Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FUNDUR formanna aðildarfélaga Alþýðu- sambands Íslands verður haldinn á mánudag og er fyrst og fremst boðað til fundarins til að ræða þróun efnahagsmála vegna hugsanlegr- ar uppsagnar launaliðar kjarasamninga í febrúar á næsta ári. Forystumenn ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hafa átt í viðræðum undanfarna daga og munu ræða enn frekar saman um helgina til að skýra málin fyrir fund ASÍ á mánudag. Þá áttu fulltrúar SA og ASÍ fund með forsætisráðherra, fjármálaráð- herra, utanríkisráðherra og félagsmálaráð- herra í vikunni til að fara yfir stöðu mála. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að fundurinn á mánudag sé fyrst og fremst til kominn vegna þeirrar óheillaþróunar sem orðið hafi í efnahagsmálum á þessu ári; auk- inni verðbólgu, lækkandi gengi og hækkandi vöxtum. Að sögn Grétars er ljóst að erfitt verður að forða uppsögn launaliðar kjara- samninga í febrúar ef engar jákvæðar breyt- ingar verða í þróun efnahagsmála. Af þeim sökum hafa verkalýðshreyfingin og Samtök atvinnulífsins rætt saman undanfarið og leit- að leiða til að afstýra þeirri hættu að samn- ingum verði sagt upp, eins og nú stefnir í. „Ég veit ekki hvað kemur í veg fyrir það ef ekkert verður að gert,“ segir Grétar. Að sögn Grétars hefur einnig verið fundað stíft í röðum verkalýðshreyfingarinnar að undanförnu, auk funda með fulltrúum Sam- taka atvinnulífsins. Hann segir ekki hægt að upplýsa neitt um innihald þeirra viðræðna á þessari stundu en segir að markmið og hags- munir ASÍ og SA geti farið saman að tölu- verðu leyti. „Auðvitað erum við með ákveðnar áherslur og okkur sýnist reyndar í aðalatrið- um að viðhorf okkar og Samtaka atvinnulífs- ins, a.m.k. að töluverðu leyti, kunni að vera í sama farvegi. En það verður að koma í ljós hvernig það þroskast fram á mánudag,“ segir Grétar. Samningsaðilar hafa um margt svipaða sýn Aðspurður hvort ágreiningur sé innan verkalýðshreyfingarinnar um uppsögn kjara- samninga segist Grétar ekki kannst við að svo sé, enda hafi mönnum varla gefist tæki- færi ennþá til að koma upp ágreiningi. „Við höfum reynt að nálgast þetta með þeim hætti að geta fengið sem gleggsta mynd af stöðunni á þessum fundi á mánudag og hverra kosta er völ. Það er hins vegar hreint ekki ólíklegt að það verði mismunandi viðhorf um það hvernig menn vilja takast á við málið. En ég hef hvergi heyrt þennan ágreining eða haft af honum fregnir og sé ekki hvernig hann ætti að vera til staðar á þessu augnabliki.“ Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir samningsaðila augljós- lega hafa gagnkvæman og mikinn áhuga á því að ekki þurfi að koma til uppsagnar launalið- ar í febrúar. „Það sem mestu máli myndi skipta í því sambandi er að efnahagsþróunin yrði með þeim hætti að verðbólga yrði minni en útlit er fyrir og það sé hægt að koma í veg fyrir að sá vítahringur grafi um sig. Það ger- ist kannski helst í gegnum það að menn hafi trú á að gengið geti styrkst á ný,“ segir Ari. Að sögn Ara hafa viðræður við verkalýðs- hreyfinguna snúist um það hvað helst geti orðið til þess að breyta þeirri neikvæðu þróun sem orðið hefur í efnahagsmálum, í því um- hverfi sem menn búa við í dag. „Ég held að samningsaðilarnir hafi um margt svipaða sýn til þeirra hluta. En það er samt ekki komin niðurstaða í það hvort við getum náð saman um þetta núna fyrir jól eða ekki. En ég vona það.“ Vonast til að málin skýrist um helgina Samtök atvinnulífsins og ASÍ hafa farið yf- ir stöðu mála með stjórnvöldum og segir Ari að það sé auðvitað ýmislegt í þessum efnum sem snúi að öðrum en SA og ASÍ. Að sögn Ara var talin ástæða til að ræða þessi mál og fara yfir stöðuna, þó að sumu leyti sé ekki hægt að fá neinar skuldbindingar frá öðrum aðilum um það hvort og hvernig þeir geti lagt sitt á vogarskálarnar. „Við höfum fulla ástæðu til að ætla að náist einhver niðurstaða í þessi mál á vinnumarkaðinum, þá muni það hafa mikil áhrif á væntingar manna til fram- tíðarinnar og í sjálfu sér vera mikið framlag til að vinna á verðbólgunni. Það myndi tví- mælalaust auka trú t.d. allra á fjármálamark- aði á því að það gæti dregið úr verðbólgu, fremur en að menn standi frammi fyrir upp- sögnum kjarasamninga og einhverja víxlverk- un sem því tengist.