Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 08.12.2001, Blaðsíða 79
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 79 HELGI FILIPPUSSON ehf HEILDVERSLUN Tunguhálsi 7. Sími: 567 1210 Margt fallegt til jólagjafa á góðu verði Glös - Kerti - Borðar - Silkiblóm - Jólavörur - Skreytingarefni og margt fleira Verið velkomin Opið virka daga 13-18 laugard. og sunnud. 11-17 til 22des. Lager- sala í Árbæ að Tunguhálsi 7. JÓLATÓNLIST tekur á móti gest- um sem leggja leið sína á jólamark- aðinn í Þinghúscafé. Þegar inn er komið gefur að líta tvo sali fulla af ýmiskonar handverki, snyrtivörum frá Volare, kaffivörum frá Kaffi- tári, hljómdiskum, fatnaði, bókum, leikföngum, gjafavöru, glösum og ýmiskonar matvörum, svo fátt eitt sé nefnt. Í tengslum við jólamark- aðinn verða ýmsar uppákomur og 9. desember lesa Vigdís Gríms- dóttir og Jón Hjaltason upp úr nýju bókunum sínum. 14. des. les Sigrún Edda upp úr bók sinni um Bólu tröllastelpu. 16. des. les Gísli Rúnar upp úr bók sinni Bó og Óskar Guðmundsson les upp úr Fjórtándu öldinni. 8., 15. og 20. des. koma dýr úr Hálsaskógi og skemmta gestum. Jólasveinar líta inn 14., 16. og 23. Landsfrægir tónlistarmenn munu líka koma og skemmta, þeirra á meðal eru Megas sem kemur 13. des. og Rúnar Júl. 15. des. að ógleymdu Sölvakvöldi sem er orð- inn árlegur viðburður hér í bænum. Þá koma og troða upp ýmsir tónlist- armenn úr Hveragerði fyrr og nú. Eins og sjá má verður líf og fjör út allan jólamánuðinn. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Jólamarkaður í Þing- húscafé í Hveragerði Hveragerði. Morgunblaðið. LAUF, samtök áhugafólks um flogaveiki, verður með jólafund í Hátúni 10b, kaffistofu á jarð- hæð, laugardaginn 8. desem- ber, og hefst hann kl. 15. Kjartan Sigurbjörnsson sjúkrahúsprestur flytur hug- vekju og Guðni Þórðarson flyt- ur jólerindi. Boðið upp á veit- ingar. Jólafundur hjá Laufi KVEIKT verður á jólatrjánum í Hafnarfirði í dag, laugardaginn 8. desember. Trén eru gjöf frá vina- bæjunum Fredriksberg og Cux- haven. Dagskráin hefst á Flensborgar- höfn kl. 13 en þá mun fulltrúi Þjóð- verja, Rolf Reters, flytja kveðju og tendra ljósin á trénu. Kveikt verður á trénu við Hafn- arfjarðarkirkju kl. 14.30, fulltrúi Dana, Michael Dal, gerir það. Fram koma listamenn, börn frá leikskól- anum Hjalla syngja og jólasvein- arnir láta sig varla vanta. Jólastemning verður í verslunar- miðstöðinni Firði frá kl. 15–17, þar bregður Pétur Pókus á leik og hljómsveitin Jón forseti spilar nokkur lög. Kl. 16 verður gestum og gangandi boðið upp á jólasúkku- laðiköku Kökumeistarans og jóla- kók. Jólatónleikar verða í Hafnarborg, „syngjandi jól“, kl. 13–20, þar sem um 800 söngvarar syngja, segir í frétt frá Æskulýðs- og tómstunda- ráði Hafnarfjarðar. Jóla- stemmning í Hafnarfirði LJÓSIN verða tendruð á jólatrénu á Garðatorgi í dag, laugardaginn 8. desember, kl. 16. Jólatréð er gjöf frá vinabæ Garðabæjar, Asker í Noregi, og mun fulltrúi norska sendiráðsins flytja ávarp og kveikja ljósin á trénu. Dagskrá hefst kl. 15.45 með því að Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar leikur, formaður Nor- ræna félagsins í Garðabæ býður gesti velkomna og Laufey Jóhanns- dóttir veitir trénu viðtöku, kór Hofsstaðaskóla syngur jólalög og jólasveinar koma í heimsókn. Kl. 14.30 verður Brúðuleikhús frá Myndlistarskóla Garðabæjar á Garðatorgi og handverksmarkaður og kaffisala Kvenfélagsins. Á Bókasafni Garðabæjar við Garðatorg sýnir Bernd Ogrodnik brúðuleikritið Pönnukakan hennar Grýlu kl. 13.30, segir í fréttatil- kynningu. Kveikt á jólatré á Garðatorgi MIKIÐ verður um að vera á Lauga- veginum og í miðbænum um helgina. Í dag, laugardag, kl. 11–16 verður Mál og menning með upplestur og áritanir, kl. 13–16 skemmta jóla- sveinar krökkum, kl. 14–16 spilar jólakvintett jólalög á Laugaveginum, kl. 14–18 verður Skífan með tónleika og áritanir, kl. 14–16 syngur Kór Snælandsskóla jólalög, kl. 15–17 syngur Álafosskórinn jólalög, kl. 15 ekur Norðlenska niður Laugaveginn á hestvagni ásamt jólasveinum og fagrar meyjar gefa gestum Lauga- vegar að bragða á KEA-hangikjöti, kl. 16.30 ekur Kóklestin niður Laugaveginn. Á sunnudaginn kl. 13– 16 koma jólasveinar á Laugaveginn, kl. 14–16 spilar jólakvintett jólalög og kl. 16 verður kveikt á jólatré við Austurvöll, segir í frétt frá Lauga- vegssamtökunum. Mikið um að vera á Lauga- veginum NÝR veitingastaður, Energia Bar, verður opnaður í Smáralind í dag, laugardaginn 8. desember, kl. 13.07. Það er Páll Óskar Hjálmtýsson sem opnar staðinn formlega. Energia Bar er í Vetrargarðinum og er hann rúmlega 100 fermetrar að stærð. Á Energia Bar verður boðið upp á létta og ferska rétti fyrripart dags- ins, s.s. súpu og salatbar auk „rétta dagsins.“ Áhersla verður lögð á orkumikla rétti og boðið upp á orku- ríka ávaxta- og mjólkurhristinga. Ítölsk stemning verður á Energia Bar. Þegar líða tekur á daginn tekur við rólegri bar- og kaffihúsastemmn- ing og boðið verður upp á ítalska rétti s.s. pasta, brauðrétti, osta og léttvín. Þeim viðskiptavinum Energia Bar sem eru á hraðferð verður boðið upp á að taka rétti með sér, segir í fréttatilkynningu. Nýr veitinga- staður í Smáralind
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.