Morgunblaðið - 08.12.2001, Side 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Nú geturðu léð augnhárunum dramatíska sveigju og
lyftingu sem er sjónhverfingu líkust. Grunnurinn að
hinum nýja Illusionist Maximum Curling Mascara er gel
sem byggir á náttúrulögmálum loftmótstöðunnar.
Þetta óvenjulega efni gerir lyftinguna endingarbetri og
sveigjanlegur trefjaburstinn, sem við höfum einkaleyfi
á, auðveldar nákvæma ásetningu. Einstaklega lipur
galdrastafurinn gefur fingurgómunum betra grip.
Illusionist - á undan sinni samtíð.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Clara Kringlunni, Debenhams snyrtivörudeild, Hagkaup Kringlunni,
Hagkaup Smáralind, Hagkaup Spönginni, Lyfja Lágmúla, Lyfja,
Laugavegi, Lyfja Smáratorgi, Lyfja Smáralind, Lyfja Garðatorgi, Lyfja
Setbergi, Lyf og Heilsa Austurstræti, Sara Bankastræti, Apótek Keflavíkur.
Hreinasta sjónhverfing
Estée Lauder kynnir
ILLUSIONIST Maximum Curling Mascara
HERMENN hliðhollir Osama bin
Laden létu sprengikúlum, eldflaug-
um og byssukúlum rigna úr fjöllun-
um í Austur-Afganistan í gær. Ætt-
bálkahermenn réðust gegn þeim af
láglendi, og úr lofti vörpuðu banda-
rískar herflugvélar á þá sprengjum.
Háfleygar þoturnar fóru hverja
ferðina eftir aðra yfir skógi vaxnar
fjallshlíðarnar og sprengjur féllu
með tveggja til þriggja mínútna
millibili. Veður var gott. Dalirnir
milli fjallanna voru fullir af þykkum
reyk.
Hermenn greindu frá því, að á
milli loftárásanna hefðu börn her-
manna bin Ladens verið að leik fyrir
utan hellana hátt uppi í fjöllunum.
Mörg hundruð ættbálkahermenn
hafa gert árásir á hellana í vikunni í
því augnamiði að flæma þaðan liðs-
menn al-Qaeda-samtakanna, er
flýðu þangað eftir að talibanar voru
hraktir frá völdum víðast hvar í Afg-
anistan. Ættbálkahermennirnir eru
einnig með hugann við þær 25 millj-
ónir dollara sem heitið hefur verið í
verðlaun þeim sem klófestir bin Lad-
en, sem talinn er vera í felum á þessu
svæði.
Háttsettur liðsforingi, Haji Kalan
Mir, sagði að menn sínir hefðu í gær
komið auga á mann, er líktist bin
Laden, á hestbaki á ferð um víglín-
una ásamt fjórum aðstoðarmönnum.
„Hann fór aftur ríðandi til þorpsins
Malaewa, eftir að hafa heimsótt her-
menn sína,“ sagði Mir. Þessar fregn-
ir hafa ekki fengist staðfestar af
óháðum aðilum.
Að sögn liðsforingja var ekki bar-
ist í návígi í gær, líkt og varð á
fimmtudaginn, þegar ættbálkaher-
mennirnir náðu á sitt vald tveim
hellum, en hörfuðu síðan til baka.
„Við gerðum ekki mikið í dag, við
vorum ekki með árásaráætlun,“
sagði Hazrat Ali, einn þriggja liðs-
foringja í hernum sem heldur uppi
árásunum á fjöllin. Hann áformar
mikla atlögu í dag.
Ali sagði ennfremur að þrír manna
sinna hefðu fallið síðan á þriðjudag-
inn, er árásin hófst. Liðsforingin
Haji Musa, mágur Alis, sagði að
stærsta hellakerfið, Tora Bora, hefði
verið yfirgefið, en flestir al-Qaeda-
hermennirnir hefðu flúið í minni
hella hærra uppi í fjöllunum, og tekið
fjölskyldur sínar með sér.
„Þarna er fjöldi arabískra kvenna
og barna. Þau eru í efri hellunum
ásamt karlmönnunum,“ sagði Musa.
Sonur bin Ladens – Musa vissi ekki
hver þeirra – væri enn í felum á
svæðinu. „Við höfum engar staðfest-
ar upplýsingar um Osama bin Lad-
en, en sonur hans er enn í hellunum.“
Musa sagði að eina flóttaleiðin fyr-
ir al-Qaeda-liðana væri um götu yfir
til Pakistans, en hún væri þegar
ófær vegna mikilla snjóa.
Á níunda áratugnum var ein
þekktasta bækistöð skæruliða er
börðust gegn Sovétmönnum nefnd
eftir þorpinu Tora Bora (nafnið þýð-
ir „svart ryk“). Bækistöðin er grafin
djúpt í hlíðar fjallsins Ghree Kil í
fjallgarðinum Hvítufjöllum. Skæru-
liðarnir greiddu fyrir gerð stöðvar-
innar með peningum sem þeir fengu
frá Bandaríkjamönnum.