“ Á þriðjudag er fyrirhugaður stjórnarfundur í Samtökum atvinnulífsins en að sögn Ara setur sá fundur engin tímamörk á þessa vinnu. Hann segist þó vona að málin nái að skýrast fyrir fund forystumanna ASÍ á mánu- dag. Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið leita leiða til að forðast uppsögn kjarasamninga Reynt að finna úrræði á fund- um um helgina STJÓRNARANDSTAÐAN gagn- rýndi harðlega þær breytingar sem meirihluti fjárlaganefndar Alþingis gerði á fjárlagafrumvarpinu fyrir þriðju umræðu þess í gær en tillög- urnar leiða til 2.070 milljóna króna lækkunar útgjalda frá því sem áður hafði verið samþykkt. Var jafnframt haft orð á því að ríkisstjórnin hefði alltof lengi hunsað viðvörunarorð um að í óefni stefndi í efnahags- málum og að þessar tilllögur nú hefðu verið unnar í fljótfærni. Ólafur Örn Haraldsson (B), for- maður fjárlaganefndar, mælti fyrir framhaldsnefndaráliti meirihlutans og sagði hann að eftir því sem á árið hefði liðið hefðu birst æ skýrari merki um samdrátt í þjóðarbú- skapnum. „Til marks um það er áætlað að þjóðarútgjöld í heild dragist saman um 3% á þessu ári og spáð er rúmlega 3% samdrætti á næsta ári. Samkvæmt þessu minnka þjóðarútgjöld um 6% samanlagt á umræddum árum. Landsframleiðsl- an breytist minna því innflutningur á vöru og þjónustu dregst mest saman. Hagvöxtur er reyndar talinn verða 2,2% á þessu ári en hann kemur allur fram á fyrri hluta árs- ins og því er gert ráð fyrir sam- drætti á síðari hluta þess. Í nýbirtri spá Þjóðhagsstofnunar er reiknað með 1% samdrætti á næsta ári. Það virðist því enginn vafi á því að sam- dráttur hefur tekið við af vaxtar- skeiðinu.“ Sagði Ólafur Örn að ennfremur hefðu atburðir í heimsmálum valdið mikilli óvissu í veröld vorri og það snerti óhjákvæmilega efnahagsmál. „Þrátt fyrir þessa óvissu má færa sterk rök fyrir því að efnahagsnið- ursveiflan verði skammvinn,“ sagði hann þessu næst. „Þannig er reikn- að með að efnahagslífið rétti úr kútnum þegar kemur fram á árið 2003. Hagvöxtur verði þá því sem næst 3% ef ráðist verður í áform- aðar virkjunarframkvæmdir en um 1% minni ella. Ef þessar spár ganga eftir fylgir hagsveiflan hér á landi í mikilvægum atriðum hinni alþjóð- legu sveiflu þó að flest bendi til að dýfan hér á landi verði nokkru dýpri og standi e.t.v. nokkru lengur. Þetta stafar af því að fyrir utan erfiðari ytri skilyrði er óhjákvæmilegt að þjóðarbúið aðlagi útgjöld sín að tekjum til að minnka viðskiptahall- ann og skapa þannig traustari grunn fyrir stöðugleika og jafnvægi í efnahagslífinu í næstu framtíð.“ Allar viðvaranir hunsaðar Margrét Frímannsdóttir mælti fyrir nefndaráliti fulltrúa Samfylk- ingar í fjárlaganefnd. Gagnrýndi hún harðlega vinnubrögð við gerð fjárlaga og sagði að þær breytingar, sem meirihluti stjórnarflokkanna gerði á fjárlagafrumvarpinu nú, staðfestu að forsendur þess voru rangar, rétt eins og margoft hefði verið bent á. Margrét gagnrýndi að ríkis- stjórnin hygðist ætla að ná áform- uðum sparnaði í lyfjakostnaði með hækkun á lágmarks- og hámarks- greiðslum lyfja, enda væri ljóst að sá kostnaður myndi lenda á sjúk- lingum. Taldi hún jafnframt ekki hægt að færa skynsamleg rök fyrir þeim breytingartillögum vegna gjald- færðra lífeyrisskuldbindinga sem meirihlutinn hefði lagt fram. „Þetta er hreint og klárt bókhaldsfiff og það vitum við öll,“ sagði hún um til- lögur þar að lútandi. Margrét sagði ekki óvarlegt að áætla að tekjur ríkisins væru of- metnar um 3,5–4 milljarða króna. Ennfremur sagði hún að eftir að sparnaðartillögur ríkisstjórnarinnar birtust í fjölmiðlum hefði ekki