Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 32
LISTIR
32 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR kórar sem leggja rækt við
flutning á svonefndri aðventutónlist
eru að nokkru bundnir við þau við-
fangsefni sem beinlínis tengjast jól-
unum og því vill oft vera býsna
þröngt um lagavalið. Á aðventutón-
leikum Söngsveitarinnar Fílharmón-
íu sl. miðvikudag í Langholtskirkju
var brotið blað varðandi lagavalið og
efnið sótt til snillinga 16. aldarinnar,
eins og Orlandos Gibbons, Tómasar
Tallis, Williams
Byrds og yngri höf-
unda eins og Bórisar
Ord, fyrrverandi kór-
stjóra við konungs-
kapelluna í Cam-
bridge, Johns Taven-
ers, sem ekki má
rugla saman við
nafna hans Taverner,
Herberts Howells og
Edmunds Rubbra,
og útsetningar eftir William Walton,
Ralph Vaughan-Williams, David
Willcocks og John Rutter. Bestu
verkin og þau sem voru mjög vel
flutt eru eftir Gibbons og Tallis en
mestur þeirra var Byrd og söng kór-
inn afbragðsvel eftir hann frábæra
tónsmíð við hinn klassíska miðalda-
texta Ave verum corpus. Eitt falleg-
asta jólalagið á tónleikunum var
Forunderligt at sige eftir Carl Niel-
sen og þar naut sín sérlega fallegur
hljómur kórsins. Tvö lög eftir Hildi-
gunni Rúnarsdóttur, Hirðar sjá og
heyrðu og Sé ástin einlæg og hlý, eru
þokkafullar tónsmíðar, sem voru fal-
lega fluttar, og sama má segja varð-
andi flutninginn um jólalagið Hátíð
fer að höndum ein.
Eftir hlé bættist strengjasveit og
hörpuleikari í hópinn og lyfti það
tónleikunum. Fyrsta lagið var arían
Where’er you walk úr óperunni Sem-
ele eftir Handel, sem Sigrún Hjálm-
týsdóttir söng af glæsibrag, en hún
söng einnig með kórnum Ave verum,
fallegt lag eftir Gabriel Fauré,
Vögguvísu Maríu eftir Max Reger,
Nóttin helga eftir A.C. Adam og Ave
Maria eftir J.S. Bach og Charles
Gounod en þar áttu Monika Abend-
roth og Rut Ingólfsdóttir fallegan
samleik. Máríuvísur eftir Oliver
Kentish eru sérkennilegar, svolítið
miðaldalegar og stuttaralegar, án
forspils og eins og ekki hafi verið
grandhugsað fyrir undirleik
strengjasveitar.
Til fjöldasöngs var stofnað sam-
kvæmt venju með jólalögunum Frá
ljósanna hásal og Nóttin var sú ágæt
ein og tóku tónleikagestir vel undir.
Söngsveitin Fílharmónía söng margt
mjög vel, sérstaklega ensku lögin
eftir Gibbons, Tallis, Byrd, útsetn-
ingu Waltons á Make we joy, sér-
kennilegt lag, The Lamb, eftir Tav-
ener, útsetningu Vaughan-Williams
á On Christmas Night og síðast en
ekki síst hið fagra og einfalda lag
Forunderligt at sige eftir Nielsen.
Strengjasveitin eftir hlé setti sér-
stakan svip á tónleikana og leikur
hennar undir forystu Rutar var mjög
góður og naut sín sérlega vel í ar-
íunni eftir Handel, báðum söngverk-
unum eftir Fauré en sérstaklega því
seinna, Heill þér himneska orð. Um-
ritun Guðmundar Gilssonar á Nóttin
helga eftir A.C. Adam er fallega mót-
uð og var sérlega vel flutt af kór og
einsöngvara, þar sem söngur Sig-
rúnar Hjálmtýsdóttur var hreint út
sagt glæsilegur.
Í heild voru þetta góðir tónleikar,
sérstaklega vegna þess að mörg tón-
verkanna hafa ekki áður verið mikið
sungin hér á landi auk þess að mörg
þeirra eru sérlega góðar tónsmíðar.
Í bland við þessi frábæru lög voru á
efnisskránni hin venjulegu og mikið
sungnu jólalög og var Vögguvísa
Maríu eftir Reger einstaklega fal-
lega flutt af kór og einsöngvara. Þá
setti það svip á tónleikana, að söngur
Söngsveitarinnar var sérlega fallega
mótaður undir stjórn Bernharðs
Wilkinson og naut sín vel með
strengjasveitinni, sem hljómaði sér-
lega fallega, en auk Rutar Ingólfs-
dóttur og Moniku Abendroth átti
Richard Talkowsky fallega mótaðan
einleik á selló.
Rut
Ingólfsdóttir
Sigrún
Hjálmtýsdóttir
Bernharður
Wilkinson
TÓNLIST
Langholtskirkja
Söngsveitin Fílharmónía, Sigrún Hjálm-
týsdóttir, strengjasveit undir forystu Rut-
ar Ingólfsdóttur, við undirleik Guðríðar
St. Sigurðardóttur, fluttu jólalög frá ýms-
um tímum, undir stjórn Bernharðs Wilk-
inson. Miðvikudaginn 5. desember
2001.
AÐVENTUTÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
Fallega mótaður söngur
Lífið lék við mig,
Jón Laxdal leikari
segir frá óvenju-
legri ævi sinni,
hefur Haraldur Jó-
hannsson skráð.
Í kynningu segir
m.a.: „Nýútskrif-
aður leiklist-
arnemi frá hinu
unga Þjóðleikhúsi hélt Jón Laxdal til
Vínarborgar til að verða leikari. Eftir
glæsilegt burtfararpróf frá hinum virta
leiklistarskóla Max Reinhardt Sem-
inar varð hann fljótt eftirsóttur lista-
maður víða um Evrópu. Síðustu ára-
tugi hefur Jón Laxdal rekið sitt eigið
leikhús, Jón Laxdals Theater, í Kais-
erstuhl í Sviss.“
Kunnastur er Jón Laxdal hér á landi
fyrir frammistöðu sína sem Garðar
Hólm í kvikmyndinni Brekkukotsannál
og Steinar bóndi í kvikmyndinni Para-
dísarheimt.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
247 bls., Verð: 3.980 kr.
Endurminningar
Vettlingarnir hans
afa er eftir Þor-
vald Þorsteinsson
með myndskreyt-
ingum Snorra
Freys Hilm-
arssonar. Sagan
segir frá Stellu
sem er níu ára og
hefur nýlega misst
afa sinn. Hún bíður jólanna, milli von-
ar og ótta, því það var afi sem lét jólin
koma. Hvernig átti Stella að finna
jólastjörnuna sem afi var vanur að
benda henni á?
Bókin er í nýjum flokki, Litlir bóka-
ormar. Bækurnar eru með stóru letri,
góðu línubili og myndum.
Útgefandi er Bjartur. Bókin er 68
bls., prentuð í Odda hf. Kápugerð var í
höndum Snæbjörns Arngrímssonar.
Verð: 1.880 kr.
Börn
♦ ♦ ♦