Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 71
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 71
AÐVENTUKVÖLD verður í Árbæj-
arkirkju sunnudaginn 9. desember
kl. 20.30.
Aðventukvöld safnaðarins mark-
ar í huga margra safnaðarmeðlima
upphafið að jólaundirbúningnum.
Eins og venjulega á þessu kvöldi er
boðið upp á vandaða dagskrá í tali
og tónum. Formaður sókn-
arnefndar Þórarinn B. Gunnarsson
flytur ávarp. Kórar kirkjunnar
koma fram og flytja kirkjugestum
nokkrar perlur tónbókmenntanna
við undirspil góðra tónlistarmanna.
Zbigniew Dubik-konsertmeistari.
Andrzej Kleina-fiðla. Lovisa Fjel-
sted-selló. Viera Manések-orgel.
Barnakórinn syngur undir stjórn
Margrétar Danheim. Kirkjukórinn
syngur nokkur lög. Gospelkórinn
kemur fram og syngur. Kórstjórn-
andi og organisti er Pavel Manések.
Aðalræðumaður kvöldsins er Andri
Snær Magnason rithöfundur og
Árbæingur. Sóknarprestur sr. Þór
Hauksson flytur aðventuhugleið-
ingu. Fermingarbörn flytja helgi-
leik „Konungurinn kemur til þín“.
Prestur safnaðarins, sr. Sigrún
Óskarsdóttir, flytur bæn. Endað
verður í kirkjunni á því að að tendr-
að er á kertum kirkjugesta og
sungin jólasálmurinn „Heims um
ból“.
Á eftir er kirkjugestum boðið að
njóta léttra veitinga heitt súkku-
laði, piparkökur og kleinur í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Aðventutónleikar í
Fella- og Hólakirkju
HALDNIR verða um klukkustund-
ar aðventutónleikar í Fella- og
Hólakirkju laugardaginn 8. desem-
ber kl. 17:00. Barna-og unglingakór
kirkjunnar og kór Fella- og Hóla-
kikrju flytja tónlistina ásamt hljóð-
færaleikurum. Sungin verða að-
ventu- og jólalög. Guðrún
Birgisdóttir og Martial Nardeau
leika á flautu og Pavel Manasek
leikur á píanó og orgel. Kórstjórar
eru Þórdís Þórhallsdóttir og Lenka
Mátéová.
Að loknum tónleikunum eru
kaffiveitingar í safnaðarheimilinu á
vegum foreldrafélags barnakór-
anna sem selja veitingarnar á vægu
verði.
Aðgangur á tónleikana er ókeyp-
is og eru allir hjartanlega velkomn-
ir.
Lenka Mátéová, organisti
Fella-og Hólakirkju.
Kór Tónlistarskólans
syngur í Dóm-
kirkjunni
KÓR Tónlistarskólans í Reykjavík
syngur við messu sunnudaginn 9.
desember kl.11:00 í Dómkirkjunni.
Hálftíma á undan messu syngja
og stjórna nemendur úr tón-
menntakennaradeild skólans. Sr.
Hjálmar Jónsson predikar en org-
anisti og kórstjóri er Marteinn H.
Friðriksson. Í messuni verða fluttir
þættir úr Söngvasveig (Ceremony
of Carols) eftir B. Britten í þýðingu
Heimis Pálssonar.
Aðventukvöld
Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði
AÐVENTUSAMKOMA Fríkirkj-
unnar í Hafnarfirði verður sunnu-
dagskvöldið 9. desember og hefst
dagskráin kl. 20:30.
Að venju verður boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá. Kór Fríkirkj-
unnar leiðir söng og flytur söng-
dagskrá undir stjórn Þóru Vigdísar
Guðmundsdóttur organista og Örn
Arnarson syngur einsöng og leiðir
söng með gítarundirleik. Kór
Flensborgarskólans í Hafnarfirði
kemur í heimsókn og syngur undir
stjórn Hrafnhildar Blomsterberg.
Ræðumaður kvöldsins er Magnús
Gunnarsson bæjarstjóri Hafn-
arfjarðar.
Að lokinni góðri stund í kirkjunni
verður svo boðið upp á heitt súkku-
laði í safnaðarheimili kirkjunnar.
Aðventukvöld í Óháða
söfnuðinum
ENDURKOMUKVÖLD/Aðventu-
kvöld verður sunnudagskvöldið 9.
desember kl. 20.30 í kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigsveg. Ræðu-
maður verður Sigmundur Ernir
Rúnarsson, aðstoðarritstjóri DV.
Kór safnaðarins syngur undir
stjórn Peter Mate og Borgarkórinn
syngur undir stjórn Sigvalda
Kaldalóns. Að lokinni dagskrá
verður svartbaunaseyði og smakk á
smákökunum.
Jólasveifla í Kefla-
víkurkirkju
EFNT verður til aðventu tónleika í
Keflavíkur kirkju sunnudaginn 9.
desember kl. 20:30. Þar verður lögð
áhersla á létta en hátíðlega helgi
tónlist.
Nokkrir af virtustustu söngv-
urum Reykjanessbæjar koma fram
á tónleikunum. Það eru þau Rúnar
Júlíusson, Birta Sigurjónsdóttir og
Guðmundur Hermannsson sem
syngja ásamt hljómsveit sem skipuð
er ættingjum Rúnars Júlíussonar,
það er honum sjálfum og sonum
hans Júlíusi Rúnarssyni, Baldri
Rúnarssyni og hinum landsfræga
mági Rúnars, Þóri Baldurssyni. Þá
mun kirkjukór Keflavíkurkirkju
flytja þrjú hátíðleg lög. Lögin sem
stórsöngvararnir syngja eru blanda
af nýrri og gamalli tónlist.
Kirkjukór Keflavíkurkirkju mun
flytja Maríukvæði eftir Atla Heimi
Sveinsson og Hans Nyberg og
hvetja til almenns samsöngs á
tveimur jólalögum. Sóknarprestur
Keflavíkurkirkju mun flytja tón-
leikagestum hugvekju á tónleik-
unum.
„Dagur í kirkjunni“
ÍSLENSKA Kristskirkjan með „dag
í kirkjunni“ sunnudaginn 9. desem-
ber. Morgunguðsþjónustan hefst kl.
11:00. Þar mun Friðrik Schram
fjalla um spurninguna: „Staðfestir
fornleifafræðin frásagnir Biblíunn-
ar?“ Auk þess verður sérfræðsla
fyrir hina ýmsu aldurshópa
barnanna.
Í hádeginu verður seld pitsa og
síðan getur öll fjölskyldan föndrað
saman fram eftir degi. Kaffi verður
á boðstólum og piparkökur. Kl.
20:00 um kvöldið verður almenn
samkoma. Þar verður mikil lof-
gjörð og fólkið boðið að þiggja fyr-
irbæn við altari kirkjunnar. Gíd-
eon-félagar koma í heimsókn og
kynna starf sitt. Allir eru velkomnir
að taka þátt í þessum „degi í kirkj-
unni“.
Starfsfólk Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði.
Aðventusamkoma í
Njarðvíkurkirkju
HIN árlega aðventusamkoma verð-
ur í Njarðvíkurkirkju á sunnudag
kl. 17 Dagskráin verður fjölbreytt
að vanda og munu bæði börn og
fullorðnir koma að henni. Aðalræðu
samkomunnar flytur Guðný Hall-
grímsdóttir prestur fatlaðra og
systir hennar Hulda Guðrún Geirs-
dóttir sópransöngkona syngur ein-
söng. Börn af leikskólanum Holti
Aðventukvöld
Árbæjarkirkju