Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 67
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 67
HVAR og hverjum
slær hjarta þitt á þess-
ari aðventu og á kom-
andi jólum? Erum við
full barnslegrar eftir-
væntingar og tilhlökk-
unar? Eða erum við
kannski kvíðin? Minn-
ingar þyrlast upp.
Sumar ljúfar og aðrar
kannski sárar, jafnvel
ljúfsárar. Okkur finnst
að undirbúningur
jólanna megi ekki mis-
heppnast. Allt þarf að
klárast, vera tilbúið,
strokið og hreint.
Það er aðventa. Og
það er eftirvænting í
loftinu. Það er von á gesti sem mun
koma hvernig sem undirbúningur-
inn stendur. Hvernig sem verður
ástatt fyrir þér. Það er von á óvenju-
legum gesti. Hann mun ekki
þröngva sér inn til þín, en hann mun
koma og knýja á þínar hjartadyr og
býðst til að fylla tilveru þína tilgangi
og lífi.
Jólin koma. Allt verður svo kyrrt
og hljótt, svo ólýsanlega heilagt. Það
er von á frelsara heimsins, hann
kemur til að vitja þín og gefa þér
frið. Frið sem er æðri mannlegum
skilningi. Frið sem mun vara.
Hvernig ert þú stemmdur? Verð-
ur þú tilbúinn? Verður þú ekki
örugglega búinn að kaupa allt, þrífa
og skreyta? Verður ekki örugglega
allt klárt hjá þér um jólin?
Hvernig sem þú verður stemmdur
og hvort sem þú verður
tilbúinn, þá kemur
hann, frelsari heimsins,
Jesús Kristur, sonur
Guðs og býðst til að
dvelja hjá þér. Og ekki
aðeins um stutta stund.
Heldur vill hann eiga
samleið með þér um
alla eilífð. Hann kemur
og bíður þolinmóður
við hjartadyr þínar
tilbúinn að stíga inn ef
og þegar það hentar
þér. Þú einn hefur
lyklavöldin að þínu
dýrmæta hjarta. Eng-
inn getur hleypt hon-
um inn til þín nema þú
sjálfur. Valdið er þitt. Verður honum
boðið inn til þín um þessi jól eða er
kannski ekki pláss? Verður hann
sendur í gripahúsið eins og forðum,
þar sem er kuldi og trekkur, vond
lykt og skítur?
Verður frelsarinn Jesús inni eða
úti á þessum jólum? Hvar og hverj-
um slær hjarta þitt á þessari að-
ventu og á komandi jólum? Slær það
honum sem lagði líf sitt í sölurnar
fyrir þig svo þú mundir lífi halda?
Slær það þínum minnsta bróður sem
þarf á ást þinni, umhyggju, kærleika
og tíma að halda? Eða slær það í
tómarúmi veraldlegs hégóma og til-
gangsleysis eða sjálfselsku þar sem
græðgi og lostafengnar fýsnir ráða
ferðinni þar sem stress og varanleg-
ur ófriður ræður ríkjum? Ófriður,
óróleiki og tilgangsleysi sem skaðar
bæði hjarta þitt og umhverfi allt.
Kærleiksríkur og algóður Guð
gefi okkur öllum hreint hjarta sem
slær af öryggi, taktfast en milt.
Hjarta sem slær í takt við himininn.
Hvar slær hjarta þitt?
Sigurbjörn
Þorkelsson
Aðventa
Þú einn, segir
Sigurbjörn Þorkelsson,
hefur lyklavöldin að
þínu dýrmæta hjarta.
Höfundur er rithöfundur.