Bandaríska varnarmálaráðuneyt-
ið staðfesti á fimmtudaginn, að 30
eða 40 bandarískir sérsveitarliðar
væru staðsettir í Austur-Afganistan
og hjálpuðu til við að skipuleggja
leitina að bin Laden og liðsmönnum
al-Qaeda. Tugir bandarískra leyni-
þjónustumanna eru einnig taldir
vera á svæðinu.
Þar sem talibanar hafa nú gefið
eftir borgina Kandahar eru líkur á
að Hvítufjöll verði síðasti vígvöllur-
inn í herför Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra gegn bin Laden
og verndurum hans í talibanahreyf-
ingunni. En enn er á huldu margt
sem gæti reynst mikilvægt komi til
lokaorrustu í návígi. Enginn veit
hversu margir arabar og liðsmenn
frá öðrum ríkjum eru enn í al-Qaeda,
eða hvar nákvæmlega yrði barist í
öllum þeim fylgsnum sem eru á víð
og dreif í Tora Bora.
! "## !$ !%"&'
% %(
%%)#%#*+ % !% * 677* $,-../$0
1$./$0
# #%, -: ;
< = %
$2$0./$0
3
4
5
67'8./$0
6
0./
$0
9$0 :"
:" 0#
/"#;%
3
' , '*% **> *> ?
> )*, * ?*?*
*' * *$ 4 <% !) !
% * *""** *> *> > * ? *@ *-''
A' *B *
!!) 5 7!)#/' *' %
Segja bin Laden
hafa verið á
ferli í Tora Bora
Tora Bora, Jalalabad. AP, Washington Post.
Útlit fyrir að Hvítu-
fjöll verði síðasti
vígvöllurinn í her-
förinni í Afganistan
BRESKUM stjórnvöldum hafa bor-
ist „ítrekaðar fregnir“ um að Ayman
al-Zawahri, nánasti ráðgjafi Osama
bin Ladens, sé fallinn. Talsmaður
Tonys Blairs, forsætisráðherra Bret-
lands, greindi frá þessu á fimmtu-
daginn. Talsmaðurinn sagði þó, að
ekki væri unnt að staðfesta með af-
gerandi hætti hvort fregnirnar væru
réttar, og sagði ekki hvaðan þær
kæmu.
Bandaríska leyniþjónustan hefur
ekki getað staðfest að al-Zawahri sé
fallinn. Leiðtogar andstæðinga talib-
ana í Afganistan fullyrtu fyrr í vik-
unni að al-Zawahri, sem er Egypti og
læknir að mennt, hefði særst í loft-
árásum Bandaríkjamanna á Tora
Bora-hellana í Hvítufjöllum í Austur-
Afganistan. Kona hans og börn hefðu
farist í árásunum.
Al-Zawahri stofnaði samtökin
Heilagt stríð íslams í Egyptalandi, en
þau voru síðar sameinuð al-Qaeda-
samtökum bin Ladens. Al-Zawahri
hefur skrifað nokkrar bækur um
hreyfingar íslamista, og nú í vikunni
greindi arabíska blaðið Asharq al-
Awsat, sem gefið er út í London, frá
því, að handriti að bók eftir hann
hefði verið smyglað frá Afganistan til
Pakistans og þaðan hefði ónafn-
greindur, egypskur, bókstafstrúaður
múslimi komið með það til London.
Blaðið hóf sl. sunnudag að birta út-
drætti úr bókinni undir titlinum
Riddarar undir gunnfána spámanns-
ins: Hugleiðingar um hreyfinguna
Heilagt stríð. Í bókinni er fjallað
mikið um morðið á Anwar Sadat, þá-
verandi forseta Egyptalands, sem
var ráðinn af dögum fyrir 20 árum. Í
útdrættinum er birtur var á miðviku-
daginn segir al-Zawahri að morðið
hafi sýnt fram á „hugrekkið ... og
árásargirnina“ sem byggi í hreyfingu
bókstafstrúaðra íslamista.
Ítrekaðar fregnir
af falli al-Zawahris
London. AP.
Reuters
Ayman al-Zawahri
BANDARÍSKIR sérsveitarliðar
réðust á bílalest talibana skammt
frá Kandahar í gær og felldu sjö
hermenn. Þetta er fyrsta árásin
sem Bandaríkjamenn gera á landi
síðan sérsveitarliðarnir settu upp
bækistöð í Suður-Afganistan, að
því er talsmaður sérsveitanna
greindi frá. Engan sérsveitarliða
sakaði.
Þrjú farartæki talibana óku í
átt að sérsveitarliðum, sem voru á
þungvopnuðum Humvee-jeppum,
og sérsveitarliðarnir gerðu árás,
sagði talsmaður þeirra, kafteinn
David Romley. „Óvinirnir voru
skotnir til bana,“ sagði hann. „Tal-
ið er að hermennirnir sem voru
felldir hafi verið liðsmenn al-
Qaeda og talibana.“
Sérsveitarliðar
fella sjö talibana
Suður-Afganistan. AP.