Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 39
LISTIR/BÆKUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 39
Í þessari nýju og hörkuspennandi Útkallsbók Óttars Sveinssonar er lýst
ótrúlegum mannraunum þegar óveður gekk yfir Ísafjarðardjúp í febrúar 1968.
Breski sjómaðurinn Harry Eddom komst einn af þegar togarinn Ross Cleveland
sökk og lýsir hér vistinni í gúmbátnum með látnum félögum sínum og baráttunni
við náttúruöflin þegar í land var komið.
Þessa óveðursdaga barðist á fimmta hundrað sjómanna við að halda skipum
sínum á floti í gífurlegri ísingu í Djúpinu. Þar á meðal var áhöfn togarans Notts
County sem strandaði skammt frá þeim stað þar sem Ross Cleveland sökk.
Varðskipið Óðinn var statt í Djúpinu og þar um borð þurftu menn að höggva ís
upp á líf og dauða.
Í þessari einstöku frásögn Harrys Eddoms, Notts County-manna og áhafnar Óðins
upplifir lesandinn ógnaratburði sögunnar eins og hann væri sjálfur á vettvangi.
Ævisaga Lúkasar Kárasonar er ævintýri líkust. Barnungur bjargaði hann
skipshöfn í Steingrímsfirði. Síðar fór hann sem sjómaður til Grænlands, kynntist
lífi útigangsmanna í Svíþjóð og endaði á fjarlægari slóðum í Afríku og Asíu en
tamt er um aðra landa okkar. Hann var skotinn niður inni á hersvæði í Dakar,
flúði undan flóðhestum í Bujumbura, lenti í fangelsi í Tanzaníu og keypti jörð
í Zambíu með rósarækt í huga.
Með blöndu af húmor og næmri tilfinningu segir Lúkas frá störfum sínum,
ferðalögum, ævintýrum og mörgum kynlegum kvistum sem urðu á vegi hans.
Syndir sæfara er sönn saga ótrúlegs ævintýramanns.
Rauðási 4 I 110 Reykjavík
Sími 554 7700
Óttar Sveinsson
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Í E
F S
T U S Æ T UM
2. sæti
Almennt efn
i og handbæ
kur
28. nóv. - 4.
des.
Morgunblað
ið
Á
M E T S Ö L U L
I S
T U
M
Huldur er eftir
Önnu Dóru
Antonsdóttur og
Kristrúnu Guð-
mundsdóttur.
Þar segir frá
bréfaskriftum
tveggja kvenna yfir
rúmlega fjögurra
ára tímabil.
Í inngangi Halldóru Sigurjónsdóttur
lögfræðings segir m.a: „Á rigning-
ardegi reikaði ég um í íbúð Freyju við
Grettisgötuna án þess að geta fest
hugann við eitt né neitt en leitaði af-
dreps meðal nokkurra gamalla bóka
og rak þar augun í bláa öskju sem
merkt var: Guðbjörg. Eitthvað hlýtur
að hafa vakið forvitni mína því að ég
opnaði öskjuna og sá í henni dálítinn
bunka af upprifnum umslögum. Ég
áttaði mig fljótlega á því að þetta voru
sendibréf…“
Anna Dóra og Kristrún hafa hvor um
sig gefið út tvær bækur áður.
Höfundar gefa út. Bókin er 91 bls.,
kilja., prentuð í Hagprent. Hönnun
kápu: Hrönn Vilhelmsdóttir textílhönn-
uður.Verð: 1.500 kr.
Skáldsaga
Styrjaldarárin á
Suðurlandi eftir
Guðmund Krist-
insson, 2. útgáfa,
er komin út aukin
og endurbætt í ná-
inni samvinnu við
fimm breska flug-
menn, sem flugu
Hudson flugvélum
frá Kaldaðarnesi í Ölfusi.
Í kynningu segir m.a. „Það var nán-
ast fyrir tilviljun að höfundur kynntist
eftirlifandi flugmönnum sveitarinnar,
sem komu til Íslands sumarið 1999.
Þeim þótti stórkostlegt að stíga aftur
fæti á flugvöllinn í Kaldaðarnesi eftir
58 ár. Síðan hafa þeir verið óþreyt-
andi að afla höfundi mikilla nýrra
gagna, bæði úr þýzkum og brezkum
söfnum og ljósmynda um hern-
aðarflugið auk frásagna þeirra sjálfra
af minnisstæðum atburðum, sem
þeir upplifðu í Kaldaðarnesi.“
Útgefandi er Árnesútgáfan. Bókin
er 352 bls., prýdd 267 ljósmyndum
sem margar hafa aldrei birst áður.
Verð: 4.280 kr.
Saga
Jóa litla er fyrsta
bók Skarphéðins
Gunnarssonar.
Í kynningu segir
m.a.: „Veröldin er
full af óvæntum
atburðum þegar
maður er lítill og
ævintýri bíða á
hverjum áfanga-
stað. Hversdagslegir staðir í augum
fullorðinna eru ævintýraheimur
barna. Jóa litla og pabbi hennar
ferðast um á hjóli og ýmislegt
skemmtilegt verður á vegi þeirra.
Endur, hundar, ískaldar tær og slý
kæta eða hrella feðginin.“
Þóra Þórsdóttir myndlistarmaður
skreytir söguna.