orðið sú breyting til batnaðar á gengi krónunnar sem vænta mátti. „Það sýnir,“ sagði Margrét, „að fjármálamarkaðurinn metur að frumvarpið eins og það lítur núna út, og þar með tillögur ríkisstjórn- arinnar, sé ekki trúverðugt og byggist á allt of veikum forsendum. Áhrif þess á efnahagsumhverfið verða því lítil sem engin. Þegar helmingur niðurskurðartillagna byggist á bókhaldslegum milli- færslum og tekjuhliðin er notuð sem afgangsstærð er ekki furða þótt svo fari. Það eina sem er varanlegt í til- lögum ríkisstjórnarinnar eru hækk- andi álögur á almenning, þó sér- staklega á nemendur og sjúklinga.“ Þjóðarskútunni róið í öfuga átt Jón Bjarnason (VG) mælti fyrir nefndaráliti annars minnihluta fjár- laganefndar og gagnrýndi hann eins og Margrét að ekki hefði verið grip- ið í taumana fyrr, enda hefðu hættu- merkin í þróun efnahagsmála blasað við sl. 2–3 ár. „Það væri hreint oflof að segja að ríkisstjórnin hafi flotið sofandi að feigðarósi því flestar árar hafa verið úti til þess að róa þjóð- arskútunni í öfuga átt,“ sagði hann. Jón gagnrýndi vinnuna við fjár- lagagerðina og lýsti jafnframt efa- semdum um forsendur fjárlaga- frumvarpsins. Hann vék sérstak- lega að vanda framhaldsskólanna og sagði að þó að tekið hefði verið upp reiknilíkan við úthlutun fjármuna til skólanna yrði að taka fullt tillit til séraðstæðna hvers skóla. Hann sagði þörf á gjörbreyttri stefnu í efnahags- og atvinnumálum enda hefði hér þróast hagkerfi er nærðist á viðvarandi viðskiptahalla. Þrautin þyngri yrði að snúa af þeirri braut. Undrast áhyggjur formanns fjárlaganefndar Sverrir Hermannsson (FF) undr- aðist þær áhyggjur sem formaður fjárlaganefndar hafði lýst vegna horfanna í efnahagsmálum. Velti hann því fyrir sér hvort Ólafur Örn hefði ekki heyrt þegar forsætisráð- herra lýsti því yfir að allar efna- hagsforsendur væru í lagi á Íslandi, verðbólga væri á niðurleið, kaup- máttur að aukast og sjávarútvegur- inn græddi á tá og fingri. Sverrir taldi þó að í raun tryði Ólafur forsætisráðherra. „Ella hefðu önnur vinnubrögð verið höfð uppi við fjár- lagavinnuna,“ sagði hann. Sverrir sagði að í raun væri ekki tekið á neinu með festu í þessu frumvarpi – þó að reyndar væri borið niður þar sem síst skyldi. „Frjálslyndi flokkurinn varar við þessum vinnubrögðum og hann mun engan þátt taka í loka- afgreiðslu fjárlaganna því hann vill engan hlut þar eiga að, og til engrar ábyrgðar verða kallaður,“ sagði Sverrir. Margir fleiri þingmenn tóku til máls við umræðuna. Einar Oddur Kristjánsson (D), varaformaður fjárlaganefndar, sagði að gera hefði þurft mun meiri niðurskurð á rekstri ríkisins, enda hefði það vaxið ógurlega á undanförnum árum. Sagði hann að mikinn tíma þyrfti í slíka vinnu og tók undir þá gagnrýni stjórnarandstæðinga að þessar til- lögur nú hefðu verið unnar með skömmum fyrirvara. Einar Oddur benti á að hlutfall launa í ríkisútgjöldum hefði aðeins einu sinni verið eins hátt og raun bæri vitni nú – árið 1988. „Og ég vona að allir muni hvernig fór þá. Það fór illa,“ sagði hann. Sagði hann að nú kæmust menn ekki hjá því að láta sverfa til stáls, m.a. með tilliti til samninga við ríkisstarfsmenn. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir (S) vakti hins vegar at- hygli á því að breyting- artillögur fjárlaganefnd- ar hefðu í för með sér að þakið væri tekið af kostn- aði sjúklinga vegna ferli- verka, sem þýddi að hlut- ur þeirra gæti hækkað um 200–300% áður en kæmi til kasta afsláttarkorta. Áður hefðu sjúklingar að hámarki þurft að greiða fimm þúsund kr. en að þess- um tillögum samþykktum gæti sú tala farið upp í átján þúsund kr. Þriðja og síðasta umræða um fjárlög fyrir árið 2002 fór fram á Alþingi í gær Morgunblaðið/Þorkell Fjölmargir þingmenn tóku til máls við umræðuna í gær. Viðvörunarorð sögð hafa verið hunsuð of lengi „Oflof að segja að ríkisstjórnin hafi flotið sofandi að feigðarósi“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.