Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 85
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 85
á nokkrum tegundum
af Amerískum ísskápum
meðan birgðir endast.
15-20%
afsláttur
Feluleikur
(Hide and Seek)
Spennumynd
Bandaríkin 2000. Skífan VHS. Bönnuð
innan 16 ára. (103 mín.) Leikstjórn Sidn-
ey J. Furie. Aðalhlutverk Daryl Hannah,
Jennifer Tilly, Vincent Gallo.
FELULEIKUR er spennumynd
með ágætu leikaraliði sem fer prýði-
lega af stað. Vægast sagt sérkenni-
legt utangarðspar rænir nýbarns-
hafandi konu í þeim tilgangi að hirða
ófætt barnið hennar. Þau kefla hana
niðri í kjallara hjá sér og sviðsetja
dauðaslys hennar
en eiginmaðurinn á
samt mjög erfitt
með trúa því að
hann sé orðinn
ekkill. Hann finnur
fljótt vísbendingar
sem benda til þess
að hann hafi rétt
fyrir sér en lög-
reglan sér litla
ástæðu til þess að taka mark á hon-
um.
Eins og fyrr segir fer myndin
ágætlega af stað, spennan stigmagn-
ast og persónur eru áhugaverðar.
Um miðbikið fer hins vegar allt í
tóma þvælu, blóðbaðið verður yfir-
gengilegt og hver spennuklisjan rek-
ur aðra, óþokkarnir ganga í makind-
um á eftir spretthlaupandi fórnar-
lambinu og ná því samt og sama
hversu hjakkað er á þeim (óþokkun-
um) þá ætla þeir aldrei að drepast.
Þetta er náttúrlega mesta synd og
skömm því leikararnir gera sitt
besta. Tilly fer reyndar vel yfir strik-
ið í ofleiknum en Gallo er óhugnan-
lega sannfærandi og Hannah með
besta móti. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Blessað
barnalán
Sáli er við
(The Shrink is In)
Gamanmynd
Bandaríkin, 2000. Myndform VHS. Bönn-
uð innan 12 ára. (90 mín.) Leikstjórn:
Richard Benjamin. Aðalhlutverk: Courtn-
ey Cox og David Arquette.
Í ÞESSARI léttu gamanmynd
segir frá Samönthu sem missir tökin
á lífinu eftir að kærastinn segir
henni upp á allfruntalegan hátt. Hún
tekur að sækja tíma hjá sálfræðingi
sem hins vegar brotnar líka niður
andlega og er lagð-
ur inn á heilsuhæli.
Tekur Samantha
þá við stofunni í
lúmskri tilraun til
að hitta og fanga
hinn eina rétta.
Hér er á ferðinni
rómantísk gaman-
saga þar sem ekki
er allt sem sýnist
og prinsinn birtist í froskagervi.
Framvindan kemur glöggum áhorf-
endum líklegast hvergi á óvart en
auðvelt er að hafa gaman af mynd-
inni vegna ágætrar frammistöðu
hjónakornanna Cox og Arquette í
aðalhlutverkunum. Heiða Jóhannsdóttir
Í gervi
geðlæknis
MÁNUDAGURINN 3. desember
var síðasti skiladagur tillagna að
tilnefningum til Íslensku tónlist-
arverðlaunanna og bárust yfir
350 tilnefningar, var það reyndar
svo að biðröð myndaðist fyrir ut-
an skrifstofu framkvæmdastjór-
ans.
Nú eru tilnefningarnar farnar
áfram til fagnefnda sem munu
ákvarða fimm tilnefningar fyrir
hvern flokk.
Flokkarnir eru:
– Popp- og rokkhljómplata
ársins
– Popp- og rokkflytjandi ársins
– Popp- og rokklag ársins
– Popp- og rokksöngvari ársins
– Popp- og rokksöngkona ársins
– Popp- og rokkmyndband
ársins
– Bjartasta vonin (popp
og rokk)
– Klassísk plata ársins
– Klassískur flytjandi ársins
– Klassískt tónverk ársins
– Djassplata ársins
– Djassflytjandi ársins
Tilnefningar verða svo kynntar
13. desember en sjálf verðlauna-
afhendingin fer fram í febrúar á
næsta ári.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Bubbi hlaut heiðursverðlaun tónlistarverðlaunanna árið 1999.
Íslensku tónlistarverðlaunin
Verðlaunað í tólf flokkum
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is