Útgefandi er Iljar ehf. Bókin er 30
bls., prentuð í Slóveníu. Verð: 1.950.
Börn
Á VEGUM Háskólaútgáfunn-
ar er komin út bókin Brugðið
upp augum, saga augnlækn-
inga á Íslandi frá öndverðu til
1987. Þetta er í fyrsta sinn
sem saga sérgreinar í lækn-
isfræði á Íslandi er gefin út.
Höfundur bókarinnar er
Guðmundur Björnsson augn-
læknir og prófessor er lést í
apríl sl. en sonur hans, Gunn-
ar Guðmundsson lungnalækn-
ir, tók við verkinu og gekk frá
því til útgáfu ásamt Guðmundi
Viggóssyni augnlækni og Jóni
Ólafi Ísberg sagnfræðingi.
Að sögn Gunnars Guð-
mundssonar vann Guðmund-
ur Björnsson að öflun heimilda um
sögu augnlækninga allt frá því hann
kom heim frá sérnámi í Bandaríkj-
unum í augnlækningum árið 1948.
„Honum var eins farið og svo mörg-
um öðrum augnlæknum að hann var
ákaflega nákvæmur og samviskusam-
ur. Hann hafði strax mikinn áhuga á
sögu augnlækninga, hélt til haga öll-
um heimildum og ræddi við sér eldri
menn, um aðstæður og þróun sér-
greinarinnar. Hann skrifaði eldri
augnlæknum bréf og bað þá um upp-
lýsingar en mestur fengur var þó
fólginn í því að komast yfir sjúkra-
dagbækur Björns Ólafssonar augn-
læknis.“
Björn Ólafsson (1862–1909) var
fyrsti íslenski læknirinn með sér-
menntun í augnlækningum og var
brautryðjandi á sviði augnlækninga
hér á landi. Hann var jafnframt fyrsti
sérmenntaði læknirinn sem stundaði
grein sína hérlendis. Honum er helg-
aður heill kafli í bókinni.
„Faðir minn vann að söfnun þess-
ara heimilda allt þar til hann lauk op-
inberu starfi 1987 en hafði þó gefið
sumt af þessu út í greinaformi. Eftir
að hann hætti störfum hóf hann
skipulega að skrá sögu augnlækninga
á Íslandi. Hann sat á söfnum, talaði
við menn og lauk við handrit bókar-
innar 1997.“
Að sögn Gunnars var ætlunin að
Læknafélag Íslands gæfi út ritið og
skyldi það verða hið fyrsta í röð út-
gáfu um heilbrigðismál á Íslandi. „En
um þetta leyti breyttust aðstæður í
Læknafélaginu og nýtt fólk tók þar
við og hætt var við bókaútgáfu. Þegar
sú niðurstaða lá fyrir leituðum við til
bókaforlaga en þar reyndist ekki vera
sérstakur áhugi fyrir útgáfu bókar-
innar. Okkur var þá bent á þá leið að
fara í gegnum Háskólaútgáfuna og
fengum Jón Ólaf Ísberg sagnfræðing
í lið með okkur, en hann hefur mikla
reynslu af ritun heilbrigðissögu.
Ásamt Guðmundi Viggósyni augn-
lækni mynduðum við þrír ritnefnd og
fórum yfir allt sem Guðmundur
Björnsson hafði skrifað. Jón Ólafur
fór yfir allan textann, breytti honum
og stytti, því víða voru lýsingar mjög
nákvæmar og ekki auðveldar aflestr-
ar fyrir almenna lesendur. Við fórum
síðan yfir textann og völdum myndir í
samráði við Guðmund sem lést í apríl
á þessu ári. Þá var bókin eiginlega
frágengin og tilbúin til prentunar.“
Gunnar segir að þetta sé í fyrsta
sinn sem saga sérgreinar í læknis-
fræði er gefin út hérlendis. „Mér
þætti ánægjulegt ef bókin yrði til þess
að fleiri tækju upp boltann og héldu
áfram á sínu sviði. Sjálfur hef ég beitt
mér fyrir því í minn hóp að safnað
verði heimildum og saga lungnalækn-
inga á Íslandi verði skráð og gefin út,“
segir Gunnar Guðmundsson, sér-
fræðingur í lungnalækningum.
Saga augnlækninga á Íslandi
Fyrsta saga sér-
greinar í íslenskri
læknisfræði
Guðmundur Björnsson
augnlæknir (1917–2001).
Veiðiflugur eftir
Gísla Sigurðsson
er í nýjum flokki
veiðibóka. Bókin
geymir þroska-
sögu veiðimanns.
Í upphafi ákveður
hann að gera
stangveiði að
áhugamáli sínu
en reynir síðan á sjálfum sér að það
er löng og torsótt leið frá notalegum
draumi heima í sófa á miðjum vetri
og út í veiðihyl um hásumar.
Fiskiríið er tregt í Veiðiflugum.
Byrjandinn þreifar sig áfram í
blindni. Málverk eftir Soffíu Sæ-
mundsdóttur, Vaknið þið fiskar,
prýða bókarkápu en Sigurjón Jó-
hannsson hefur teiknað myndir við
alla þætti bókarinnar.“
Útgefandi er Bókaútgáfan Veiði-
bók. Bókin er 69 bls. Verð: 1.500 kr.
Veiði