi
Morgunblaðið/Júlíus
Slökkviliðsmenn í eiturefnabúningum flytja efnið til förgunar.
Efni ofhitnaði og mynd-
aði eitraðar gufur
HREGGVIÐUR Jónsson, forstjóri
Norðurljósa, segir í samtali við
Morgunblaðið að allar líkur séu á því
að fyrirtækið leiti næst til Eftirlits-
stofnunar EFTA, ESA, í ljósi niður-
stöðu samkeppnisráðs í máli þeirra
gegn Ríkisútvarpinu, RÚV.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu
í gær telur samkeppnisráð ekki laga-
leg skilyrði vera til íhlutunar vegna
samkeppnisstöðu leyfisbundins út-
varpsrekstrar einkaaðila gagnvart
RÚV, líkt og Norðurljós höfðu gert
kröfu um. Félagið, sem rekur m.a.
Stöð 2, Bylgjuna og Sýn, krafðist
þess einnig að Samkeppnisstofnun
bannaði RÚV að selja auglýsingar á
öðru verði en fram kæmi í töxtum
þess.
Samkeppnisráð telur heldur ekki
lagaleg skilyrði fyrir því að beita fjár-
hagslegum aðskilnaði þannig að
tekjum af útvarpsgjaldi verði haldið
aðgreindum frá öðrum rekstrar-
tekjum. Í álitinu er Norðurljósum
jafnframt bent á að hægt sé að leita
til ESA með umkvörtunina.
Skilaboð til stjórnvalda
Hreggviður segir að í álitinu komi
fram ákveðin skilaboð til stjórnvalda
um hvernig þau eigi að haga sér
gagnvart ESA þegar um sé að ræða
ríkisstuðning við fyrirtæki almennt.
Stjórnvöldum sé skylt að tilkynna
sérhverja nýja ríkisaðstoð til stofn-
unarinnar, áður en hún komi til fram-
kvæmda. Jafnframt þurfi ESA stöð-
ugt að hafa til endurskoðunar alla
aðstoð sem sé við lýði á hverjum tíma.
„Ég tel að allir þeir sem kynna sér
málið séu sammála um að samkeppn-
isstaðan sé óeðlileg. Það er óeðlilegt
þegar keppt er við aðila á markaði
sem almenningur er skyldaður til að
kaupa vöruna af, áður en hann kaupir
hana af öðrum. Svo kemur niðurstaða
frá samkeppnisráði um að það hafi
ekki lögsögu í málinu. Ráðið hefur
hins vegar tekið á Landssímanum,
sem er með markaðsráðandi stöðu.
Mér finnst það mjög merkilegt að
það hafi tekið ráðið tvö ár að komast
að þeirri niðurstöðu að hafa ekki lög-
sögu í málinu,“ segir Hreggviður.
Leita líklega
næst til Eft-
irlitsstofn-
unar EFTA
Mál Norðurljósa
gegn RÚV