Morgunblaðið - 08.12.2001, Page 4

Morgunblaðið - 08.12.2001, Page 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ B IR T IN G U R / S ÍA Sígild saga um hvatir, drauma og kynlíf - og spurninguna um hvort heimurinn sé reistur á klámi. Saga augans, Georges Bataille FARÞEGAR í fjórum flugvélum af sex, sem komu frá Evrópu til Keflavíkur í gær um eftirmiðdag- inn, komust ekki frá borði eftir að vélarnar lentu í Keflavík vegna veðurs. Alls voru 830 farþegar með vélunum sex. Vélarnar voru að koma frá Ósló, Stokkhólmi, Glasgow, Kaup- mannahöfn, París og London. Að sögn Björns Inga Knútssonar, flugvallarstjóra á Keflavík- urflugvelli, komust farþegar tveggja vélanna strax inn í flug- stöðina en vegna veðursins urðu farþegar hinna vélanna fjögurra að bíða. „Ætli það hafi ekki verið svona um hálffimm þegar veðrið skall á með verulegum þunga og þá náðu þeir ekki þremur vélum upp að flugstöðinni. Við urðum að taka landgöngubrýrnar, sem voru á þeim vélum, sem voru fyrir, frá vegna þess að þegar vindurinn fer yfir 50 hnúta eru vélarnar farnar að hristast svo mikið að brýrnar þola ekki álagið.“ Voru farþegar enn inni í einni vélanna sem voru í stæði þegar þetta gerðist auk vél- anna þriggja sem ekki komust upp að byggingunni. Björn segir að síðar hafi verið hægt að mynda skjólvegg með að- stoð slökkviliðsins á Keflavík- urflugvelli sem kom með slökkvi- liðsbíla á svæðið. „Þá náðum við að taka fyrstu vélina inn og rétt á eftir fór fraktvél frá Bláfugli í loftið þannig að það losnaði um stæðin austan megin við flugstöð- ina. Við gátum ekki notað stæðin vestanmegin þó þau væru auð því þar gekk vindurinn þannig að þar var ekki skjól af byggingunni,“ segir Björn. Rafmagn fór og rúður brotnuðu Hann segir að biðtími farþeg- anna úti í vélunum hafi verið á bilinu 46-115 mínútur og telur að ekki hafi farið illa um fólkið um borð. „Vélarnar óku upp á móti vindi og það fer best um farþeg- ana þannig. En það góða við þetta er að flugfarþegar sýna svona löguðu oftast góðan skilning og vita að við erum ekki viljandi að halda flugvélum úti á flughlaðinu heldur er það fyrst og fremst vegna þess að veðuraðstæður gera okkur ekki kleift að taka þær upp að flugstöðvarbygging- unni.“ Að sögn Björns fóru síðustu vél- arnar frá Keflavík, fjórar vélar á leið vestur um haf, í loftið um áttaleytið í gærkvöld, sem var um þriggja tíma töf. Fluginu til Lond- on hafi hins vegar verið aflýst. „Þannig að það verður einhver töf í fyrramálið en það er vonast til að þetta verði búið að vinda ofan af sér á sunnudaginn.“ Vegna veðursins sló út ljósum í möstrum á flughlaðinu í um tíu mínútur en að sögn Björns olli það engum vandræðum. Þá brotnuðu tvær glerhurðir í landgöngubrú við hlið 12 í suðurhluta flugstöðv- arbyggingarinnar. Í gærkvöldi var svo öllum landgöngum lokað og settir í svokallaða stormstöðu því búist var við áframhaldandi hvassviðri fram á morgun. Aflýsa varð flugi fjölda véla í innanlandsflugi í gær síðdegis. Farþegar innlyksa í fjórum flugvélum á Keflavíkurflugvelli í gær Morgunblaðið/Hilmar Bragi Vegna hvassviðris var ekki hægt að koma landgöngum að vélum, sem voru fullar af farþegum, á Keflavík- urflugvelli í gæreftirmiðdag. Myndin var tekin í gærkvöld þegar vélarnar voru komnar að flugstöðinni. Biðu í vélum í allt að tvo klukku- tíma BJÖRGUNARSKIPIÐ Gunnar Friðriksson sótti tvo menn sem slös- uðust í árekstri fólksbíls og jeppa á Vatnsfjarðarnesi í Ísafjarðardjúpi í gær og flutti þá til Ísafjarðar. Sam- kvæmt upplýsingum frá Sjúkrahús- inu á Ísafirði voru meiðsli þeirra ekki talin alvarleg en búist var við að ann- ar þeirra yrði til eftirlits á sjúkra- húsinu í nótt. Áreksturinn varð Mjóafjarðar- megin á Vatnsfjarðarnesinu, rétt eft- ir að komið er úr beygju yst á nesinu. Svo virðist sem jeppinn hafi runnið til í hálku og í veg fyrir fólksbílinn. Áreksturinn var harður og er fólks- bíllinn talinn ónýtur og jeppinn var óökufær. Ökumaður fólksbílsins, karlmaður um fertugt, slasaðist nokkuð en ökumaður jeppans kvart- aði undan eymslum. Mennirnir voru einir í bílunum. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði barst tilkynning um slysið klukkan 15.23. Áhöfn björgunarskipsins var ræst út auk þess sem sjúkrabifreið og lögreglubíll lögðu af stað áleiðis á slysstað. Snemma þótti sýnt að björgunarskipið yrði fljótara á vett- vang enda slæm færð um Djúpið og var sjúkrabílnum því snúið við. Viðbragðstími 11 mínútur Albert Óskarsson, skipstjóri á Gunnari Friðrikssyni, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að þegar skipið kom að Vatnsfjarðar- nesi hafi slöngubátur verið settur út og siglt með lækni og hjúkrunar- fræðing í land. Ekki var hægt að taka land við slysstaðinn heldur var fundin hentug lending um hálfum kílómetra innar í Mjóafirði. Þaðan var sjúkraliði ekið á slysstað af öku- mönnum sem höfðu komið að slys- inu. Tæplega klukkustund síðar lagði Gunnar Friðriksson af stað með mennina tvo til Ísafjarðar þar sem skipið lagðist að bryggju laust fyrir átta í gærkvöldi. Albert segir að björgunarstarf hafi gengið að óskum. Viðbragðstími björgunarskipsins hafi aðeins verið 11 mínútur en sjö menn voru í áhöfn, auk læknis, hjúkrunarfræðings og lögreglumanns. Morgunblaðið/Halldór Komið með ökumennina til Ísafjarðar laust fyrir átta í gærkvöldi. Skip náði í ökumenn eft- ir árekstur RÚTA með 19 manns innan- borðs fauk út af veginum um Fagradal og lenti á hliðinni um klukkan hálfátta í gærkvöld. Ýmist var farið með þá sem meiddust á heilsugæslustöðv- arnar á Egilsstöðum eða á Eskifirði. Einn hlaut áverka á andliti og kona sem kvartaði undan meiðlum í baki var lögð inn á sjúkrahús en ekki var ljóst hve alvarleg meiðsli henn- ar voru. Að sögn vakthafandi læknis voru meiðsli hinna far- þeganna ekki talin alvarleg. Að sögn lögreglunnar á Eg- ilsstöðum fór rútan út af efst í svonefndum Græfum sem eru skammt sunnan við Mjóafjarð- arveg. Ein rúða mölbrotnaði þegar rútan fauk á hliðina. Að sögn lögreglunnar gerði miklar vindhviður á Fagradal í gærkvöld og komu þær úr öll- um áttum. Ísing var vegum á Austurlandi og sumsstaðar svellbunkar á vegum. Nokkru áður en rútan fauk út af hafði fólksbíll fokið út af Fjarðarheiði. Þar urðu ekki slys á fólki en beðið var um að- stoð við að ná bílnum upp á veg- inn. Rúta með 19 manns fauk út af í Fagradal Sprengjusérfræðingar Land- helgisgæslunnar voru kallaðir að barnaskóla varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli um sexleyt- ið í gær. Hafði þar fundist tor- kennilegur jólapakki. Að sögn Óskars Þórmunds- sonar, yfirlögregluþjóns á Keflavíkurflugvelli, reyndist pakkinn hættulaus. Hann segir nokkuð algengt að svona komi upp á í herstöðinni en varnar- liðið fylgi afar ströngum reglum varðandi viðbrögð þeg- ar svona kemur fyrir. Sprengju leitað í jólapakka TILKYNNT var til lögreglunn- ar í Kópavogi um klukkan sjö í gærkvöldi að bátur sem legið hefur við festar í Fossvogi hefði slitnað upp og ræki inn voginn. Nokkru síðar barst hann á land fyrir neðan leikskólann Marbakka í Kópavogi. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi fengust þær upplýs- ingar að báturinn væri með sterkum stálkili og svo fremi sem hann lemdist ekki í stór- grýttri fjörunni yrði líklega í lagi með bátinn. Seinna um kvöldið tókst að ná bátnum aftur á flot og var farið með hann í Kópavogshöfn. Bát rak á land í Kópavogi VÖRUFLUTNINGABÍLL valt út af Holtavörðuheiði um klukkan 18 í gær og voru ökumaður og farþegi fluttir með sjúkraflutningabifreið á sjúkrahús en ekki tókst að afla upp- lýsinga um líðan þeirra í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Hólmavík gerði glóruvitlaust veður á heiðinni síðdegis í gær og lentu fjölmargir ökumenn í vandræðum. Að minnsta kosti fimm bílar fuku út af veginum. Þeir héldust þó á réttum kili og ekki urðu slys á fólki. Lögreglan ásamt björgunarsveitinni á Hvammstanga fór fólkinu til aðstoðar. Klukkan 20 taldi lögreglan ekki annað ráðlegt en að loka Holtavörðu- heiði. Að sögn lögreglunnar í Borg- arnesi var vindhraðinn í mestu hvið- unum 48 m/sek. og var jafnaðar- vindur á tímabili um 40 m/sek. Vindur var að miklu leyti genginn niður þegar heiðin var opnuð klukk- an 22.30. Björgunarsveitir fóru upp á Holtavörðuheiði Fjölmargir bílar í vandræðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.