Morgunblaðið - 08.12.2001, Qupperneq 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
24 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
84
7
/ T
A
K
T
IK
úti í garði
allt árið
Útiarinn
á sólpallinn
Við vorum
að fá þessa
vinsælu
útiarna
frá Mexikó
aftur
ATH.
Þeir sem voru á
biðlista vinsamlegast
hafið samband
sem fyrst
Verð kr.
15
VÍSINDANEFND Norðvestur-Atl-
antshafsfiskveiðiráðsins (NAFO)
leggur til að rækjukvóti á Flæmingja-
grunni verði aukinn um 15 þúsund
tonn á næsta ári, úr 30 þúsund tonn-
um í 45 þúsund tonn. Niðurstöðu sína
byggir nefndin m.a. á íslenskri aðferð
við öflun nýliðunargagna.
Unnur Skúladóttir, fiskifræðingur
á Hafrannsóknastofnuninni, segir út-
litið í rækjuveiðum á Flæmingja-
grunni nokkuð gott fyrir árið 2002.
Vísindanefnd NAFO hafi alltaf verið
nokkuð varkár í ráðleggingum sínum,
enda skort meiri gögn um nýliðun í
stofninum. Nú hafi hinsvegar fengist
ítarlegri gögn um nýliðunina með svo-
kallaðri nýliðunarskjóðu sem notuð
hafi verið við mælingar á rækjustofn-
inum hér við land um árabil. „Skjóðan
er í raun lítill smáriðinn poki sem sett-
ur er aftarlega á rækjutrollið. Þessi
aðferð kemur frá okkur Íslendingum
en Gunnar Jónsson, skipstjóri á
Dröfn, og ég notuðum fyrstir allra
þessa skjóðu aftast á poka rækju-
vörpunnar í stofnmælingum á úthafs-
rækju hér árið 1987.“
Sterkur árgangur
að koma inn í veiðina
Færeyingar hafa í samvinnu við Ís-
lendinga sett upp nýliðunarskjóðu
sem notuð er á rækjuvörpunni í stofn-
mælingum Færeyinga á Flæmingja-
grunni. Stefán Brynjólfsson frá Haf-
rannsóknastofnuninni hefur tekið
þátt í stofnmælingu Færeyinga og
farið með skjóðuna með sér og sett
upp á veiðarfærinu sem notað er um
borð í Högifossur í stofnmælingu
Færeyinga.
„Nú er þetta fjórða árið í röð sem
Færeyingar nota skjóðuna og er farið
að taka mark á niðurstöðum um nýlið-
un rækju sem kemur einkum í skjóð-
una. Þannig sýndu gögn úr skjóðunni
að 1997-árgangurinn væri að minnsta
kosti yfir meðallagi. Þessi árgangur
kemur nú sterkur inn í veiðina.
Spánverjar eru líka með stofnmæl-
ingu á botnfiski á Flæmingjagrunni
og voru þeir beðnir um að taka upp
þessa fínriðnu skjóðu, einnig með 7
millimetra möskvastærð. Sendi ég
þeim leiðbeiningar um skjóðuna fyrir
tveimur árum og hafa þeir síðan not-
að skjóðuna og mun verða litið betur á
niðurstöður þeirra árið 2002 þegar
komnar eru niðurstöður þrjú ár í
röð.“
Gögn frá eftirlitsmönnum nýtast vel
Unnur segir það hafa mikið að
segja þegar unnt sé að segja eitthvað
um nýliðunina. Einnig hafi gengið
betur í aldursáætlunum og sé þar
unnið úr sýnum sem eftirlitsmenn
nokkurra þjóða vinna í veiðunum, þ.e.
kyngreina og mæla. „Úr þessu kemur
fjöldi veiddra rækna eftir aldri og ým-
islegt fleira. Mikið af þessum niður-
stöðum koma frá íslenskum eftirlits-
mönnum. Veiðiskýrslurnar nýtast í
afla á togtíma og er reiknaður út
staðlaður afli á togtíma frá nokkrum
þjóðum. Þá má minnast á stofnmæl-
ingar Spánverja á botnfiski og rækju
og einnig áðurnefnda stofnmælingu
Færeyinga, en þar fást niðurstöður
um vísitölu kvenrækju. Þegar búið
var að meta öll gögn þá komst vís-
indanefnd NAFO að því að óhætt
væri að mæla með 45 þúsund tonna
veiði árið 2002 en talið óvíst að veiðin
árið 2003 verði jafngóð, þar sem 1998
árgangurinn virðist veikur en 1999
árgangurinn þokkalegur,“ segir Unn-
ur.
Leggja til aukna rækju-
veiði á Flæmingjagrunni
!"
#
$ #%
$&
!'( )*+
, -
.//0 .//1 .//2 .//3 .//4 .//5 ./// 6777 677.8
8* * * &%
9
FULLTRÚAR í samgöngunefnd Alþingis heimsóttu
nýlega húsakynni Íslandssíma og áttu fund með
stjórnendum fyrirtækisins. Í tilkynningu frá Ís-
landssíma segir að tilgangur heimsóknarinnar hafi
meðal annars verið að kynna nefndarmönnum starf-
semi félagsins. Einnig var rætt um fjarskiptamark-
aðinn, samkeppnisumhverfið og það sem framundan
er á fjarskiptamarkaði. Það er mat stjórnenda Ís-
landssíma að fundurinn hafi verið gagnlegur og
upplýsandi fyrir báða aðila. Sérstaklega sé það
ánægjulegt að sjá í verki tengsl Alþingis við við-
skiptalífið og vilja þingmanna til að kynna sér það
umhverfi sem þeir skapa fyrirtækjum með lagasetn-
ingu sinni.
Morgunblaðið/Sverrir
Samgöngunefnd hjá Íslandssíma