Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 78

Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 78
78 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ                               !        "   !      # $      BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. BINDINDISDAGUR fjölskyldunn- ar er í dag. Félög, sem undirbúa hann, leggja að þessu sinni sérstaka áherslu á að jól séu haldin og að- ventu fagnað án áfengis – vegna barnanna. Ástæða er til að nefna í því sam- bandi mikilvægt atriði: Að njóta heilbrigðrar gleði í dansi án áfengis eða annarra vímuefna, í desember sem aðra mán- uði. Þá er þýðingarmikið skref stigið – á dansgólfi og í lífinu. Allir kannast við þá tilfinningu að vanta kjark til að þora út á dans- gólfið. Sumir leysa þann vanda með því að fá sér í glas, og finnst þá, að þeim séu allir vegir færir á dansgólfinu. Ef vel skal dansa, er lausnin ekki fólgin í því að fá sér einn, heldur að fara á dansnámskeið og geta síðan farið allsgáður út á dansgólfið sjálf- um sér og öðrum til gleði og ánægju. Flestir hafa eflaust einhvern tíma velt því fyrir sér, hvort ekki væri rétt að læra að dansa, og öðlast kjark til að þora út á dansgólfið. Samtökin Komið og dansið hafa á sl. tíu árum staðið fyrir stuttum dansnámskeiðum undir yfirskrift- inni „lærðu létta sveiflu á tveim dög- um“, og miða að því að fá þá sem lítið eða ekkert hafa dansað til að byrja með auðveldum hætti og gerast ófeimnir við dansgólfið. Það er samdóma álit þeirra sem sótt hafa námskeiðin að þau séu auð- veld og ekki síður skemmtileg. Námskeiðin eru kjörin fyrir hópa, vinnufélaga, saumaklúbba og fjöl- skyldur til að gera eitthvað saman, stutt, ódýrt og skemmtilegt. Ekki er nauðsynlegt að hafa með sér dansfélaga og eru einstaklingar velkomnir á námskeið hjá KOMIÐ OG DANSIÐ. Hópar, sem komið hafa á nám- skeið hjá KOMIÐ OG DANSIÐ, finna hvað svona sameiginleg verk- efni hafa bætandi áhrif á andrúms- loftið og gera sameiginlegar skemmtanir skemmtilegri en áður. Námskeið fyrir börn eru einnig á vegum KOMIÐ OG DANSIÐ, og eru þau stutt, eins og önnur nám- skeið á vegum samtakanna. Öll námskeiðin eru byggð upp á þann hátt, að allir finni sig geta dans- að og hafi gagn og gaman af veru sinni hjá KOMIÐ OG DANSIÐ. Dansnámskeið fullorðinna í Reykjavík eru skv. auglýstri dag- skrá í Danshöllinni, Drafnarfelli 2, en fyrir sérhópa eru námskeið þá daga sem henta hverju sinni. Einnig er starfandi ungmennahópur 18-30 ára sem kemur saman öll þriðju- dagskvöld og fyrirhugað er að koma á fót hóp fyrir þá sem eru yngri en 18 ára. KOMIÐ OG DANSIÐ er einnig starfandi á Akureyri og Egilsstöð- um. Æfingadansleikir eru einu sinnu í viku í Danshöllinni, á fimmtudögum og gefst þá tækifæri til að viðhalda danskunnáttunni. Dansnámskeið á vegum KOMIÐ OG DANSIÐ eru fyrst og fremst hvatning til þátttöku í dansi og til að yfirvinna feimni gagnvart því að stíga sín fyrstu skref á dansgólfi. Það er staðreynd að hvergi ríkir meiri gleði en þar sem fólk kemur saman og skemmtir sér án vímuefna, og lætur dansinn og gleðina sem honum fylgir ráða ríkjum. Þeir sem hug hafa á því að vera með í léttu og skemmtilegu umhverfi og dansa þar sem léttleiki og hlýtt viðmót ræður ríkjum, ættu ekki að draga það að skrá sig á dansnám- skeið hjá KOMIÐ OG DANSIÐ. BJARNI RÚNAR ÞÓRÐARSON, Suðurgötu 62, Hafnarfirði. Dansgleði án vímugjafa Frá Bjarna Rúnari Þórðarsyni: Bjarni Rúnar Þórðarson ÞÁ ER lokið þáttum Kristjáns Hreinssonar; Samtíningur, á Rás eitt. Þeir voru í nokkrar vikur, og þar var sannarlega víða komið við. Krist- ján eFrá r gagnrýninn og býsna skemmtilegur. Honum er sú list léð að sjá hlutina í víðu samhengi. Krist- ján Hreinsson er maður á besta aldri enn, svo að vonandi á hann eftir drjúgan feril sem rithöfundur, skáld og útvarpsmaður. Ekki óraði mig fyrir því, þegar ég var að kenna pilt- inum í Þinghólsskóla í Kópavogi fyr- ir þremur áratugum, að hann ætti eftir að verða þekktur fjölmiðlamað- ur. En framvinda tímans er okkur oftast hulin. Það er mín von, að Kristján fái inni í útvarpinu á ný með svipaða þætti. Þó er ég ekki að segja, að hann „eignist“ þætti til lífstíðar, eins og mér sýnist, að hafi verið að gerast hjá Útvarpinu. Vissulega er æskilegt að fá margt nýtt fólk til að láta að sér kveða í þessum ágæta fjölmiðli sem Útvarpið er. Þar eiga að verða mannaskipti við og við. Þar á ekki sama fólkið að sitja á fleti fyrir öðrum og varna þeim máls. Kristján Hreinsson kom víða við í þáttum sínum með gagnrýnum hætti. Stríð Bandaríkjanna í Afgan- istan hefur oft verið á dagskrá í pistl- um hans. Bruðl og óstjórn í fjármál- um. Hefur það ef til vill farið fyrir brjóstið á mönnum á æðri stöðum? Niðurstaða mín er, að Kristján eigi áfram erindi í Útvarpið með pistla sína. Hann á örugglega margt efni í fórum sínum. Hann er ólatur að skrifa. Ég hefi sagt það, sem mér býr í hjarta. Að vera gagnorður er í mikl- um metum hjá mér. Með kveðju til Kristjáns og þökk fyrir ágæta þætti á Rás eitt í Ríkisútvarpinu, sameign allra landsmanna. AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, Reykjavík. Útvarpsþáttar saknað Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.